Vikan


Vikan - 19.03.1964, Blaðsíða 18

Vikan - 19.03.1964, Blaðsíða 18
Naumur sigur en sífellt vaxandi fylgi Hér segir frá kosningabaráttu Kennedys viö forsetakjöriö og af- rekum hans, meðlæti og mótlæti í þeirri ábyrgðarstöðu, sem for- setaembætti Bandaríkjanna er. Flestum ber saman um, að and- staðan gegn hugmyndum hans hafi farið sífellt minnkandi. Margt virtist mæla á móti því að John F. Kennedy gæti orðið forseti Bandaríkjanna, árið 1960. Af mörgum var hann talinn of ungur, aðeins 42 ára, þegar hann bauð sig fram, reynsla hans var ekki talin nægileg né þroski hans fullnægjandi. Menn bentu einnig á að hann væri kaþólskrar trúar. Það var nefnilega skoðun fjölmargra Bandaríkjamanna að páfinn í Róm fengi íhlutunarrétt um málefni Bandaríkjanna ef kaþólikki settist í for- setastól. Þá var afstaða hans eða öllu heldur aðgerða- leysi gagnvart McCarthy þyrnir í augum margra frjáls- lyndra manna. Demokratar áttu sín svör við þessu. Þeir bentu á þá staðreynd að ýmsir af helztu leiðtogum Bandaríkjanna á árum frelsisbaráttu og fyrstu sjálfstæðisára þeirra hefðu verið á sama aldri og Kennedy var nú. Þá gátu þeir bent á þá staðreynd að Nixon og Kennedy höfðu byrjað samtímis í fulltrúadeild Bandaríkjaþings. Sjálf- ur svaraði Kennedy þeim sem óttuðust íhlutun páfa, með þeim ummælum að hann myndi aðeins virða stjórn- arskró Bandaríkjanna, en vísa öllum utanaðkomandi tilraunum til að hafa áhrif á gerðir sínar, á bug. Loks var bent á að Kenndy hafði tekið afstöðu gegn McCarty þótt ekki fengi hann tækifæri til að taka þátt í atkvæða- greiðslu um málefni þessa alræmda þingmanns, vegna sjúkrahússvistar. Mörg og sterk öfl í Bandaríkjunum reyndu að koma í veg fyrir að Kennedy tækist að sigra á flokksþingi demokrata í Los Angeles, 1960. Þessi öfl höfðu sérstakra hagsmuna að gæta og áttu lengi það eitt sameiginlegt að vinna gegn Kennedy. Honum tókst að sigrast á and- stöðu þeirra, þrátt fyrir að því er virtist, óyfirstígan- lega örðugleika. Þegar á flokksþingið kom var Kennedy, þegar frá leið, ósigrandi. Stuðningsmenn Adlai Steven- son, höfðu tekið flokksþingið með stormárás fyrstu daga þess, en áhlaup þeirra entist ekki nægilega lengi Þegar atkvæðagreiðsla um framboð demokrata hófst, sigraði John F. Kennedy í einu vetfangi. Stuðnings- menn hans notuðu meðal annars handhæg senditæki, walki-talkies, sem við þekkjum úr stríðsmyndum, til að skapa innbyrðis samband á þinginu. Síðan valdi Kennedy Lyndon B. Johnson, sér til fylgdar í kosninga- baráttunni. Richard M. Nixon, varaforseti Bandaríkjanna, sóttist eftir að verða forsetaefni republikana. Nelson Rockefell- er í New York gaf einnig kost á sér. En eftir að Rocke- feller gaf út yfirlýsingu þar sem forysta republikana og frammistaða Eisenhowers í forsetaembættinu, voru að vissu leyti gagnrýnd snerust foringjar republikana gegn honum. Þeir sem búizt höfðu við að republikanar myndu klofna á flokksþingi sínu, urðu fyrir vonbrigðum. Nixon tókst að sameina ýmis sundurleit öfl, á fyrstu fjórum sólarhringum þingsins, og Nixon yfirgaf þingið, sem óum- deilanlegur foringi flokksins og forsetaefni. Henry Cabot Lodge varð varaforsetaefni. Cabot Lodge var af blöðunum talinn Johnson fremri og heppilegri varaforseti og frambjóðandi. En það var áberandi að yfirgnæfandi) meirihluti dagblaða í Bandaríkjun- um studdi Kennedy. Meðal þeirra var New York Times, eitt af virt- ustu blöðum veraldar. Það hafði ætíð hallast að republikönum, en snerist nú á sveif með Kennedy í forystugrein. Blaðamaðurinn Walter O í upphafi var það gagnrýnt, að forsetinn skyldi velja bróður sinn í embætti dómsmála- ráðherra, en Róbert hefur sannað, að bróðirinn gerði ekki rangt. Mikið vinfengi var með þeim bræðrum. Hér ræða þeir negravandamálið tveir saman. Lippmann, oddviti bandarísku stjórnmálablaðanna, var eindreginn stuðningsmaður Kennedys, og fór ósjaldan lofsamlegum orðum um foringjahæfileika hins unga demo- krata. í upphafi kosningabaráttunnar var Kennedy því talinn hafa forskot fram yfir Nixon, enda þótt sá síð- arnefndi væri frægari í Bandaríkj- unum, frá varaforsetatíma sínum. Þá hafði hann tekið við stjórnar- taumunum um sinn, vegná veikinda Eisenhowers. Hann hafði farið um Suður- Ameríku og orðið fyrir lífshættulegu að- kasti vinstri aflanna, en staðið sig eins og hetja, og unnið sér aðdáun Bandaríkja- manna að launum. Þá má ekki gleyma hinni frægu eldhússkappræðu Krúséffs og Nixons á bandarískri sýningu í Moskvu. Kennedy hafði frægð sína frá miklum sigri í öldungadeildarkosningunum í Massachusetts 1958, er hann sigraði með 870 þúsund atkvæða meirihluta, met- meirihluta, einnig frá bók sinni Profiles Framhald á bls. 31. jg — vikan 12. tbl.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.