Vikan


Vikan - 05.09.1963, Side 49

Vikan - 05.09.1963, Side 49
Olymp • Hér er hin vinsæla OLYMPTJS S ... 35 mm. • Framúrskarandi myndavél á hóflegu verði. • Útbúin öllum tæknilegum nýjungum. © Mjög ljósnæm, Olympus Zuiko, linsa, F I. 8=42 mm, sem gefur eggskarpar myndir við allar aðstæður! 9 Innbyggður Ijósmælir! © Sjálfvirk á allar hraðastillingar! INNFLYTJENDUR: ÍSALDA Sf. Pósthólf 1075, Reykjavík. LJÓSOP: 1.8 = 42 mm. • Vegna hinnar ljósnæmu linsu, þá getið þér tek- ið innimyndir, litmynd- ir eða svart-hvítar myndir, án þess að nota leifturljós (flash). VERÐ AÐEINS KR. 3.805,00. SÖLUUMBOÐ í REYKJAVÍK: HANS PETERSEN Bankastræti 4, sími 20313. sig, að ræstingakonan beið -enn eftir viðbrögðum hennar. Hún neyddi sjálfa sig til að vera sem rólegasta og leit svo upp. „Hvar — hvar funduð þér bréf- in? Ég hélt, að morgunpóstur- inn . . .“ Frú Stitt setti upp hneykslunar- svip. „Þessi bréf komu ekki með morgunpóstinum,“ sagði hún af- dráttarlaust. „Þau voru nefnilega í sorptunnunni. Ég þurfti að fara með dálítið af pappir út í tunn- una, og ef ég hefði ekki gægzt aðeins ofan í hana af tilviljun . .“ „í sorptunnunni?“ Blanche starði forviða á konuna. „En — eruð þér viss um það?“ Frú Stitt kinkaði kolli ákveðin, svo benti hún með þumalfingr- inum aftur fyrir sig. „Ég geri ráð fyrir, að hún hafi bara fleygt þeim.“ Frú Stitt hafði frá upp- hafi liaft svo mikla óbeit á Jane, að hún neitaði alltaf að nefna hana mcð nafni. „Ég held því ekki fram, að ég hafi raunveru- lega séð hana gera það, ég segi það ekki.“ „En hvar . . .?“ „Þau voru send hingað frá sjónvarpsstöðinni, sem sýnir myndirnar yðar. Stórt umslag sem þau voru send i, var þar líka.“ Blanche bandaði frá sér, eins og hún væri alveg ruglnð. „Jane lilýtur að hafa fleygt þeim óvart. Hafi merki sjónvarpsstöðvarinn- ar verið á umslaginu, liefur hún líklega haldið, að þetta væri ein- hvers konar auglýsing . . .“ Frú Stitt hristi höfuðið þrjózku- lega. „Það var þegar búið að opna umslagið — og þetta bréf þarna var ei'st og auk þess ...“ Hún hikaði og leit flóttalega til dyranna, sem stóðu opnar. „Auk þess . . . ?“ hafði Blanclie eftir henni. Frú Stitt seildist ofan i stóran vasann á svuntunni sinni og tók þar upp stórt, brúnt umslag. Hún rétti Blanche það eftir andartaks hik. „Ég býst við, að það geri ekki til, þótt þér sjáið þetta .. Blanche tók umslagið. í efra horninu til vinstri var nafn og merki sjónvarpsstöðvarinnar. í miðju var hvítt blað með nafni hennar og heimilisfangi, sem límt hafði verið á umslagið. Að öðru leyti virtist ekkert merki- legt við umslagið. „Lítið á bakhliðina,“ sagði frú Stitt dauflegri röddu og leit um leið undan. „Snúið þvi við.“ Það fór hræðsluhrollur um Blanclie, þegar hún sneri um- slaginu við. Orðið virtist stökkva framan í hana reiðilegt, ljótt, viðbjóðslegt, krotað með miklum ofsa og hatri, og blýantsoddurinn hafði á nokkrum stöðum gengið gegnum umslagið og rifið það. Blanche sneri umslaginu við aftur og þrýsti þvi í kjöltu sér, eins og hún ætlaði með þvi að kremja orðið og gera það að engu. Um leið og frú Stitl leit á hana, dró liún hendurnar stirðlega yfir svuntuna sína. „Mér þykir þetta leitt,“ sagði hún, og það var einhver iðrun í röddinni. „Ég býst við, að ég hefði ekki átt að sýna yður þetta. Það veit heilög hamingjan, að ég vil ekki koma neinu illu af stað, en ...“ Blanche lyfti annarri hendinni. „Það gerir ekkert til.“ Henni varð ósjálfrátt litið til opinna dyr- anna. „Ég held annars, að ...“ Frú Stitt rétti höndina fram snögglega. „Hérna, ég skal taka vjð því og fleygja því.“ Hún tók umslagið af kjöltu Blanclie, braut það saman nokkrum sinnum og stakk því í svuntuvasa sinn. „Ungfrú Blance,“ sagði hún og rödd hennar bar vott um um- hyggju hennar, „ég veit, að það er ekki ástæða til að vera að hleypa sér upp út af þessu. En það er bara ekki eðlilegt, að neinn geri annað eins og þetta — að minnsta kosti ekki lcona á henn- ar aldri -— og svo ætlar hún að fara að byrja venjulegu vitley's- una enn einu sinni...“ Blance leit undan, svo að frú Stitt sæi ekki í augu liennar og kæmi þar auga á hræðsluna, sem hafði allt í einu kviknað í sálu hennar. Jane er systir mín, sagði hún ströng við sjálfa sig, liún hefur hjúkrað mér og verndað mig öll þessi ár. Það minnsta, scm ég get gert er að reyna að skilja hana. Hún er systir mín ... Það getur svo sem vel verið, að hún sé systir þín, góða mín, þitt eigið hold og blóð, en þú verð- ur að láta þér skiljast, að djúpt í sálu sinni hatar hún þig cins og versta eitur, og ekkert mundi gleðja hana meira en ef þú yrðir fyrir stórkostlegu áfalli. Orðin bergmáluðu allt i einu í huga hennar frá löngu, löngu liðnum árum. Það var Martin Stagg, sem sagði þau við hana. Hún hafði verið að vinna við kvikmynd, og hann liafði beðið hana að koma til skrifstofu sinn- ar... Eg veit, að það er erfitt fyrir þig að viðurkenna þetta fyrir sjálfri þér, en Jane er svo örvita af afbrýðisemi, að hún veit ekki hvað hún gerir................. Marty hafði verið framleið- andi myndarinnar, stór, einlægur maður, hjartagóður og skilnings- rikur, og það var næstum óhugn- anlegt, hvað hann var næmur á kvikmyndir og það fólk, sem kom fram í þeim. Þegar einliver leikara Martys var í vanda, var hann alltaf boðinn og búinn til að hlaupa undir bagga. Hvers vegna heldur þú, að hún drekki sig alltaf svona fulla ... VIKAN 36. tbl. —

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.