Vikan - 28.02.1963, Blaðsíða 24
í fyrra fór fram í Reykjavík
keppni um titilinn Ungfrú Norð-
urlönd 1962. í þeirri keppni
sigraði norsk stúlka, Rigmor
Trengereid.
Þessi mynd var tekin af henni
á ferðalagi austur í Ölfusi.
24 — VIKAN ». tbl.
Guðrún Bjarnadóttir, Ungfrú ís-
land 1962, var orðin vel þekkt
af myndum og frá tízkusýningum
áður en hún vann titilinn.
Guðrún
er nú búin að fara á vegum
fegurðarsamkeppninnar til
Beirút í Líbanon og Helsinki.
Nú í sumar mun hún fara á
Langasand í Kalifomíu.
HVER VERÐUR
UNGFRÚ ÍSLAND
1 963?
Á undanförnum árum liafa fegurðardrottn-
ingar okkar náð svo langt á alþjóðlegum vett-
vangi, að margir spyrja: Er það mögulegt að
við, svona fámenn þjóð getum lialdið áfram að
standa okkur eins og við höfum gert? Þessu er
auðvitað ekki gott að svara fram í timann, en
nú kemur bráðlega í ljós, hvort við fáum eitt
„stjörnuár“ til viðbótar. Satt að segja erum við
bjartsýnir. Nú hefur tilhögun keppninnar verið
breytt litilsháttar eins og áður hefur verið tek-
ið fram: Dómnefndin velur úr ábendingum þar
til hún hefur fundið sex stúlkur, sem liún telur
frambærilegar til úrslita. Af þessum sex stúlk-
um birtast svo myndir i Vikunni — sú fyrsta
kemur í næsta blaði — en lesendur Vikunnar
bjálpa dómnefndinni til að velja Ungfrú ísland
1963 og kjósa þá fegurstu af þessum sex. Mynd-
irnar i Vikunni verða með líku sniði og að
undanförnu, nema livað nú birtuin við mynd-
ir af þátttakendum á sundbol.
Glæsileg verðlaun bíða allra þeirra, sem í
úrslit komast. Þau éru eins og hér greinir:
1. verð!. Ferð til Kalifomíu og þátttaka i „Miss
Internationai" fegurðarsamkeppninni þar. Síður
kvöldkjóll. $ 100 skotsilfur. Einnig ferð um Miðjarðar-
haf með skemtiferðaskipinu Arkadia.
2. verðl. Ferð til Miami, Florida, og þátttaka í Miss
Universe fegurðarkeppninni. $ 100 skotsilfur. Einnig
ferð til Mallorca og þátttaka í fegurðarsamkeppni þar.
3. verðlaun. Ferð til Libanon og þátttaka í fegurðar-
samkeppninni þar.
4. verðlaun. Ferð til London og þátttaka í Miss
World keppninni.
5. verðliaun. Ferð til Norðurlanda og þátttaka í Miss
Norden keppninni.
6. verðiaun. Ferð til Norðurlanda og þátttaka í Miss
Scandinavia keppninni.
ENN E R HÆGT
að taka á móti ábendingum um þátttakendur. Þó
ekki lengur en út þessa viku. Athugið að mynd þarf
að fylgja ábendingunni svo og fullt nafn sendanda.
TILLAGA um þátttakanda í legurðarsamkeppninnl 1963.
Naín þátttakanda ..............................
Aldur ...... Heimilisfang .....................
Scndandi ......................................
Hcjmilisfang ................... simi .........