Vikan - 19.03.1964, Page 51
«■
Nýtt útlit
Ný tækni
MALMGLUGGÆR f/i
4^/
LÆKJARGÖTTJ, HAFNARFIRÐI. — S/M/ 50022
Farartæki íyrirraanna
Ludwig Erhard notar —
eins og fyrirrennari hans —
mest Mercedes Benz 300.
Fyrir nokkrum árum gerði
BMVV bíl, sem kallaður var
„Andenauer Wagen“, en
hann gerði enga sérstaka
lukku. MB heldur áfram að
vera kanslarabíllinn.
Lyndon B. Johnson erfði
Lincolninn, sem Kennedy
var veginn í, með öllum
e.ukahlutum — sætum og
toppi. Á bílinn hefur nú
verið sett hærra sætisbak,
sem hefði e.t.v. getað komið
í veg fyrir dauða Kennedys
hefði það verið sett á í tæka
tíð.
Nikita Krúsjoff ekur að öll-
um jp.fni í glansnúmeri
sovézkrar bílaframleiðslu,
ZIL 111 G. Tveir bílar af
þessari gerð eru framleiddir
á mánuði hverjum handa
fyrirmönnum Sovétríkjanna.
Charles de Gaulle notar tvo
sérbyggða Citroén. Oftast
notar hann þann, sem
myndin sýnir, — lengda og
skrautbyggða útgáfu af DS
19. Um þessar mundir er
Renault — sem franska
ríkið á — að smíða tvo for-
setabíla, sem eiga að taka
við af þessum.
Antonio Segni lítur auðvit-
p.ð ekki við öðrum en Pinin-
farina sniðnum bílum.
Aðallega ekur hann um í
þessiljn glæsilega Lancia-
Flamina.
Sirikit frá Thailandi og
Bhumibol drottning sýna
gestum land sitt úr rjóma-
gulum Rolls Royce, sem er
útbúinn með sérstakri loft-
kælingu fyrir farþega. Þau
eiga líka stóran Bentley, og
drottningin hefur til um-
ráða MB 190SL, þegar hún
þarf að flýta sér.
Páll páfi VI. erfði eftir fyr-
irrennara sinn sérbyggðan
MB 300. Hluta af þakinu er
hægt að leggja aftur, og
aftur £ er aðeins einn hæg-
indastóll, því páfinn er
ávallt einn.
Elísabet II. — Þótt Bretar
séu góðir og duglegir bíla-
framleiðendur, grípur henn-
?.r hátign til færri og auð-
reiknaðri hestafla, þegar
hún fer í opinberar öku-
ferðir. Þá ferðast hún í far-
artækinu, sem mydnin sýn-
ir: Viðhafnarvagni drottn-
ingarinnar.