Vikan


Vikan - 19.03.1964, Blaðsíða 47

Vikan - 19.03.1964, Blaðsíða 47
Peggy var að koma úr áttinni frá Chez Bérénice tveimur eða þremur mínútum fyrir tólf þeg- ar Carlo gekk til hennar á gang- stéttinni. Hann skælbrosti til hennar. — Góðan dag, mademoiselle, sagði hann. Peggy starði beint fram fyrir sig og greikkaði sporið. Carlo sagði: — Mademoiselle er ein, hvers vegna er hún þá að flýta sér svona? Peggy hélt enn áfram. — Mademoiselle ætti ekki að vera ein, það er svo mikill urm- ull af rebbum hérna á strönd- inni. Peggy leit til hans og sagði skýrt og greinilega: — Snautið þér burt. Carlo sagði: — Þess vegna vil ég taka það að mér að vernda mademoiselle. Fylgja henni, er það ekki? Mætti ég kynna mig, ég heiti Aluigi. Peggy sagði: — Mér er sama hvað þér heitið. Þér skuluð held- ur angra einhverja aðra. Carlo gafst ekki upp. — Aha, nú skil ég. —■ Þér skiljið alls ekki neitt. ■— Við skulum þá fara að öllu með gát, það liggur ekkert á. Fyrst skulum við ganga niður að ströndinni. Við komum. Við setjumst. Við kynnum okkur. Peggy snarstanzaði. — Heyr- ið þér nú, sagði hún. — Ef þér látið mig ekki í friði undir eins, kalla ég á lögregluþjón. Carlo leit upp og niður breið- götunua og setti upp rannsak- andi svip. — En svona er þetta alltaf, sagði hann. — Þegar mað- ur þarf á lögregluþjóni að halda, þá eru þeir hvergi nærri. Peggy sagði: — Jæja, ef þér haldið áfram að elta mig þá — geri ég eitthvað, og rétt í því ók Julian upp að gangstéttinni. Hann stökk út úr bílnum. Hann sagði: — Hvað gengur hér á? Miss Browning, er þessi náungi eitthvað að angra yður? Peggy sagði: — Já, Soames, það er hann. Julian sneri sér að Carlo. — Jæja góði, sagði hann. — Þú heyrðir hvað hún sagði. Burtu með þig. Carlo sagði: — En Monsieur skilur ekki, ég er ekki búinn að gera henni neitt mein. — Það skiptir engu, ég vil ekki sjá yður. Burtu með yður, eða þér skuluð hafa verra af. Peggy sagði: — Soames, það er óþarfi að gera svona mikið veður út af þessu. — Inn í bílinn, Peggy, sagði Julian, ég kem undir eins. Og við Carlo: —• Þú heyrðir hvað ég sagði, góði. Af stað með þig, eða ég fleygi þér út á götuna. Peggy sagði úr bílnum: — Soames! í guðanna bænum kom- ið þér Julian sagði lágt við Carlo: —- 15350 hann ir nf brnytf... tilvalin tœkifœrisgjiif NVl pen SKÓLAPENNINN Reynslan sannar, að PENOL skólapenninn er óreið- anlegasti skólapenninn, sem nú er völ ó. Hann er einkar sterkur, og nýja blekkerfið tryggir, að blekið þornar ekki, þótt penninn liggi ónotaður. Hann tekur við sér um leið og hann snertir pappír- inn — ómetanlegur kostur í daglegri notkun. ^ PENOL sjálfblekungurinn er framleiddur með hinum eftirsótta, sveigjanlega penna. PENOL sjáifblekungurinn er með nýju biek- kerfi - PENOL-EVERSHARP. PENOL sjálfblekungurinn er framleiddur úr óbrjótanlegu undraefni: „DELRIN". PENOL sjálfblekungurinn er þægilegur í hendi, fallegur í útliti og viðurkenndur af skriftarkennurum. PENOL sjálfblck- ungurinn er með Parker Quink blekfyllingu. Það er ávallt bezt að skrifa með sjálfblekungi. Kaupið því PENOL sjálfblekunginn strax í dag. Hann kostar 153,50 með Parker Quink blekfyllingu, og fæst í öllum bókaverzlunum Innkaupa- sambands bóksala.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.