Fréttablaðið - 19.12.2009, Page 24

Fréttablaðið - 19.12.2009, Page 24
24 19. desember 2009 LAUGARDAGUR greinar@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is MENNING: Páll Baldvin Baldvinsson fulltrúi ritstjóra pbb@frettabladid.is HELGAREFNI: Anna Margrét Björnsson amb@frettabladid.is og Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Henry Birgir Gunnarsson henry@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Jón Kaldal jk@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 ÓDÝRT FYRIR ALLA! COCA COLA - 33 CL 69 www.europris.is PIPARKÖKUR 299 KERTI - 10 Í PK 599 SPOTTIÐ ÞORSTEINN PÁLSSON AF KÖGUNARHÓLI ÞORSTEINS PÁLSSONAR Fjármálaráðherra tókst nú í vikunni að draga skýrar markalínur varðandi tvær mjög áleitnar siðferðilegar spurningar er tengjast endurreisn efnahagslífsins og vafist hafa fyrir fólki. Það sem meira er: Stjórnar- andstöðuflokkarnir tveir hafa ekki gert athugasemdir við niðurstöðu ráðherrans. Fyrri spurningin lýtur að laun- um bankamanna. Ofurlaun margra þeirra hafa verið talin merki um siðferðilegan brest. Skattgreiðend- ur hafa nú keypt Landsbankann. Samtímis hefur fjármálaráðherra heimilað stjórnendum hans að inn- leiða kaupaukakerfi að nýju. Það er skýrt svar við áleitinni siðferðis- spurningu. Ástæðulaust er að ætla að nýja kerfið verði jafn galið og hitt sem ríkti fyrir hrun. Í gamla kerfinu fengu menn því meiri umbun sem þeir gátu blásið út meiri eignafroðu. Rekstrarárangur skipti litlu eða engu máli. Ef til vill fólst sið- ferðisbresturinn einkum í aðferð- inni við umbun- ina. Vandamál- ið er reyndar gamalt í hett- unni. Á átjándu öld umbunaði hollenska Aust- ur-Asíufélagið starfsmönnum sínum eftir því sem efnahagsreikningurinn stækkaði. Breska félagið sem rekið var með hliðstæðu nafni og í sama tilgangi notaði hins vegar hreinan hagnað til kaupaukaviðmiðunar. Því fyrra vegnaði betur í fyrstu. Það síðara hafði lengra úthald. Seinni spurningin lýtur að því hvort og eftir atvikum hvernig þeir sem mest fór fyrir í útrásinni megi halda áfram þátttöku í íslensku atvinnulífi. Sumir hafa viljað banna þátttöku þeirra með öllu. Aðrir hafa til að mynda viljað takmarka banka- þjónustu við þá. Enn aðrir hafa ekki talið spurninguna gilda. Nú hefur fjármálaráðherra sam- þykkt tillögu iðnaðarráðherra um að veita megi sérstakar skattaívilnanir til fyrirtækis sem að stórum hluta er í eigu eins þeirra sem ábyrgð ber á Icesave-málinu og þeim þungu byrðum sem leggjast á skattborg- arana af þeim sökum. Hér er líka veitt afgerandi og skýrt svar við siðferðilegu álitaefni. Ætli menn að víkja sér undan að svara spurningum af þessu tagi og koma sér hjá að draga glöggar markalínur er hætt við að þeir kom- ist ekki úr sporunum við endur- reisnina. Ugglaust verða ekki allir á einu máli um niðurstöðuna. Þau efnahagslegu rök sem ráðherrarn- ir færa fram sýnast hvað sem öðru líður vera álíka þung á metaskálun- um og siðferðilegu mótrökin. Flest bendir því til að þessar ákvarðanir séu í ásættanlegu jafnvægi. Svör um siðferðileg álitamál Þau svör sem fjármálaráð-herra hefur nú gefið er fróð-legt að meta út frá fleiri en einni pólitískri hlið. For- dæmisgildið er ein þeirra. Ekki er loku fyrir það skotið að kaupaukakerfi í endurreistum ríkis- banka geti valdið erfiðum saman- burði annars staðar í ríkiskerfinu þar sem nauðsynlegt hefur verið að hagræða með lækkun launakostnað- ar. Fyrirfram er ekki ástæða til að ætla að fjármálaráðherra gefist upp fyrir hefðbundnum samanburðar- rökum á þessu sviði en þau geta gert honum varnarbaráttuna erfiðari. Eitt fyrirtæki í eigu útrásar- víkings hefur nú fengið skatta- ívilnanir. Fordæmisgildið felst í því að við svo búið sýnist þeirri spurn- ingu vera svarað hvort fyrirtæki í þeirra eigu eigi almennt að njóta hliðstæðrar bankafyrirgreiðslu og gengur og gerist í bankaviðskiptum. Þær háværu deilur sem staðið hafa um þau efni gætu þar með fjarað út að því gefnu að siðferðisviðmiðin séu almenn en ekki sértæk. Af viðbrögðum má ætla að ráð- herra úr röðum Sjálfstæðisflokks- ins hefði tekið svipaðar ákvarðanir. Það er hins vegar önnur pólitísk hlið að sennilega hefði hann átt í vök að verjast eða jafnvel alls ekki kom- ist upp með þær í ljósi þess sem á undan er gengið. Öllu hefði þá verið snúið á hvolf. Aðeins hefðu verið sett lóð á siðferðilegu vogarskálarnar en ekki þær efnahagslegu. Ekki þarf mikla hugmyndaauðgi til að ætla að núverandi heilbrigðis- ráðherra hefði talið það þjóna rétt- látum málstað í stjórnarandstöðu að stýra mótmælum með þeim kröfum að heilbrigðisstéttir ættu tilkall til sömu umbunar og bankamenn. Þjón- usta þeirra hefði við þær aðstæður verið talin jafngilda níutíu milljarða króna virðisauka í banka. Nú eru rokkarnir þagnaðir. Sú pólitíska hlið málsins sýnir að frá ákveðnu sjónarhorni getur verið kostur að hafa VG við ríkisstjórnar- borðið. Pólitísku hliðarnar Við ríkisstjórnarborðið hefur VG viðurkennt mikil vægi gamalla íhalds-úrræða eins og aðhalds- aðgerða í ríkisfjármálum. Ýmsir forystumenn ríkisstjórnar flokkanna sýnast á hinn bóginn vera reikulli í rásinni gagnvart sveitarsjóðunum en ríkissjóði. Augljóst er að ríkisstjórnar- flokkarnir hafa ekki sama skilning á aðhaldi í opinberum rekstri sveitar- félaga þar sem þeir sjálfir eru í minnihluta. Það sést meðal annars á málflutningi þeirra í Reykjavík þar sem mestir hagsmunir eru í húfi. Öllu alvarlegra er þó að ríkis- stjórnin sjálf lætur sjónarmið hagsmunahópa ráða afstöðu sinni þar sem andstaða þeirra snýr að sparnaðar aðgerðum sveitar- félaganna. Þegar kemur að óskum sveitar félaganna um sparnað í skólamálum bregður ríkisstjórnin þannig fyrir sig gömlu rökræðunni úr stjórnarandstöðu. Slík ósamkvæmni getur bent til að völdin skipti meir en árangurinn. Hún getur líka átt sér skýringu í einhvers konar pólitískri samvisku- veiki í baklandi ríkisstjórnarflokk- anna. Sé svo er stjórnin veikari en þingstyrkurinn segir til um. Ósamkvæmni er veikleikamerki V onlítil staða Álftaness frammi fyrir fjallháum skuld- um hefur beint athyglinni að almennt bágbornu ástandi minni sveitarfélaga í landinu. Þegar sveitarfélag fær meira en 50 prósent sinna tekna úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga er augsýnilega eitt- hvað mikið bogið við forsendurnar sem menn gefa sér að baki því að viðhalda áfram slíkri rekstrareiningu. Alltof mörg sveitarfélög eru í þeim sporum að vera upp á sjóðinn komin á þennan hátt. Sjálfsagt leiða tiltölulega fáir útsvarsgreiðendur í þéttbýli að því hugann að töluverður hluti af útsvarinu þeirra rennur ekki til þess bæjarfélags sem þeir búa í, heldur til minni sveitarfélaga. Útsvar þéttbýlisbúanna er þannig notað til að niðurgreiða með beinum hætti þjónustu annars staðar, í stað þess að greiðslan sé nýtt í þágu þeirra sem reiða hana af hendi. Á þessu ári greiddu Reykvíkingar til dæmis ríflega 2,4 milljarða í Jöfnunarsjóð sveitarfélaga. Til að setja þá tölu í samhengi þá var gert ráð fyrir um 2,3 milljarða króna sparnaði í endurskoðaðri fjárhagsáætlun borgarinnar fyrir þetta ár. Það þýðir aftur að ef Reykvíkingar hefðu haft útsvarið fyrir sig, þá hefðu þeir ekki þurft að skera neitt niður, en samt átt 100 milljónir króna eftir ef enginn hefði verið Jöfnunarsjóðurinn. Auðvitað er hér dregin upp mjög einfölduð mynd, en hún segir samt margt um hvernig álögunum er skipt. Sveitarfélög í landinu eru nú 77 talsins. Þar af eru 30 með færri en 500 íbúa og 15 með 500 til 1.000 íbúa. Ekki þarf að fara mörgum orðum um að þessi minni sveitarfélög eru fæst sjálfbær, tölurnar tala sínu máli. Í sumar samþykkti ríkisstjórnin verkáætlun sem fékk nafnið 20/20 – Sóknaráætlun fyrir Ísland og á að vera liður í efnahagslegri endurreisn þjóðarinnar, eins og þar segir. Fulltrúar Sóknaráætlunarinnar gerðu víðreist í haust og ræddu meðal annars löngu tímabæra hugmynd um róttæka fækkun sveitarfélaga, úr 77 í 17. Ef þessi tillaga verður að veruleika, verða Vestfirðir til dæmis eitt sveitarfélag og höfuðborgarsvæðið tvö til þrjú, í stað þeirra sjö sem eru þar nú. Þessar breytingar hanga að sjálfsögðu saman við endurskipu- lagningu á opinberri þjónustu og hvernig verkaskiptingunni milli ríkis og sveitarfélaganna er háttað. Hluti af því er að tryggja að sveitarfélögin verði nægilega burðug til að standa undir þeim verkefnum sem þeim er ætlað. Nokkuð hefur skort á þá hlið mála undanfarin ár. Hugmyndin að baki Sóknaráætluninni er að hún sé þverpólitískt verkefni, unnið með þátttöku allra stjórnmálaflokka í nánu samráði við sveitarfélögin og aðila vinnumarkaðarins. Það er mikið þjóðþrifamál að sú samstaða náist. Í raun er mark- mið verkefnisins þannig vaxið að óþarfi á að vera að óttast annað, en reynsla undanfarinna mánaða gefur þó því miður fullt tilefni til svartsýni. Þörf er á þverpólitískri samstöðu. Róttæk fækkun sveitarfélaga JÓN KALDAL SKRIFAR
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.