Vikan - 14.11.1963, Qupperneq 8
Gadcflavír
• • • • Og nfóli
skírast við laugina helgu, ó-
snortin, grýtt og eyðileg. Kring-
um hverinn eru myndarlegar
gaddavírsgirðingar og njóli.
Austar eru brotnir bakkar og
grýttir, lítil bryggja og nokkrir
bátar. Tjaldstæðið austan við
Laugarvatn hefur orðið illa úti af
völdum skriðunnar, sem losnaði
úr hlíðinni fyrir skömmu. Auk
þess færist byggðin austur á
bóginn og hefur þrengt að því.
Það má heita úr sögunni. Ég
kom líka að Laugarvatni á
sunnudegi snemma í september,
en þá var ekki hægt að fá
benzín þar og sölubúð Kaupfé-
lags Árnesinga var lokuð.
Þrátt fyrir staksteina, njóla og
gaddavír var yndislegt niðri á
strönd vatnsins. Laugardals-
fjöllin stóðu á höfði austur á
vatnsfletinum og gufan steig ró-
lega upp frá hvernum. Það var
slangur af ferðafólki á stjái, en
það var dálítið eirðarlaust í
fasi, líkt og það hefði ekki nóg
við að vera.
Strönd Laugarvatns gæti orð-
ið íslenzk ferðamannaparadís.
Hún bíður aðeins dugandi handa
framsýnna og fjáðra aðila. Það
getur hver glópur séð:, hvað það
er hróplega lítið gert fyrir þann
stað. Síðan vegur kom um
Laugarvatnsvelli, hefur umferð
ferðafólks stóraukizt á Laugar-
vatni. Það er mátulegur sunnu-
dagsakstur þangað úr Reykjavík.
Mátulegt að fara þangað eftir
hádegið og fá sér eftirmiðdags-
kaffi. Það er heldur engin á-
stæða til þess, að ferðamanna-
straumur að Laugarvatni sé
bundinn við tvo eða þrjá mán-
uði ársins. Með því að halda
réttilega á spilunum, mætti hafa
talsverðan ferðamannastraum á
Laugarvatni allt árið um kring.
Sumum þætti það ef til vill ekki
æskilegt meðan verið er að troða
fróðleik í unglinga; það kynni að
trufla þá. En mannfjöldinn á
Laugarvatni um skólatímann er
nú orðinn slíkur, að vandséð er
að frekari truflun geti orðið.
Það er oft talað um það sem
Eitthvað á þessa leið gæti strönd
Laugarvatns litið út, þegar búið er að
ryðja burt gömlu kofunum, sem þar standa
og byggja upp að nýju. Lengst til hægrl er
gildaskáli, byggður að nokkru leytl á súlum út í
vatnið. f miðið er ný bygging yfir gufubaðið, ásamt
búningsklefum fyrir baðströndina, útlsundlaug og
gufubað. Auk þess skjólgott sólbaðsdekk. Volga vatnið er
lokað inni uppi við ströndina. Byggingin Iengst til vinstri er fyr-
ir alls konar innanhússsport, svo sem badminton, tennis og bow-
llng. Lengra til vinstri frá húsinu: Úti-tennisvellir og mini golf.