Vikan - 10.01.1963, Qupperneq 51
DÓRI
Framh. af hls. 26.
kynni af ástinni úr bókum, og þar
voru allir elskhugar hetjur.
—- Reyndu að skilja þetta, sagði
vinkona mín alvarlega. Þetta hefði
aldrei blessazt. Fyrst mamma hans
var á móti því hefði ég ómögulega
getað gifzt honum. Og hugsaðu þér
barnabörnin, alsaklaus, að amma
þeirra hefði _ kannski aldrei viljað
líta á þau. Ég veit að ég sé eftir
Dóra, alla mína ævi og get aldrei
elskað annan mann. En maður verð-
ur nú að taka betta líf eins og það
er.
Nanna var mjög sorgbitin, það sá
ég vel. En mikið var hún sterk.
()g miklu skynsamari en mig hafði
grunað.
Ég skammaðist mín fyrir að hafa
grátið yfir þeim gulhærða, einu
sinni þegar ég var afbrýðisöm. Og
ég sem þekkti hann næstum ekkert.
Tíminn leið og læknaði sár fólks
í leiðinni.. .
Seinna um sumarið var Nanna
send til frændfólks síns í Danmörku,
og næsta vetur átti hún að fara á
húsmæðraskóla þar. Hún bar harm
sinn með mikilli stillingu. Engan
gat grunað_ að hún væri í mikilli
ástarsorg. Ég dáðist að henni.
Skömmu eftir að hún fór, datt mér
í_hug að líta inn til mömmu hennar.
Ég þekkti hana vel. Hún tók vel á
móti mér eins og venjulega, og við
sátum og röbbuðum saman yfir kaffi
í eldhúsinu. Hún sagði mér allt gott
af Nönnu, hún kunni mjög vel við
sig í Danmörku. Ég áræddi að
spyrja: — Heldurðu að hún sé búin
að jafna sig?
— Búin að jafna sig, hvað áttu
við?
Ó, ég á við það, að hún sá áreiðan-
lega mikið eftir Dóra, þó hún bæri
það vel.
— Um hvað ertu að tala, stúlka.
Hver er Dóri og hvað kemur hann
Nönnu við?
Mamma Nönnu var undrandi og
allt að því móðguð á svipinn. En
ég var ekki síður hissa. Því Nanna
hafði sagt mér að mamma hennar
og ég vissum einar um þetta, eins
og þa_ð gekk til.
— Ég meina auðvitað hann Dóra
á Njarðargötunni, og það að mamma
hans leyfði þeim ekki að giftast,
sagði ég, og dauðsá eftir að hafa
minnzt á þetta.
—• Þetta er tóm vitleysa, sem þú
talar, ég þekki hana Nönnu mína
það vel, að ég veit að hún hefði
sagt mér ef eitthvað þess háttar
hefði komið fyrir hana. Geturðu
kannski sagt mér einhver deili á
þessum Dóra og fólkinu hans?
Ég sagði henni allt, sem ég vissi,
heimilisfang, foreldra, stöðu o. s.
frv.
— Nei, heyrðu mig nú, næstum
hrópaði hún. — I þessu húsi, sem
þú nefndir, býr bróðir minn, með
konunni sinni og þfrem dætrum.
Aðra hvora ykkar Nönnu hefur ver-
ið að dreyma. Þetta er draumarugl.
Það er allt og sumt.
Svo varð hún mildari á svipinn,
brosti og sagði: — Hún Nanna mín
er ákaflega draumlynd. Unglingar
eru það oft. Það eldist af þeim ...
Ég hef ekki séð Nönnu í mörg ár,
og ég hugsa að ég væri búin að
gleyma henni fyrir löngu ef það
væri ekki vegna hans Dóra.
Því Dóra gleymi ég aldrei.
Hentugir réttir . . .
Framli. ai' bls. 20.
ÍTALSKUR OFNRÉTTUR.
2 meðalstórir laukar, 1 livit-
laukslauf, 2 matsk.. matarolía,
bolli kjötsósa, 3 bollar tómatsósa,
% bolli sveppir (ef þeir eru úr
dós á að nota vökvann líka), 2
matsk. persilja, 1 M> kg. kjöt úr læri,
bezt er svinakjöt, % tsk. salt, 14
tsk. pipar, 2 matsk. satatolía, 2
boltar lirísgrjón, 3—4 laukar, 3
græn piparbulstur, % tsk. salt.
Daginn áður er laukurinn og
hvítlaukurinn brúnaður í 2 matsk.
salatoliu, en hvítlaukurinn síðan
tekinn upp úr. Bætið kjötsósunni
við, sem ekki er höfð þykk, og
tómatsósunni með sveppunum. Lát-
ið sjóða við mjög litinn hita í u.
þ. 1). 1 klst. Skerið kjötið í frekar
þunnar sneiðar og kryddið með
salti og pipar og brúnið ])að síðan
i hinum 2 matsk.. af olíunni þar
til það er vel brúnt á báðum hlið-
um. Takið kjötið upp úr, hrærið
svolitlu af tómatsósunni saman við
feitina á pönnunni og hellið öllu
i liina sósuna. Leggið helming kjöt-
sneiðanna á botninn á eldföstu fati,
ofan á ])ær eru svo hrísgrjónin lögð
og helmingur sósunnar, siðan helm-
ingurinn af lauknum og svo það,
sem eftir er af kjötinu. Ofan á er
svo afgangurinn af lauknuni lagð-
ur og piparinn, sem hefur verið
skorinn í hringi, og síðan sósan
yfir allt. Geymið i ísskáp. Bakað
1 ofni i 1 % klukkutima áður en
það á að notast, en það verður að
vera lok yfir fatinu. Með þessu eru
l)orin löng brauð eða brauðrúllur:
BRAUÐRÚLLUR.
4 bollar hveiti, 8 tsk. lyftiduft,
2 tsk. salt, % bolli smjörlíki, 1%
bolli mjólk, 2 matsk. l)ráðið smjör,
¥j bolii grænn eða rauður pipar
og 2 bollar rifinn, sterkur ostur..
Saxið vel kalt smjörlíkið i hveit-
ið, þannig að molarnir verði á
stærð við grænar baunir, og bætið
mjólkinni í. Hnoðið og skiptið deig-
inu i tvennt og fletjið út í tvær
ferhyrndar kökur og penslið þær
með bráðnu smjörinu. Stráið fín-
söxuðum piparnum og ostinum of-
an á og rúllið saman eins og rúllu-
tertu. Skerið i rúml. 1 cm. þykkar
sneiðar og geymið í ísskápnum.
Bakið þær síðan siðást með ofn-
réttinum i 12—15 mínútur. Bornar
fram heitar.
RAFMAGNSELDAVÉLAR
MARGAR GERÐIR
25 ARA REINSLA
Eldavélasett til innbygging-
ar í ný eða gömul eldhús, 2
gerðir, einnig með glóðarrist
Verð frá kr. 7.090.00 settið
Ódýrasta eldavélin á
markaðnum
Gerð 4403-4 fáanlegar með
3 eða 4 hellum, glópípu
eða steyptum (heilum),
klukku og Ijósi, glóðarrist
og hitaskúffu.
Verð frá kr. 4.750.00
Gerð 2650 - 3
steyptar hellur,
auðveldar í hreins-
un, með bökunarofni
H.F. RAFTÆKJAVERKSMIÐJAN HAFNARFIRÐ
VIKAN 51