Vikan


Vikan - 19.03.1964, Blaðsíða 29

Vikan - 19.03.1964, Blaðsíða 29
SÖNGURINN FRÁ SJONUM Framhald af bls. 11. fiskimiðin yrðu þetta árið. Finn- Marja fór viljug og var ekkert ,spör á að segja frá því, sem hún sá. Til þess að hjálpa, sagði hún. Fólk hélt því fram, að spádóm- arnir hennar rættust — oftast, að minnsta kosti. Svo gaf það henni það, sem hún þurfti til að lifa af, bæði föt og mat og stund- um peninga, svo að enginn veru- legur skortur var af neinu hjá henni. Þetta óveðurskvöld stóð Margit við gluggann í húsinu sínu á Utöja og reyndi að sjá gegnum myrkrið úti. Öðru hvoru var eins og birti úti, þegar hvít- fysst holskefla reis við ströndina. Húsið hristist í storminum og sjávardrunurnar voru eins og þrumur í næturmyrkrinu. Margit fann einhvert undarlegt eirðar- leysi sækja að sér, einhvert hug- bað um að eitthvað væri að. Simon og Kári, sonur þeirra, voru ekki komnir heim enn frá því að þeir höfðu farið um morg- uninn út á sjó. Hún hafði séð hina bátana sigla fram hjá, hvern á eftir öðrum, en enginn þeirra hafði stefnt á Utöja. Nú var kom- ið kvöld og orðið dimmt, og enn sást ekkert til þeirra. Það var ekki líkt Simoni að vera svona lengi, ef einhver hætta var á ferðum. Hann vissi hve hrædd hún var svona alein, þegar óveð- ur var. Hún hafði aldrei getað vanið sig við tilhugsunina um hafið allt í kringum sig. Það var Annað heftið er nýkomið út með enn fleiri íslenzkum text- um en í fyrsta heftinu. Sendið kr. 25,00 og þið fáið heftið sent um hæl burðargjaldsfrítt. Fyrsta heftið fæst enn, en í því eru m.a. textamir „Heim- ilisfriður“, „Ef þú giftist mér“ og fleiri. Kostar kr. 25,00. Nýír danslagatextar Box 1208 — Reykjavík uHgfrú yndisfríð býður yður hið landsþekkta konfekt frá. N Ó Á. HVAK ER ORKIN HANS NOA? Jha® er alltaf saml lelkurlnn 1 hénnl Yhd- IsfrlS okkar. Hún hefur faliS Srklna hans N6a elnhvers staðar í hlaSlnu og heitlr góSum verSIaunum handa þelm, sem getur fundiS örkina. VerSIaunin. eru stór kon- fektkassl, fullur at hezta konfekU, og framleiSandlnn er au.SvItaS SælgæUsgerS- In Nól. Nafn HelmlU örkln er & Mf. f|ip m SiSast er dreglff var hlaut verSIaunln: Jóhanna Edda Sumarliðadóttir Skúlagötu 18, Rvík. Vinninganna má vitja á skrifstofu Vikunnar. 12. thl. eitthvað óhugnanlegt og ógn- vekjandi við það. Hafið var falskt og duttlungafullt — það gat gefið af allsnægtum sínum einn daginn, til þess svo að krefj- ,ast alls næsta dag. Hún lagði höndina á hjarta- stað, þegar hún heyrði einhvern koma við útidyrnar. Loksins -- það hlutu að vera þeir. En von hennar brast, þegar hún sá hina aumu mannveru, sem staulaðist inn fyrir þröskuldinn, úfna og tætta eftir storminn. Það var hún Finn-Marja. ísköld vind- stroka fylgdi henni inn og hafði næstum slökkt á olíulampanum, en Margit fann angistina ná enn sterkari tökum á sér. Finn-Marja settist á stól við ofninn og blés mæðinni. Hún teygði magrar hendurnar, biáar af kulda, að eldinum og hristi sig. — Ég hélt að það væri bezt að ég kæmi til þín, Margit, sagði hún. — Við erum einu konurnar á Utöja, og það er skylda okkar að standa saman, hvað sem fyrir kann að koma. — Hvað sem fyrir kann að koma? endurtók Margit eins og stirnuð og starði óttaslegin á hana. — Já, Margit — áður en sól- arhringur er liðinn, verður dauðs- fall hér á Utöja. Heyrðirðu í haf- inu í kvöld, Margit — heyrðirðu sönginn frá því? Ég hef heyrt hann fyrr og veit hvað hann táknar. Ég hef fengið vitrunina, og mér skjátlast ekki. í nótt verð- um við einum færri hér á Utöja. Hún lokaði augunum og sat grafkyrr, eins og' hún hlustaði og skildi eitthvað, sem enginn annar skynjaði. I sömu andrá kom svo sterk stormkviða, að húsið skalf og nötraði. Það var eins og staðfesting á orðunum, sem virtust óma enn í loftinu. Margit greip svo fast í borðpiöt- una að hnúarnir hvítnuðu, og hún þrýsti enninu að svalri gluggarúðunni. Ó — Simon — vinur minn! —• Þannig átti það þá að fara, á þann veg, sem hún hafði óttazt ö!l þessi ár á næstum hverjum degi. Henni fannst sem hún sæi bátinn brotna í spón og lokaði ósjálfráttt aug- unum. Svo fann hún aftur kald- an vindgust og þegar hún sneri sér við, var hún ein í herberg- inu. Þá settist hún þunglega á stól við borðið og huldi andlitið í höndum sér, meðan hún grét sárt. En utan við hættulegan brim- garðinn rak bát fyrir stormi og sjógangi. Það var Hvadur — bát- ur Simons. Hann hafði verið á leið heim, þegar vélin hafði stanzað skyndilega og nú rak þá upp í brimgarðinn. Kári hamað- ist í vélarrúminu svo svitinn bog- aði af honum. Hann hélt að hann hefði fundið bilunina, en ef hon- um átti að takazt að gera við hana í tæka tíð, varð hann að hafa sig allan við. Simon stóð í stýrishúsinu og horfði út á sjó- inn. Það var myrkur allt í kring, en hann gat séð öldurnar rísa eins og hvítar vofur, sem bar við himin. Hávaðinn jókst og það mundi ekki líða á löngu þar til þeir soguðust inn í brimgarðinn, og þá mundu þeir ekki þurfa á neinum mótor að halda lengur. Honum varð hugsað til Margit. Hvernig færi fyrir henni, ef hún yrði ein á Utöja? Hann gat ekki fundið neina lausn á þeirri spurningu og það gerði hann óró- legan. Hann hefði betur getað sætt sig við dauðann, ef hann hefði verið viss um að hún hefði það gott. Hann hefði átt að hugsa fyrir því fyrr — áður en það var of seint. Hurðinni á stýrishúsinu var hrundið upp og Kári kom inn. Dauft ljósið frá kompásnum sýndi hve þreyttur hann var og sótið á hnjánum og á andliti hans sýndist óhugnanlega svart í daufri skímunni. Jæja, pabbi, sagði hann og varð að hrópa til þess að yfirgnæfa sjávardrunurnar. ... Ég er ekki viss, en ég held við reynum hana núna. Hann leit snöggt út um gluggann á brimgarðinn, sem þeir nálguðst óðum. Simon leit í sömu átt. — Við verðum að reyna það — nú eða aldrei. Kári kinkaði kolli og gekk út í skyndi. Svo fór vélin í gang. Fyrst með hikandi og daufum högg- um — dó næstum út — en tók sig á og slögin urðu jöfn og hröð. Simon andaði léttara og takið um stýrið losnaði. Svo stefndi hann á Utöja — í höfn og öryggi. Þeir voru hólpnir. Það var langt liðið á næsta dag, þegar Simon og Margit fóru að undrast, hvers vegna allt væri svo kyrrt hjá Finn-Marju. Ekk- ert rauk úr skorsteininum, eng- inn kom út á túnið og glugga- tjöldin voru ekki dregin frá. Þau gengu þangað til þess að vita hvort hún hefði orðið veik, og þá fundu þau hana. Finn-Marja lá örend í rúminu. Þau stóðu þögul um stund hjá henni, en svo beygði Margit sig niður og krosslagði hendur henn- ar á brjóstið. Um leið hvíslaði hún við magran og skorpinn vangann. — Þú hafðir þá rétt fyrir þér, Finn-Marja — þrátt fyrir allt. ★ COSA NOSTRA Framhald af bls. 27. og frægastur er án efa hinn ill- ræmdi A1 Capone, sem stofnafi og skipulagði glæpahrin.-rinn fvr- ir tæpum 40 árum. Þo;:ar hnrn var settur í fan;;e!si fyrir skatt- svik árið 1931, tck Frank CKúsr- arinn) Nitti við tign h: ns. Ila n ríkti síðan þar ti! hann ír in-'i sjálfsmorð til þess að forðast fangelsun og dóm fyrir að hala kúgar stórfé út úr kvikmynda- iðnaðinum, en næsti samstarfs- maður hans og líklegur arftaki, Paul (Þjónninn) Ricca, greip ekki til eins róttækra ráðstaf- ana og var settur inn. Þá komst til valda sá sem nú ríkir, Sam Giancana. (Það er athyglisvert, að þessi nöfn eru öll ítölsk). Og ekki virðist vera svo hættulegt að ráða fyrir Cosa Nostra: Af þessum fjórum mönnum eru tveir látnir: A1 Capone lézt úr sýfilis, Nitti framdi sjálfsmorð, VIKAN 12. tbL — 29

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.