Fréttablaðið - 19.12.2009, Qupperneq 152
112 19. desember 2009 LAUGARDAGUR
KÖRFUBOLTI Tíu stig á sautján mín-
útum er ekki slæm frammistaða
hjá leikmanni í spænsku úrvals-
deildinni, einni bestu deild í heimi.
Hún fær samt nýtt vægi þegar um
er að ræða leikmann að stíga sín
fyrstu skref á vellinum eftir að
hafa unnið sigur á hrikalegum bak-
meiðslum sem sendu hann beint á
sjúkrahús og áttu að halda honum
frá keppni í fjóra mánuði.
Jón Arnór Stefánsson lék sinn
fyrsta leik með CB Granada
um síðustu helgi og samdi þar
með nýjan kafla í ævintýralegri
endurkomu sinni.
„Það var ofboðslega gaman að
koma til baka svona snemma. Ekki
bara að koma til baka heldur að
líða eins og mér líður núna. Mér
finnst ég vera sterkur. Ég er
með litla verki og miklu minni
verki en þeir héldu,“ segir
Jón Arnór og ekkert bendir
til þess að hann hafi farið af
stað of snemma.
„Ég er í standi til að spila
því ég er búinn að vera það
fljótur að koma mér í leik-
form. Ég spilaði sautján mín-
útur í fyrsta leik og var hvorki
þreyttur né fann neitt daginn
eftir. Ég hef greinilega komið
mörgum á óvart með því að koma
svona fljótt til baka,“ segir Jón
Arnór.
Kærastan hans stoð og stytta
Jón þakkar góðum læknum og
sjúkraþjálfurum, sem og því góða
fólki sem stóð við bakið á honum.
„Ég hef aldrei lent í svona svaka-
legum meiðslum áður en ég hef
verið alltaf frekar jákvæður að
eðlisfari og það hjálpaði örugglega
heilan helling. Höfuðið var alltaf
uppi og ég var alltaf stemmdur á
það að koma til baka í desember.
Það gekk síðan einhvern veginn
eftir,“ segir Jón Arnór en það er
þó ein manneskja sem fær mesta
hrósið.
„Ég er með Lilju kærustu
mína með mér úti og hún
var mín stoð og stytta
í þessu. Við erum það
góðir vinir og félagar
að það var alltaf voða-
lega gaman hjá okkur.
Það var líka nóg að
gera hjá mér þó svo að
ég hafi verið
meidd-
ur.
Ég var alltaf í
sjúkraþjálfun og í
sundlauginni í endur-
hæfingu. Það var því
enginn tími í að detta
í eitthvert þunglyndi,“
segir Jón Arnór.
Jón Arnór var að hefja
sitt annað tímabil á Spáni
þegar hann meiddist en hann
lenti einnig í slæmum meiðsl-
um þegar hann hóf að leika með
Valencia haustið 2006.
„Ég lá þarna á gólfinu og fór
að velta því fyrir mér hvort það
væru einhver álög á mér á Spáni.
Það var bara vitleysa og maður
á ekkert að hugsa þannig,“ segir
Jón. „Ég er búinn að vera jákvæð-
ur alveg síðan þetta gerðist og hef
alltaf verið mjög glaður á æfing-
um. Það hefur líka gengið vel á
æfingunum og mér líður allt öðru-
vísi en í Valencia. Ég er
miklu þroskaðri og reynd-
ari,“ segir Jón Arnór,
sem yfirgaf Pamesa
Valencia í ársbyrjun
2007 og fór þá aftur til
Ítalíu.
„Ég hef verið það lengi
í þessum bolta að ég veit
að ég get staðið mig vel
í þessari deild. Þetta er
allt spurning um hugar-
far og ég er miklu til-
búnari að takast á við
svona meiðsli en
áður,“ segir Jón og
fjölskylduvænt
umhverfi í Gran-
ada hefur hjálp-
að til.
Hafa sýnt
honum þolin-
mæði
„Klúbbur-
i n n hefu r
s ý nt mér
þolinmæði
og ég fékk
allt önnur
skilaboð
en ég
fékk
frá
Valencia. Þá var bara pressa á
mér að koma til baka. Ég kom þá
til baka og meiddist síðan strax
aftur, sem var alveg hrikalegt,“
segir Jón Arnór.
Það gengur samt ekki vel
hjá Granada-liðinu, sem hefur
aðeins unnið fjóra af tólf leikjum
sínum og situr í þriðja neðsta sæti
deildarinnar.
„Það er ekkert rosalega gaman
að vera að tapa leikjum en það er
hlutur sem ég þarf að læra. Ég er
vanur því að vera alltaf í sigurliði
og það er svolítið skrítið að lenda
í þessari aðstöðu núna að vera í
tapliðinu. Við erum samt með
ágætis hóp og það vantar bara
aðeins upp á hjá okkur. Ég held
að menn séu að vakna til lífsins.
Liðið vantar smá breidd og smá
reynslu. Ég held að ég geti veitt
því þessa tvo hluti,“ segir Jón.
Góð samvinna við Finnann
Jón Arnór er ánægður með sam-
vinnuna Finnans Teemu Rannikko
en þeir komu báðir inn af bekkn-
um í leiknum á móti Estudiantes
um síðustu helgi.
„Við lendum fjórtán til sextán
stigum undir í byrjun. Ég fæ loks-
ins að koma inn á í öðrum leik-
hluta og við náum þeim strax og
það munar aðeins tveimur stig-
um í hálfeik. Þá byrjar hann
aftur með byrjunarliðið inn á og
við lendum aftur fjórtán stigum
undir. Við Rannikko komum inn
á aftur og við náum þeim aftur
en það var ekki nóg,“ segir Jón en
samvinna þeirra kom ekki bara í
ljós í leiknum heldur einnig
á æfingum.
„V i ð T e e m u
Rannikko erum
alltaf saman á
æfingum og þá
erum við að rúlla
hinum upp. Það
þarf því kannski
að fara að breyta
h lutunum. Við
þessir reynslumeiri
leikmenn þurfum
kannski að funda með
þjálfaranum og láta aðeins heyra
í okkur,“ segir Jón Arnór og bætir
við:
Ekki lengur einhver stráklingur
„Ég er ekki lengur einhver
stráklingur. Ég er orðinn reynd-
ur og sérstaklega í þessu liði. Ég
þarf að taka meira að mér leið-
togahlutverk,“ segir Jón en fram
undan er mikilvægur leikur við
Lagun.
„Þetta er heimaleikur og lið
sem við eigum að vinna. Þetta er
leikur sem við bara verðum að
vinna. Við erum vel stemmdir og
vonandi fær maður að spila eitt-
hvað meira,“ segir Jón Arnór að
lokum. ooj@frettabladid.is
Miklu þroskaðri og reyndari núna
Jón Arnór Stefánsson vann einn af stórum sigrunum á glæsilegum ferli sínum í desembermánuði og það
þrátt fyrir að vinna ekki titil eða vinna leik. Jón Arnór kom nefnilega öllum á óvörum í Granada með því
að snúa aftur eftir mjög slæm bakmeiðsli tveimur mánuðum á undan áætlun.
ÁRIÐ BYRJ-
AÐI HJÁ KR
Jón Arnór Stefáns-
son lék með þrem-
ur félögum í þremur
löndum á árinu 2009.
Fyrst KR, þá ítalska liðinu
Benetton Treviso og svo að
lokum með spænska liðinu
CB Granada.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
TVEIMUR MÁNUÐUM Á
UNDAN ÁÆTLUN
1. október
Jón Arnór lendur mjög illa og brákar
fjóra hryggjarliði í æfingaleik gegn
Khimki frá Rússlandi. Hann er fluttur
á sjúkrahús en sleppur við að fara í
aðgerð. Liðið býst við að Jón verði frá
fram í janúar.
29. nóvember
Jón Arnór fer í stórt próf í tengslum við
keppnisferð CB Granada til Real Madr-
id. Stenst prófið og fær að æfa með
liðinu í vikunni á eftir.
12. desember
Spilar sinn fyrsta leik með CB Granada
þegar liðið tapar 77-65 fyrir Estudiant-
es. Spilar í 16 mínútur og 42 sekúndur,
skorar 10 stig, setur niður þrjá þrista
og tekur þrjú fráköst.
HANDBOLTI Rússland og Frakkland
munu spila til úrslita á HM í
handbolta kvenna sem lýkur í
Kína um helgina.
Stelpurnar hans Þóris Hergeirs-
sonar í norska landsliðinu töpuðu
20-28 í undanúrslitaleiknum
sínum á móti Rússlandi og mæta
Spáni í leiknum um þriðja sætið á
sunnudaginn. Þetta verður fyrsta
stórmótið síðan HM 2005 þar sem
norska kvennalandsliðið spilar
ekki til úrslita.
Norska liðið byrjaði vel í leikn-
um og var meðal annars 11-8 yfir
um miðjan hálfleikinn. Rússar
sneru þá leiknum sér í hag; skor-
uðu átta mörk í röð og náðu fimm
marka forystu fyrir hálfleik, 17-
12. Sigur Rússa var síðan aldrei
í hættu í seinni hálfleik. Frakkar
unnu 27-23 sigur á Spáni í hinum
undanúrslitaleiknum. - óój
Norsku stelpurnar hans Þóris:
Spila um brons-
ið á HM í Kína
MISSTU AF ÚRSLITALEIKNUM Þórir Her-
geirsson á bekknum. MYND/AFP
FÓTBOLTI Gunnar Heiðar Þorvalds-
son hefur ekki enn skrifað
undir samning við Reading en
hann hefur verið fullvissað-
ur um að það verði gert strax á
mánudaginn. Gunnar fór utan á
mánudaginn og fór þá í læknis-
skoðun. Síðan þá hefur félagið
hins vegar rekið knattspyrnu-
stjórann og því hefur málið tafist.
„Þetta eru í raun þrír samn-
ingar sem þarf að útbúa og þetta
tekur því allt sinn tíma,“ sagði
Gunnar Heiðar en hann er á mála
hjá Esbjerg í Danmörku sem
hefur samþykkt að lána hann til
Reading til loka leiktíðar.
„Ég er bara rólegur og hef
verið duglegur að æfa. Það verð-
ur gengið frá þessu á mánudag-
inn og þá byrja ég að æfa með
liðinu. Síðan er æfingaleikur við
Tottenham á þriðjudaginn.“ - esá
Gunnar Heiðar Þorvaldsson:
Bíður enn eftir
að klára skiptin
AÐ SEMJA VIÐ READING Gunnar Heiðar
Þorvaldsson. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI