Fréttablaðið - 19.12.2009, Qupperneq 16
19. desember 2009 LAUGARDAGUR
MENNTAMÁL Katrín Jakobsdóttir
menntamálaráðherra segir að
mjög sannfærandi rök þurfi að
koma til ef stytta eigi kennslu-
tíma nemenda
í grunnskólum
landsins. Hún
hefur kallað
eftir greiningu
á tíu milljarða
króna kostnað-
arauka innan
grunnskólans
á undanförnum
árum.
Samband
íslenskra sveit-
arfélaga hefur kynnt ráðuneytinu
leiðir til að spara 1,5 milljarða á
ári á næstu tveim skólaárum.
Leiðin sem helst er horft til er
að skerða kennslustundir um
þrjár til fimm á viku, minnst hjá
yngstu bekkjunum. Hagræðing-
arkrafa til grunnskólanna er 3,5
milljarðar á ári. Í ljósi þess að
grunnskólinn er langstærsti ein-
staki kostnaðarliður sveitarfélag-
anna er talið að þar sé helsta mat-
arholan til sparnaðar. Rökræðan
á milli sveitarfélaganna og kenn-
araforystunnar um sparnaðar-
leiðir stendur yfir en kennarar
hafa alfarið hafnað hugmyndum
sveitarfélaganna.
Katrín segir að í ráðuneytinu sé
einungis horft á málið út frá hags-
munum nemenda. „Það er okkar
hlutverk að standa vörð um þeirra
hagsmuni. Sá kostnaðarauki sem
hefur orðið í grunnskólanum á
undanförnum árum hefur vaxið
um tíu milljarða á undanförnum
árum og ekki tengst með neinum
hætti auknum kröfum ríkisins
á hendur sveitarfélögunum. Nú
þegar þarf að spara þurfa því að
koma til mjög sannfærandi rök til
að skera niður kennslustundir hjá
nemendum.“
Katrín segist hafa beitt sér fyrir
því að kennaraforystan og sveitar-
félögin vinni að málinu í sátt. „Það
er verið að leita að lausn fyrir öll
sveitarfélögin í landinu á sama
tíma og staða þeirra er mjög mis-
jöfn. Sveitarfélögin þurfa að svara
því hvort leiðir þeirra til lausna
henti öllum,“ segir Katrín.
Kennarar, líkt og Katrín, leggja
áherslu á réttindi nemenda. Skerð-
ing, í hvaða mynd sem hún yrði,
feli í sér að gengið sé á hagsmuni
barna sem nú séu á grunnskóla-
aldri. Sveitarfélögin hafa hins
vegar bent á að lenging skólaárs-
ins sé nýtilkomin og vandséð að
réttindasviftingin sé mikil.
Spurð hvort verið sé að ganga á
hagsmuni nemenda í því ljósi að
stutt er síðan skólaárið var lengt
svarar Katrín með þeim hætti að í
alþjóðlegum samanburði sé Ísland
rétt í meðallagi hvað varðar þann
tíma sem börn verja í skólanum.
„Samfélagið hefur gjörbreyst á
tiltölulega stuttum tíma og meta
þarf skerðingu á kennslu í því
samhengi líka.“
svavar@frettabladid.is
Skert kennsla krefst
sannfærandi raka
Menntamálaráðherra segir sitt hlutverk að standa vörð um hagsmuni grunn-
skólanemenda. Sveitarfélögin hafa lagt fram leiðir um sparnað innan grunn-
skólans. Stytta þarf kennslutíma. Kennarar hafna hugmyndunum alfarið.
FOLDASKÓLI Sparnaður hjá grunnskólunum snýst um styttri kennslutíma og því
réttindi barna. Myndin tengist ekki fréttinni með beinum hætti. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
KATRÍN
JAKOBSDÓTTIR
Jólabækur
á betra verði
TI
LB
OÐ
x3
Söknuður
Fullt verð 5.890 kr.
2.890 kr.
auk 1.000 punkta
Punktar gilda
þrefalt
x3
Punktar gilda
þrefalt
Skuldadagar eða Ripley’s
Fullt verð 5.490 kr.
2.490 kr.
auk 1.000 punktax3
Punktar gilda
þrefalt
Reyndu aftur - bók og CD
Fullt verð 8.490 kr.
5.490 kr.
auk 1.000 punkta
MENNTAMÁL „Ég sem kennari vil
koma því skýrt á framfæri að for-
ysta Kennarasambandsins hefur
ekkert rætt það við hinn almenna
félagsmann hvernig hann vill
bregðast við fjárhagsstöðu sveitar-
félaga. Afstaða forystunnar er alfar-
ið á hennar ábyrgð og ég veit ekki
til að hún sé bökkuð upp af félags-
mönnum,“ segir Sigtryggur Arason,
kennari á Akranesi.
Eiríkur Jónsson, formaður Kenn-
arasambands Íslands (KÍ), sagði í
frétt blaðsins í gær að sparnaðar-
hugmyndir sveitarfélaganna, sem
nú eru til umfjöllunar í menntamála-
ráðuneytinu, væru afleitar og kæmu
ekki til greina frá sjónarhóli KÍ.
Sigtryggur segir ljóst að kennar-
ar, eins og aðrir, verði að leggja sitt
af mörkum til samfélagsins.
„Þeir félagar mínir sem ég hef
talað við hafa ekkert á móti því að
axla einhverjar byrðar til að létta
á sveitarfélögunum þar sem þeir
búa. Sú hugmynd til dæmis að
stytta skólaárið um tíu daga, og þar
komi einhver launalækkun á móti,
mælist ekki illa fyrir í mínum hópi.
Það er svo með flesta í hinum ýmsu
atvinnugreinum að þeir hafa tekið
á sig kjaraskerðingu í formi styttri
vinnutíma og viðveru á vinnustað.
Kennurum ætti ekki að vera vorkunn
að taka þátt í því,“ segir Sigtryggur.
- shá
Kennari á Akranesi vill ekki skrifa undir skoðun kennaraforystunnar:
Ekkert verið talað við okkur
BREKKUBÆJARSKÓLI Á AKRANESI
Hugmyndir kennaraforystunnar um
skerðingu kennslutíma hafa ekki verið
kynntar kennurum sérstaklega.