Vikan


Vikan - 14.11.1963, Blaðsíða 27

Vikan - 14.11.1963, Blaðsíða 27
GLÆÐUR OG EIMYRJA ÞEYTTUST í ALLAR ÁTTIR, OG SPÝTNABRAK SVEIF I LOFTINU YFIR ROSTUNUM „Þeir voru ekki komnir nema nokkra metra í burtu, þegar þeir heyrðu ógurlega skruðninga fyrir aftan sig.‘ „Hvað ertu að gera?“ spurði maðurinn. „Bíða eftir vatninu“, svaraði hinn. „Hvað ætlarðu að gera við það?“ „Sprauta". „Ertu búinn að bíða Iengi?“ „Já. Heldurðu að vatnið fari ekki að koma?“ „Jú, mikil ósköp. B;ddu bara áfram“, og svo hélt slökkviliðsmaðurinn áfram rólegur, því hann vissi að þessi maður mundi ekki „gera neina fígúru“ með vatninu. Það var engin slanga tengd við stútinn! En þetta voru aðeins örfáar undantekningar. Flestir voru hæstánægðir með að geta sníkt sér heitan molasopa einhversstaðar út um glugga eða inni í eldhúsi, og margir voru alls ekki svo heppnir að komast í jafnvel það. Það var nóg að gera, þótt bálið væri að mestu búið, því allsstaðar logaði í rústunum, og ekki mátti hætta, fyr en allt var orðið dautt, en það vissu menn, að gat tekið fleiri daga. Það vita aliir slökkviliðsmenn, að varla er nokkurt starf leiðinlegra til í þeirra atvinnu, en að „ganga frá“, „kæla niður“ og „vakta". Þá fyrst fer þreytan eftir hamaganginn og áreynsl- una við sjálft slökkvistarfið að segja til sín, og þá koma eftirköstin fram. Menn fara að finna illa til þess, hve blautir og óhreinir þeir eru, meiðsli og skrámur koma í ljós, kuldinn fer að segja til s'n, því að þá er erfiðara að halda á sér hita, áhuginn dvínar, og hungur og þorsti fara að naga meltingarfærin. Þá verða menn að ganga fram og til baka í hálf- eða albrunnum rústum, gramsa í rusli og óhreinindum til að leita að leyndum glæðum, allskonar ólykt af brunnum efnum stígur upp úr draslinu, þægilegur hitinn af eldinum er horf- inn, kaldur gustur smýgur um göt og rifur í hálfbrunnum rústum, og ískalt og óhreint vatn- ið lekur ofan á mann hvarvetna og seitlar nið- ur um hálsmálið langt niður á bak. Spennan er horfin, og enginn hefur lengur áhuga fyrir starfinu. Kunningjar og samstarfs- menn eru margir farnir heim til að hafa fata- skipti hlýja sér og fá sér í svanginn, og mað- ur öfundar þá annað veifið. Aðrir eru farnir að sinna sínum daglegu störfum, hitta fólk og skiptast á fréttum um brunann, en sjálfur er maður fastbundinn lengst inni í andstyggilegum og lyktandi rústum, eins og ormur í mykjuhaug, og getur varla komizt í sinn eigin vasa til að ná sér í neíið. En þetta starf þarf að vinna, og enginn getur skorazt undan því. Það tilheyrir atvinnugrein- Framhald á bls. 46. VIKAN 46. tbl. 27

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.