Vikan - 14.11.1963, Page 3
Útgefandi Hilmir h. í.
Ritstjóri: ,
Gisli Sigrurðsson (ábm.).
Auglýsingastjóri:
Jóna Sigurjónsdóttir.
Blaðamenn:
Guðmundur Karisson og
Sigurður Hreiðar.
Útlitstcikning:
Snorri Friðriksson.
Ritstjóm og auglýsingar: Skipholt 33.
Simar: 35320, 35321, 35322, 35323.
Pósthólf 149. Afgreiðsla og dreifing:
Blaðadreiling, Laugavegi 133, sími
36720. Dreifingarstjóri Óskar Karlsson.
Verð I lausasölu kr. 20. Áskriftarverð
er 250 kr. ársþriðjungslega, greiðist
fyrirfram. Prentun Hilmir h. f. Mynda-
mót: Rafgraf h. f.
í NÆSTA BLAÐI
HJÁ PÁLI í ÍSÓLFSSKÁLA.
VIKAN heimsækir Pál ísólfsson í ísólfsskála
á Stokkseyri.
ÍBENIIOLTSREKK JAN.
Skemmtileg smásaga um gamalt og sér-
kennilegt rúm.
FUGLARNIR.
Þriðji og síðasti hluti þessarar einstæðu
sögu eftir Daphne de Maurier, sem Hitchcock
hefur gert samnefnda kvikmynd eftir.
SETIÐ YFIR SÁLARSTRÍÐI.
S. H. skrifar hugleiðingar um prófyfirsetu.
í HEIMSÓKN IIJÁ OLEG CASSINI.
Rúna Brynjólfs ræðir við tízkukonung
New York.
UNGT FÓLK Á UPPLEIÐ.
VIKAN kynnir þrjá unga athafnamenn.
Framhaldssögurnar TILHUGALÍF og HVAÐ
KOM FYRIR BABY JANE? Ilúmor, kross-
gáta, stjörnuspá og margt fleira.
í ÞESSARI Vmil
Gaddavír og njóli á ströndinni
góðu.
Þetta er fyrsta greinin um ferðamannastaði í
nágrenni Reykjavíkur, og fjallar hún um Laugar-
vatn, en fáir staðir hafa jafn mikið af
ágætum frá náttúrunnar hendi. Enn er sá staður
ónuminn að mestu, en hér er bent á ýmislegt,
sem hlýtur að koma á Laugarvatni áður en
langt um líður.
Ilt með Ueim útvalda
I»að hefur stundum verið kvartað yfir því af þeim, sem telja sig kunna mannasiði, að við
séum enn reikul í ráði í framkomu og fögrum siðum. Nú er komin út bók, sem einkum
er ætluð ungum stúlkum — líklega þó ekki vegna þess að þær séu taldar á tæpari stigu,
hvað þetta snertir en hið sterkara kynið. En þar eru ýmis hollræði um framkomu, mcðal
annars kafli um það, hvernig ber að haga sér, þegar farið er út með þeim útvalda.
Það er gripið niður í þennan kafla hér.
Lágspenna - Lífshætta.
Um þetta leyti kemur út bók eftir Guðinund
Karlsson, blaðamann VIKUNNAR, og nefnist hún
í björtu báli. Og það er ekki að ftirða,
því Guðmundur var slökkviliðsmaður, áður en
hann komst að því, að hann gæti skrifað,
og gerðist blaðamaður. í björtu báli fjallar um
eldsvoðann mikla í Reykjavík 1915 og kemur
víða við.
Þeir amerísku módel 1964.
Þeir eru bæði freistandi og dýrir, sterklegir og
elegant í senn, því amerískir vita sannarlega hvað
þeir syngja í bílasmíði. Nú eru nýju módelin
mjög á dagskrá, betri og fegurri en nokkru
sinni áður og við segjum frá þeim helztu í máli
og myndum.
CADOÍ D A U Nú hafa bílaverksmiðjurnar og bílaumboðin um allan
| U II O I li M R heim hafið sitt árlega kapphiaup um hylli viðskipta-
vina. 1964 módelin eru þegar komin í umferð, enda
þótt aðcins sárafáar gerðir hafi enn sézt hér. Það þarf auðvitað varla að taka
það fram, að nýju bílarnir eru búnir rneiri tæknilegum ágætum en nokkru
sinni fyrr. Við tökum hér fyrir amerísku bílana og segjum frá þeim inni í blaðinu.
VIKAN 46. tbl. — g