Vikan - 26.04.1962, Blaðsíða 27
Vortíxbn 1962
II
4
'bt\py)&p
Hrútsrr.erkiö (21. r.'.arz—20. apr.): Þér mislikar
eitthvað, sem fyrir kemur, herfilega, og er vissu-
lega ástæða til. Um helgina færðu líklega ein-
hverja uppreisn Verið getur að þú verðir að biða
í svo sem vikutíma með að hrinda þessu i fram-
kvæmd, sem þú hafðir i hyggju í þessari viku, en i rauninni
liggur ekkert á.
Nautsmerteió (21. apr.—21. maí): Þetta verður
ósköp venjuleg vika og fátt um stórviðburði, þótt
hún verði engan vegin leiðinleg. Þú munt vera
óvenjumikið heima við, enda bíður þín lítið
markvert utan heimilisins. Eitt kvöldið færðu
skemmtilegan gest í heimsókn. Þú munt sjá talsvert af
þessum gesti á næstunni.
Tvíburamerkið (22. maí—21. júni): Þú munt
eiga mjög annríkt i vikunni, og skaltu láta hendur
standa fram úr ermum, því að þú hefur slegið
slöku við undanfarið. Vinur þinn kemur með
skemmtilega hugmynd, en einhvern veginn er
eins og þú reynir að stela þessari hugmynd frá honum.
Helgin verður mjög skemmtileg og ánægjurík.
KrabbamerkiS (22. júni—23. júlí): Það gengur
ýmislegt á í þessari viku, og ekki er víst að allt
rnTjtm leiki í lyndi Þó þarftu svo sem engu að kvíða, því
að í heiid verður vikan góð. Amor verður eitt-
hvað á ferðinni, en ekki skaltu taka allt of mikið
mark á skeytum hans. Þú kviðir fyrir einhverju. sem þú átt
i vændum, en líklega svertir þú þér þetta allt of mikið.
Ljónsmerkið (24. júlí—23. ág.): Einn daginn
akemur einhver til þin með fréttir, sem eiga eftir
að breyta talsvert áformum þinum. Vera kann
að þú eigir dálítið erfitt með þetta, en eftir svo
sem vikutíma verður allt komið i samt lag aftur.
Það er eins og einn vinur þinn verði óeðliiega mikið fyrir
harðinu á þér og vinum þínum, og á hann það ekki skilið.
MeyjarmerlciÖ (24 ág—23. sept.): Atburður, sem
gerðist svo til nákvæmlega eins fyrir svo sem
mánuði, endurtekur sig nú, og verða viðbrögð
þín að þessu sinni allt önnur og betri en í fyrra
skiptið. Þú verður mikið úti í vikunni, og er það
vel, þvi að þú þarft á fersku lofti að halda þessa dagana.
Miðvikudagurinn er þér til til mikilla heilla Heillatala 11.
Vogarmerkið (24. sept.—23 okt.): Þú heyrir eitt-
hvað, sem verður til þess að afstaða þín gagnvart
einum vini þinum eða einum fjölskyldumeðlimi
breytist mjög, og er gott til Þess að vita. Þú munt
umgangast einn félaga þinn óvenjumikið i vik-
unni, og ættuð þið að sinna þessu sameiginlega áhugamáli
ykkar mun oftar. Þú skuldar einhverjum illilega bréf.
___ Drekamerkið (24. okt—22. nóv.): Það er eins
og einhver óvissa sé yfir afstöðu stjarnanna í
þessari viku. og verður því ekki ráðið, hvort vikan
er til góðs eða ills. Ýmislegt bendir þó til þess að
bæði föstudagur og laugardagur verði þér til
heilla. Einnig virðist nátengdur ættingi koma óvenjumikið
við sögu þína. Talan 5 skiptir einhverju máli.
Bogmannsmerkið (23. nóv—21. des ): 1 vikunni
gerist eitthvað. sem á eftir að valda miklum mis-
skilningi meðal kunningja þinna, og greiðist ekki
þessi flækja fyrr en eftir svo sem hálfan mánuð.
Kvöldin verða dálitið óvenjuleg í vikunni, og þú
munt fá að sinna ýmsum verkefnum, sem þú fæst annars
sjaldan við. Þú ert orðinn einum of háðskur undanfarið.
Geitarmerkiö (22. des —20. jan ): Fram að helgi
verður einhver deyfð yfir þér og kunningjum þín-
um flestum, og þér virðist ætla að verða lítið úr
verki. En um helgina gerist eitthvað, sem kemur
lifi í tuskurnar, svo að eftir lielgina verður nóg að
gera. Þú ert allt of sérhlífinn þessa dagana, og verður þú að
vinna bug á þessum ágalla, ef ekki á að fara illa.
Vatnsberamerkið (21. jan.—19. feb.): Þér verður
kornið þægilega á óvart líklega um helgina, og
við það breytist afstaða þín til eins vinar þíns þó
nokkuö mikið. Tómstundir þínar verða margar,
og virðist þú kunna að nýta þér þær vel þessa
dagana. Peningalega verður vikan þér ekki hagstæð, en þú
þarft svo sem ekki að kvíða gjaldþroti þess vegna.
Fcskamerkið (20. feb.—20. marz): Það steðja að
þér miklar freistingar í vikunni. Líklegt er að þú
ía.lir í eina gildruna, og er vissulega leiðinlegt
til þess að vita — en þetta mun verða Þér dýr-
mæt reynsla. Það er eins og þú sért að verða
óeðlilega latur — kannski mætti fremur kalla þetta ófram-
færni. Hugsaðu þetta mál vandlega.
Stjörnuspáin gildir frá fimmtudegi (il fimmtudags.
f