Vikan


Vikan - 14.11.1963, Blaðsíða 45

Vikan - 14.11.1963, Blaðsíða 45
HVERNIG DÆMIR ÞÚ? BOLSTRUNIN VAR DÝRKEYPT Jón Jónsson og Bentborg áttu þrjá blóstraða stóla og einn sófa frá fyrstu hjúskaparárum sínum. Var áklæðið orðið gaml- að og snjáð. Til að bæta úr þessu keypti Jón nýtt áklæði í heildsölu. Næst fékk hann Tobías Ólafsson, húsgagnabólstrara, til að koma heim til sín og líta á áðurnefnd húsgögn í þeimí tilgangi að segja tii um, hvað kosta myndi að setja áklæðið á húsmunina. Eftir að Tobías hafði litið á húsgögnin, sagði hann, að trúlega myndi þetta verk kosta kr. 2.500,00—3.000.00 kr. í uphæð þessari væri þá innifalið andvirði aukaefnis, er til verksins þyrfti. Tobías sagði, að mikið annríki vær á vinnustofu sinni um þetta leyti og því heppilegra fyrir Jón að koma mununum til sín eftir 2—3 mánuði. Að þessum tíma liðnum fór Jón með stólana og sófann á vinnustofu Tobíasar. Þar var skipt um áklæði á húsmunum þessum. Óumdeilt er, að það verk hafði verið fljótt og vel af hendi leyst. Sótti Jón munina til Tobíasar og ók þeim heim til sín. Var hann glaður yfir lausn þessa máls. Nokkru síðar sendi Tobías Jóni reikning fyrir verk þetta að fjárhæð kr. 5.875.50. Brást Jón þá hinn versti við og kvaðst aldrei myndi borga reikninginn. Krafa Tobíusar væri tilbún- ingur einn og handahófskennd tilraun til fjársvika og okur- starfsemi. Hann sagði, að Tobías hefði tjáð sér, að verkið myndi kosta 2.500—3.000 krónur, en engar verðhækkanir hafi átt sér stað frá þeim tíma, að Tobías tilgreindi verð þetta, þar til verkið var unnið. Tobías sagði, að það væri út af fyrir sig rétt, að hann hefði gert framangreinda áætlun. Hann lagði áherzlu á, að hér hefði aðeins verið um áætlun að ræða, en ekki samning milli sín og Jóns. f ljós hefði hins vegar komið, að verkið hefði reynzt miku tímafrekara, en hann hefði að óreyndu hugað. Til rökstunðnings kröfu sinni lagði Tobías fram sundurlið- aðar nótur fyrir vinnu og efni, sem farið hafði til verksins. Þar sem Jón var ófáanlegur til að borga reikninginn, stefndi Tobías honum fyrir dóm til að fá skorið úr þessum ágreiningi. Spurning Vikunnar: HVERJAR VERÐA LYKTIR MÁLSINS? Svar er á bls- 48. aðir stofumennirnir, mætta hjá yfirvöldunum; þeir mundu finna lausn á vandamálunum. Þetta var ekki verkefni stjórnarinnar og allra starfsmannanna kring- um hana — þeir mundu bara fylgja fyrirmælum vísindamann- anna. „Þeir verða að vera tillitslaus- ir,“ hugsaði hann. „Þar sem á- standið er verst, verða þeir að fórna mörgum mannslífum, ef þeir nota gas. Skepnunum líka, og jarðveginum — þetta verður allt gegnsýrt. Þetta gengur allt, ef enginn tryllist af hræðslu. Það verða aðalvandræðin. Fólk fær æði og sleppir sér. Það var rétt hjá útvarpinu, að vara fólk við því.“ Allt var kyrrt uppi í svefn- herbergjunum. Ekkert klór eða högg á gluggunum. Stund á milli stríða. Verið að endurskipuleggja liðið. Var það ekki orðað þannig í tilkynningunum hér áður fyrr? Rokið hafði samt ekkert minnk- að, hann gat heyrt hvininn x skorsteininum. Sjávardrunurn- ar? Þá mundi hann’eftir sjávar- föllunum. Það vani fjara núna. Var þetta hlé ef til vill þess vegna? Fuglarnir fylgdu ein- hverju dularfullu lögmáli, sem að einhverju leyti fylgdi austan- rokinu og sjávarföllunum. Hann leit á klukkuna. Hún var að verða átta. Það hlaut að hafa verið háflóð fyrir klukkutíma. Þetta var sjálfsagt Skýringin á hléinu; fuglarnir lögðu til at- lögu með flóði. Það gat verið, að þessu væri ekki þannig farið inni í landinu, þótt það virtist fylgja því hér við sjávarsíðuna. Hann reiknaði í skyndi í hugan- um. Þau gátu reiknað með sex tímum án árásar. Þegar sjávar- föllin breyttust aftur, um tutt- ugu mínútur yfir eitt í nótt, mundu fuglarnir koma aftur . .. Það var tvennt, sem hann gat gert. Það fyrra var að hvíla sig, með börnunum og konunni, reyna að fá þann svefn, sem hægt var á þessum fáu stundum. Hitt var að fara út á búgarðinn og sjá hvernig þau hefðu það þar, og hvort síminn væri þar enn í sambandi, svo að einhverj- ar fréttir væri að fá. Hann kallaði lágt á konuna sína, sem hafði svæft börnin. Hún kom upp í hálfan stigann og hann hvíslaði þessu að henni. ,,Þú mátt ekki fara,“ sagði hún strax, „þú getur ekki farið og skilið mig eftir eina með börnin. Ég treysti mér ekki til þess.“ Rödd hennar varð hás af hræðslu og hann þaggaði niður í henni og reyndi að róa hana. „Allt í lagi,“ sagði hann, „vertu róleg, ég skal ekki fara fyrr en á morgun. Þá getum við líka heyrt fréttirnar klukkan sjö. En á morgun, þegar næst verður fjara, fer ég út á bú- garðinn. Við getum sjálfsagt fengið þar brauð og kartöflur, og mjóik líka.“ Hugur hans var aftur fullur af ráðagerðum til þess að bjarga heimili sínu úr þessum ógöng- um. Auðvitað höfðu þau ekki mjólkað þetta kvöld. Kýrnar stæðu sjálfsagt í húsagarðinúm, eða biðu við hliðið, meðan fólkið væri innanhúss, þar sem hlerar hefðu verið negldir fyrir alla glugga, eins og hér hjá honum. Það er að segja, ef þau heiðu þá gefið sér tíma tii að gera þær varúðarráðstafanir. Það yrði ekkert úr veiðiferð í kvöld hjá þeim. Börnin sváfu. Konan hans var enn á fótum og sat á dýnunni sinni. Hún horfði angistaraugum á hann. „Hvað ætlarðu að gera?“ hvíslaði hún. Hann hristi höfuðið til að fá hana til að þegja. Hægt, en á- kveðið, opnaði hann bakdyxmar og horfði út. Niðurlag í næsta blaði. ÚT MEÐ ÞEIM ÚT- VALDA. Framhald af bls. 11. Leggið handtösku og hahzka saman á ónotaðan stól við borð- ið, í gluggakistu eða á neðri borð- plötu, en ef enginn þessara.staða er tiltækur, leggið þá hvort- tveggja í keltu yðar og munn- þurkuna þar ofan á. Þér eigið ekki að brjóta munn- þurrkuna saman að aflokinni UNGFRU YNDISFRIÐ býður yðui- hið landsþekkta konfekt frá N Ó A. HVAR ER ÖRKIN HANS NOA? l»a« er alltaf sami lcikurinn f hcnnl Ynd- isfríð okkar. Hún hcfur falið örkina hans Nóa einhvers staðar í blaðinu og heitlr góðum verðiaunum. handa þeim, sem getur fundið örkinii. VerWunin eru stór kon- fektkassi, fullur af bezta konfekti, og framleiðandiiin er auðvitað Saclgætisgcrð- in Nóio Nafn Heimili Örkin er á bls. Síðast cr dregið var hlaut yerðlaunln: Elín Þórðardóttir, Eystri-Norðurgarði, Vestm. Vinninganna má vitja á skrifstofu Vikunnar. VIKAN 46. tbl. — 45

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.