Vikan


Vikan - 19.03.1964, Síða 26

Vikan - 19.03.1964, Síða 26
AL CAPONE stofnaði glæpa- hringinn, sem nú heitir Cosa Nostra, árið 1925. Hann var sett- ur í fangelsi fyrir skattsvik árið 1931 og dó úr sýfilis 1947. Arftaki hans var Frank Nitti, en ríkti aðeins stutt. SAM GIANCANA er núverandi aðalforstjóri glæpasamsteyp- unnar. TONY ACCARDO tók við af Nitti, en lét völdin bráð- lega af hendi til Sam Gian- cana. Nú er Accardo 58 ára að aldri og mjög hátt skrif- aður innan samtakanna. PAUL RICCA er 62 ára. Hann er fjárhættuspila- og eiturlyfjaráðherra Cosa Nostra, að því er lögregl- an í Chicago telur. FELIX (Milwaukee Phil) ALDERISO er álitinn vera ofbeldis- og misþyrminga- ráðherra Cosa Nostra. FRANK FERRARA er aðal- sérfræðingur Cosa Nostra í málum ér varða fjárhættu- spil og þar að auki gjald- keri hringsins. reglunnar vændisráðherra rekur fjöldamörg spilavíti, flokksins. en lögreglan heldur, að hans sérgrein sé í raun og veru okurlánastarfsemi á vegum Cosa Nostra. Helztu höfðingiap Cosa Nosfra frá upphafi Skömmu fyrir jólin gerðist sá atburður í Bandaríkjunum, að syni Frank Sinatra, söngvarans fræga, var rænt, þar sem hann var á ferð ásamt hljómsveit þeirri, sem hann starfar við, en sonurinn heitir ekki aðeins nafni föður síns, Frank Sinatra, heldur hefur hann einnig gutlað við að syngja, eins og hann. Yngri Frank Sinatra er 19 ára gamall, og það voru tveir skuggalegir náungar, sem námu hann á brott úr herbergi bílahótels, þar sem hann hafði tekið sér gistingu. Og náttúrlega var krafizt lausnargjalds af gamla Frank Sinatra. Hann greiddi það og fékk soninn aftur, en hvorki Sinatra né lögreglan hafa viljað láta uppi, hve hátt strákur- inn var metinn. Þó hefur kvisazt út, að hann hafi verið virt- ur á 260 þúsund dollara, hvað sem satt kann að vera í því. Þegar þetta gerðist, hafði Sinatra eldri nýlega ákveðið að hætta við spilavíti þau, sem hann á í Nevada, en verðmæti þeirra stofnana eru lauslega áætluð 3,5 milljónir dollara. fs- lendingum kemur líklega spanskt fyrir sjónir, að þarna get-, ur verið samhengi á milli, en þótt málið hafi ekki verið upp- lýst til fulls, þegar þessi grein er skrifuð, er þó full ástæða til þess að ætla, að svo sé. Og þetta samhengi heitir Cosa Nostra. (ítalska og þýðir: Húsið okkar). Cosa Nostra er undirheimasamsteypa og glæpahringur, sem hefur rætur um öll Bandarikin. Ef þú sezt að í Bandaríkj- unum og stofnar ölhús, þar sem þú ætlar að selja ákveðna tegund af öli, máttu eiga þess von, að prúðbúinn senndimað- ur Cosa Nostra komi til þín og segist vera sölumaður fyrir aðra bjórtegund, og þú skulir nokk verzla með þá tegund, eða hafa óþægindi ella. Og guð má vita, hvað kemur fyrir þig, þína eða starfsemi þína, ef þú þrjózkast við og heldur áfram að selja gamla bjórinn. Og það er raunar sama, hvað þú ætlar að gera: Cosa Nostra hefur fingur og eyru um allt og lætur sér ekkert óviðkomandi, sem fjárvon er í. Þú getur jafnvel þurft að kaupa af þeim „atvinnuleyfi" fyrir helming þeirra launa, sem þú vinnur þér inn. Þú um það, ef þú vilt ekki kaupa „atvinnuleyfið". Þá máttu líka búast við, að þú annað hvort fáir enga vinnu eða að verðir óvinnufær — um stuttan tíma eða að eilífu. Og þeir í Cosa Nostra hafa sínar aðferðir til hvers og eins. Frank Sinatra ætlaði að losa sig við spilavítin sín, vegna þess að hann vildi ekki standa í makki við Cosa Nostra, sem krafðist klekkilegrar summu fyrir að „vernda“ spilavítin, en Frank vildi ekki semja, því þótt hann hafi e.t.v. áður þegið slíka „vernd“, hefði framlenging „verndarsáttmálans" verið opinber staðfesting á því, að hann væri Cosa Nostra maður. Og svo mikla sómatilfinningu hefur Frank Sinatra, að það vildi hann ekki. Hins vegar vissi hann, hvað það þýðir, þegar „vernd“ Cosa Nostra hefur verið afþökkuð. Það þýðir sama og gagngerð eyðilegging þeirra verðmæta, sem ekki eru „vernduð“. Svo það var allt eins gott fyrir hann að lýsa því strax yfir, að 26 VIKAN 12. tbl.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.