Vikan - 05.09.1963, Side 19
HUS
FRÁ
GRUNNI
þriðji áfangi
Nú er mánuður liðinn siðan Vikan birti fyrstu myndirnar
af þessari húsbyggíngu og sex vikur siðan framkvæmdir
liófust. Alltaf hefur eittbvað verið að gerast og þó er að-
eins búið að steypa sökkla undir húsið þegar hér er kom-
ið sögu. í síðasta þætti var sem sagt búið að ganga frá
mótunum, en steypubílar liöfðu bilað hjá Steypustöðinni,
svo það varð töf. En ekki mjög lengi. Eftir nokkra daga
kom liver steypubíllinn af öðrum með lapþunna steypu,
sem rann auðveldlega eftir mótunum. Haukur Sævalds-
son, eigandi hússins tilvonandi, var einmitt í sumarleyfi
um þessar mundir og hjálpaði til að jafna steypunni um
mótin. Þarna hittum við sem snöggvast Einar Ágústsson,
byggingarmeistara. Hann hefur mörg ljús í smíðum og
fer á milli til eftirlits. Ilann kvartaði mjög yfir annríki
og sagði, að það hefði beinlínis verið neytt upp á sig liús-
byggingum svo liann sæi ekki út úr verkefnunum. Að-
spurður kvaðst Einar á þeirri skoðun, að mikið vantaði
uppá það að nægileg hagkvæmni væn böfð i byggingar-
iðnaðinum. Ilann kvaðst á þeirri skoðun, að nauðsyn-
legt væri að finna upp ibetri aðferðir. Hús ámóta og þetta
væru alltof dýr fokheld.
Svo var steypan i mótunum orðin nægilega hörð og
síðast, þegar við litum þar við, þá var verið að slá utan
af. Þar með hefur húsið fengið útlínur, sjálf undirstaðan
er komin, en mikið vantar uppá, að grunnurinn sé kom-
inn. En nú verður gengið i að ljúka við hann og frá því segj-
um við næst.
Svona lítur það út núna. Það er verið að slá utanaf sökklinum.
Einar Agústsson, byggingarmeistari. Hann er með mörg
hús í smíðum og á mjog ánnríkt. Hér fylgist hann með
því, þegar sökklarnir voru steyptir.
Steypubílnum er ekið upp að mótunum og steypan renn-
ur sjálfkrafa eftir mótunum.
Haukur Sævaldsson var við steypuna ásamt
syni sínum. Hér er Haukur að jafna í
mótunum.
VIKAN 36. tbl. —
19