Vikan - 19.03.1964, Qupperneq 14
'
!í.-: í-ííí
'
V ' *
Íilli,/-
■' J
í\
V
Wmm
lÉlÍllf
;
oaSiMÍM /-:■■•:;■.■
I stórborg 21.
aldarinnar
Sú París, sem verður undir Signu, nær yfir 15 km svæði,.
frá Charenton að Biltancourt-eyju. Þar verða 14 hæðir
niður og á þeim hafa bækistöð þjónustufyrirtæki þessarar
10 millj. íbúa borgar. Til að byrja með verður dýpt Signu
sjálfrar takmörkuð við 3 m, en það vatnsmagn nægir
fyrir skipaumferð um fljótið. Umframvatnið (ef hækkar
í ánni) taka 16 geysistór ræsi, sem komið er fyrir undir
neðstu hæðinni og neðanjarðarborginni. Loftræstingartæki
(lengst til hægri), í sambandi við aðalloftræstingarkerfi
borgarinnar, mun sjá um að loft í göngunum endurnýist.
Meðfram endilangri neðanfljótsborginni liggja hraðbraut-
ir fyrir bíla (á fjórðu og níundu hæð) með 9 hliðarbraut-
um, til að taka fljótt við umferðinni að aðalstöðum í París
og út í sveitirnar (lengst til vinstri norðaustur úr borg-
inni og lengst til hægri út á Orlyflugvöll). Þrjár efstu
hæðimar verða uppteknar af aðaljárnbrautarstöðinni (sem
tengir París öllum stöðvum Evrópu) og neðanjarðarlestir
borgarinnar sjálfrar. Frá níundu að 12. hæð verða geysi-
stór bílastæði fyrir millijón bíla og aðkeyrsla að þeim. Á
stríðstímum mætti breyta þessum bílastæðum í atómvarn-
arbyrgi fyrir 3 milljónir manna. Stóra svæðið í miðjunni,
sem nær yfir 6 hæðir, verður Champs-Elysées eða aðal-
gata borgarinnar árið 2000. Þar verða stærstu kvikmynda-
húsin, fínustu veitingahúsin, bankar, lúxusvöruhúsin og
garðar með gosbrunnum. Sjöunda, áttunda og níunda hæð
til hægri verða notaðar fyrir dýrmætustu safngripina úr
Louvre safninu (við endann á stiganum er Victoire de
Samothrake), á hæðunum fyrir ofan til hægri verður
komið fyrir áheyrendasal fyrir Sorbonneháskóla og lengst
til vinstri ( á fyrstu og annarri hæð) lestrarsölum lands-
bókasafnsins. Iþróttasalir (sundlaugar og tennisvellir
o.s.frv.) verða í nánd við Champs Elysées neðanjarðar.
Og að lokum munu tvær neðstu hæðirnar í þessu neðan-
jarðarhýsi í nýju París hýsa aðalstöðvar varnarmála, og á
neðstu hæðinni er hraðbraut fyrir herinn, eingöngu ætluð
umferð herflutningatækja. Upp undir beru lofti verða Signu-
bakkar, eftir að þeir eru lausir við bílaumferðina, þannig
orðnir glæsilegar göngubrautir. Hinir 300 m háu turnar,
sem Paul Maymont hefur ímyndað sér, mynda efri línu
rammans um borgina og fara vel við þau minnismerki
sem fyrir eru í París.
Fljótandi Tokyo var fyrsta viðfangs-
efni Maymonts. Þar hvíldu turnar
á loftdýnu, sem dregur úr áhrifum
af hinum tíðu jarðskjálftum. Hver
turn er tengdur hinum með hengi-
brúm og fljótandi hraðbrautum. Til-
búnir hafnarbakkar munu gera
Tokyo að stærstu hafnraborg Aust-
urlanda, enda væri hægt að bæta
óendanlega við þá. Myndin t. v.
Maymont hefur komið forsetahöll-
inni fyrir í Montesson. Hún verður
hringlaga og fljótandi. Aðkoman um
hengibrú, en skemmtibátar úr hin-
um litla flota forsetans geta siglt
inn í miðja höllina, þar sem gerður
hefur verið töfragarður við vatnið
úr Signu. Þegar forsetinn er heima
er dregin upp svífandi höggmynd
í fánalitunum þremur. O
_ VIKAN 12. tbi.