Vikan - 19.03.1964, Qupperneq 27
Milwaukee Phil
Alderiso var
handtckinn á
síðasta ári og
fundinn sekur
um fjárkúgun, en
svo að segja sam-
stundis látinn
laus til reynslu.
Hér er hann —
handjárnaður —
á leið til yfir-
heyrzlu.
hann vœri hættur við stofnanirnar, þótt það væri líka dýrt.
Því sumir láta fé til þess að halda mannorði sínu sæmilega
hreinu.
Þetta hefur forráðamönnum Cosa Nostra vitanlega gram-
izt, því auk þess að missa væna fjárupphæð, sem félagsskap-
urinn hefði fengið, ef Frank hefði viljað „makka rétt“, var
ekkert unnið við að ráðast á spilavítin og eyðileggja þau,
úr því að Frank var búinn að gefa þau frá sér. Hann kippti
sem sagt skrautlegri fjöður úr stéli hanans með þessu móti,
og Cosa Nostra er sárt um fjaðrirnar sínar. Þess vegna
varð að láta Frank Sinatra greiða ofurlitlar skaðabætur.
Og það varð ekki gert með neinni dómssátt.
Þá var ekki um annað að ræða en stela Frank yngra
og krefjast lausnargjalds fyrir hann.
Þetta er aðeins lítið dæmi um starfsemi Cosa Nostra,
neðanjarðarhreyfingarinnar, sem Robert Kennedy, dóms-
málaráðherra Bandaríkjanna, hefur nú sagt stríð á hendur.
Þótt, eins og að framan segir, starfsemi Cosa Nostra standi
með góðum hag um öll Bandaríkin, er hún hvergi með jafn
miklum blóma sem í Chicago. Þú getur ekki setzt inn á mat-
sölustað í Chicago eða útborgum hennar, og verið viss um að
þú sért ekki að éta Cosa Nostra brauð, drekka Cosa Nostra
bjór, borða af Cosa Nostra diskum, við Cosa Nostra dúk og
munnþurrku, eftir að leggja bílnum þínum við Cosa Nostra
stöðumæli og láta frá þér hatt og frakka í Cosa Nostra
fatageymslu. Þú getur jafnvel ekki keypt blað af blaðasal-
anum á götuhorninu og verið viss um, að peningarnir þínir
renni ekki að verulegu leyti í hít Cosa Nostra, sem áætlað
er að gleypi að minnsta kosti tvær billjónir dollara á ári,
og veiti því fé aftur í neðanjarðarstarfsemi eins og eitur-
lyfjabrask, vændi, fjárkúgun, stjórnmálaspillingu, okur, of-
beldi og morð. Þótt þeir, sem þú skiptir við, séu e.t.v. ekki
beinir starfsmenn Cosa Nostra, er ekkert líklegra en þeir
hafi verið neyddir til að hafa samstarf við glæpahringinn að
einhverju leyti. Þú getur jafnvel verið að styrkja Cosa
, Nostra, þegar þú kaupir bleiu á barnið þitt.
\ Já, Cosa Nostra hefur til skamms tíma haft öll tögl og
.hagldir í Chicago. Meira að segja hefur mikill hluti lögregl-
(unnar verið á launum hjá Cosa Nostra. Það er ekki langt
síðan að flokkur lögreglumanna frá ríkislögreglunni gerði
húsrannsókn á nokkrum spilavítum, hóruhúsum og stripl-
ingaklúbbum i Cicero, sem var aðalaðsetur A1 Capones á
drottnunarárum hans, en það var síður en svo að lögregl-
an í Cicero veitti neina hjálp. Það var meira að segja
algengast, að þegar ríkislögreglumennirnir komu út eftir
húsrannsóknir, biðu þeirra sektir fyrir ólöglega bílalagn-
ingu!
Nú myndi rétt að segja lítið eitt frá höfuðpaurum Chi-
cagodeildar Cosa Nostra. Fyrstur Framhald á bls. 29.
Hreyfingin sem
stjðrnar
Bandaríkjunum
neðan frá
Eins og allir ráðamenn
glæpasamstcypunnar,
býr Milwaukce Phil
Alderiso í glæsilcgu ein-
býlishúsi á bezta
stað í borginni. Ef til
viil cr hans liús einna
nýtizkulegast, enda er
hann „nýríkastur"
sinna félaga. Hann
vann sig á 10 árum
upp í cina æðstu stöðu
í Cosa Nostra, en byrj-
aði sem bardagamaður
í skítvcrkum glæpa-
hringsins.
N æ t u r k 1 ú b b s e i g a n djil n
Arthur Adler endaði
ævi sína á dularfullan
hátt og fannst í skolp-
ræsi tveim mánuðum
síðar. Þannig fer fyrir
þeim, sem eru Cosa
Nostra óþægur ljár í
þúfu.
VIKAN 12. tbl. — 27