Vikan - 28.02.1963, Side 31
li
4
'bUPnar
Stjörnuspáin gildir frá fimmtudegi til fimmtudags.
Hrútsmerkið (21. marz—20. apríl): Þú lítur óvenju-
björtum augum á tilveruna þessa dagana, enda hef-
urðu vissulega ástæðu til. Gamall draumur rætist í
vikunni, og verður það til þess að þér finnst allt
leika i lyndi — enda er það svo. Vankunnátta þín á
vissu sviði verður til þess, að þú ferð að kynna þér umrætt
svið betur.
Nautsmerkið (21. apríl—21. mai): Þetta verður
Oerfið vika hvað alla vinnu snertir, en hún
verður líka ánægjuleg, ekki sízt fyrir kvenfólkið. Þú
færð skemmtilega hugmynd, sem þú skalt flýta þér
að hrinda i framkvæmd, áður en það verður um
seinan. Þú skuldar einhverjum bréf, og ef þú vilt ekki hljóta
verra af, skaltu skrifa strax.
Tvíburamerkið (22. maí—21. júni): Laugardag-
urinn verður langbezti dagur vikunnar, og muntu þá
komast að því, að góðvinur þinn býr yfir ýmsu, sem
þú hefur ekki komið auga á fyrr, og verður það til
þess, að samband ykkar verður enn nánara en fyrr.
Ef þú vinnur erfiðisvinnu, væri þér hollast að hvíla þig í eins og
einn dag.
Krabbamerkið (22. júní—23. júlí): Það ber tals-
vert á hirðuleysi í fari þínu þessa dagana,
jafnvel sóðaskap, og verður þú að bæta úr þessi hið
snarasta, enda er þetta, farið að vekja umtal meðal
kunningjanna. Þú verður aldeilis lánsamur eftir helg-
ina, og líklega verður þar um einhvern fjárgróða að ræða. Heilla-
litur bláleitt.
Ljónsmerkið (24. júli—24. ágúst): Þetta verð-
©ur vika mikilla freistinga, en líklega ert þú maður
til að standast þær allar — einkum ef þú ferð að ráð-
um ástvinar þíns. Amor verður mikið á ferðinni meðal
fólks yfir þrítugu. Eitthvað verður til að valda þér
vonbrigðum um helgina, en þetta er alls ekki eins slæmt og
virðist í fljótu bragði.
Meyjarmcrkið (24. ágúst—23. september): Þú eignast
Oannaðhvort nýtt áhugamál i vikunni eða sinnir ó-
venjumikið gömlu áhugamáli, og er gott til þess að
vita, og ekki ólíklegt að þú getir með þvi unnið þér
inn drjúgan aukaskilding. Þú færð undarlega hug-
mynd í kollinn í vikunni. Hugsaðu þig vandlega um, áður en
þú flanar að einhverju. Heillatala 6.
Vogarmcrkið (24. september—23. október): Þú munt
eiga afar annríkt í vikunni, en yfirleitt eru þetta
fremur geðþekk störf, svo að þér mun liða vel, ekki
sízt þegar öllu er lokið, enda muntu þá fara hressilega
út að skemmta þér, og átt þú sannarlega fyrir því.
dáh'tið eigingjam þessa dagana. Heillalitur rauðleitt
m
Þú virðist
eða bleikt.
Drekamerkið (24. október—23. nóv.): Þessi vika verður
fremur tilbreytingarlaus að sunnudeginum undanskild-
um, en þá gerist svo margt óvenjulegt, að leitim er
á öðm eins. Kvöldin verða allt að þvi öll eins, og
væri þér bezt að vera sem mest heima við, þvi að
utan heimilisins finnurðu litla afþreyingu. Talan 5 skiptir karl-
menn miklu.
Bogniannsmerkið (23. nóv.—21. des.): Kona, sem þekkir
þig litilsháttar, kemur mikið við sögu þína og verður
til þess, að þú tekur fréunförum á vissu sviði. Á vinnu-
stað gerist eitthvað, sem verður til þess að þér gefst
skemmtilegt tækifæri. Vinur þinn einn sýnir einhverja
öfund í þinn garð, en reyndu að láta sem þú taldr ekki eftir þvi.
Geitarmcrkið (22. des,—20. jan.): Þú virðist vera eitt-
hvað eirðarlaus þessa dagana, og veiztu vel sjálfur af
hverju það er. En allt bendir til þess, að nú fari að
blása byrlega, og virðist ástæða til bjartsýni. Konur
mega varast svolitið allt óhóf, einkum hvað snertir
drykk. Föstudagurinn býður upp á skemmtilegt ævintýri.
Vatnsberamerkið (21. jan —19. febr.): Þetta verður afar
skemmtileg vika, einkum fyrir unga fólkið. Líklega
ferð þú 1 skemmtilegt samkvæmi rétt fyrir helgina,
og þar muntu kynnast persónu, sem þér líkar mjög
vel við, svo að ekki sé meira sagt. Atburður frá í
fyrri viku endurtekur sig, en nú munt þú kunna að bregðast
rétt við. Heillatala 8.
©Fiskamerkið (20. febrúar—20. marz): Þetta verður
skemmtileg vika í alia staði, en hætt er þó við að þú
gerir of miklar kröfur til umhverfisins, og gæti það
orðið til þess að varpa einhverjum skugga á helgina.
Maður, sem þú hefur ekki umgengizt lengi, kemur
nú fram á sjónarsviðið og mun hafa talsverð áhrif á gerðir
þínar.
A
NÝR LITUR
NÝR ILMUR
NÝJAR UM-
BÚÐIR