Vikan


Vikan - 03.09.1964, Blaðsíða 13

Vikan - 03.09.1964, Blaðsíða 13
Golan var köld af bylgjuðu, úlfgráu vatninu. Hún smaug vœgöarlaust inn um tjaldsopið, sem aðeins var tyllt að neðan með einum hæl og óreimað. Þegar ég leit út var komin dögun yfir sveitina. Sólstafur úr skýjaþykkninu lýsti yfir lágan ásinn í austri; það var samt ennþá skuggi undir honum þar sem lágvaxið kjarrið óx, og tjöldin okkar Ásgeirs stóðu. Ég leit yfir að eldunartjald- inu, og sá að brá fyrir skugga- mynd af manni, er liallaði sér aftur og drakk af stút. Ég glotti dálítið við sýninni, — Jæja, en Guð má vita hvernig mér tókst að eitra þessa blöndu saman eins og ég viper- aði á taugunum hérna i morgun. Og mér fannst það' vera krafta- verk, að nokkuð skildi vera eftir i pottinum þó leiðin sé stutt frá vatninu. Við reyktum og þögðum og hvor hugsaði sitt, þannig var það oftast. Því við sögðum fleira en við mundum daginn eftir og við fjarlægðumst dálitið hvor ann- an þar til vínið fór að verka aftur. Ég sá að Ásgeir var farið að liða betur og ég fann sömuleiðis snögg áhrifin á tóman magann. í Auschwits. Það var sársauki i rödd hans en við rökræddum það ekki og ég fann að hann var hættur að hugsa um það er við borðuðum i Fornahvammi. Og loks ákvörðunarstaður. Þetta var þriðja haustið i röð, sem við vorum hér á landareign bóndans sem Ásgeir var hjá sem unglingur. Að þessu sinni komum við ekki heim áður en við tjölduð- um og hugðum á veiðar. Vor- um of drukknir. byrjuðum fyrir alvöru er við slepptum Norður- brautinni. En við vorum vel- komnir og gátum farið og komið að vild. og Virkið lágu fyrir fótum okk- ar i spegilsléttu vatninu i skyni eldrauðrar hnigandi sólar. Það eitt var ánægjulegt að vera til og eiga vin. Ég var fyrir löngu búinn með sigarettuna mina og ég sagði Ásgeiri að við værum að, missa bezta tímann, það væri bezt í döguninni og aftur er dimmdi. Hann hafði stutt höndum undir kinn og horfði á mig fjarrænt meðan hann losnaði úr viðjum hugsananna. Hann tók tvær flöskur upp úr töskunni, aðra fékk ég en hinni stakk hann i vasann. Við drápum á gasinu og lokuðum ljaldinu. Það var mikil spenna meðal okkar, mögnuð af ýlfri vinds I klettum og gröðri merkurlnnar og vitundínní um hið voveiflega ppgii §, mwMm <4' <■ / 'O.v'X s .. •• Wmm ímmm m m 111111 ■ J.. HÍÉÍ -';ý x : ■9WI <r iííSwí HAUST Smásaga eftir Ragnar Felixsson en mér fannst notalegt að vita af honum þarna og það var gott að eiga vin. Ég rölti þangað yfir og er ég lyfti upp tjaldskörinni fann ég strax lyktina af romminu, sæta og góða. Mér bauð ekki við henni eftir að hafa sofið i tæru útiloft- inu. Ásgeir var byrjaður að rétta sig af; hafði blandað með heitu sykurvatni. Það var gott þann- ig og ég hrósaði blöndunni hans og hugsaði jafnframt lilýlega til hans fyrir virðingarverða til- raun til að brosa. Við hlutum að líta svipað út, svo ég lét það vera. — Hvernig leggst hann i þig, byrjaði Ásgeir. — 0, þvi ekki vel? — Ég segi sama, prýðilegur morgunn. Það er eitthvað við hann, dult. Það gerir kannske blakt tjaldsins. — Iíannske það, eða þú hef- ur öðlazt eitthvað nýtt frá nátt- úrunni og umhverfinu! Svo þú skiljir þessa óhemju fantasíu lífs- ins. Það var gott að hugsa um gærdaginn. Rommflöskurnar á Skúlagötu, milt haustveðrið á leiðinni. Landið hjúpaði hverful- um litum lækkandi sólár. Borgar- fjörður: fallandi lauf, fjárhópar á leið í dauðann, i rekstrum og standandi i kös á yfirtjölduðum vöruflutningabílum. Sár jarmur hinna gangandi var yfirgnæfandi meðan þær runnu framhjástöðv- uðum bilum, merktar á enni með rauðri og blárri krit. Þær sem fluttar voru á blóð- völlinn i bilum voru þögular, eins og hendi böðulsins væri þegar yfir þeim með útrýmingar- vopnið í litla klefanum handan blóðrennunnar og við horfðum á granna fætur þeirra og síðan lagðinn i gegnum rimla gaflhler- ans og á manninn sem gætti þess að enginn stykki yfir eða træðist undir og dæi, áður en öðrum þóknaðist. Þær hurfu i fjarlægðinni og dröppu ryki vegarins. Ásgeir talaði um að starf bænd- anna væri að kveikja og hlú að lifi sem hyrfi svo eins og Ásgeir var nokkru yngri en ég, laglegur maður og langt kom- inn með laganám, einbirni og einhleypur. Faðir hans var einn þeirra er mötuðu krókinn á striðsárunum og varð ríkur upp úr engu. Og ég hugsaði um afgreiðslu- starf mitt hjá stóra járnvöru- firmanu, konuna mina og barnið sem við áttum ekki enn, það hafði dregizt að það kæmi i heiminn, en ekki okkar sök. Ásgeir kom oft á heimili okkar og það fylgdi honum framandi blær úr samkvæmislifi borgar- innar. Og ég minntist þess að í bíln- um i gærkvöldi eftir tjöldun, hlustuðum við á lága þýzka dans- músik og drukkum. Þá varð ég margs vísari úr skemmtanalifi borgarinnar og ég kunni því vel að heyra það þá. Ásgeir var hátt uppi og ég fann að hann ýkti af sigrum sinum á veikara kyninu, mér var sama — kvöldið var óvenju fagurt, það var að breyta um átt og stafalogn. Fjöllin, Ásinn Það var ennþá húmað, vindur- inn ofurlitið meiri og alskýjað. Við tókum byssurnar úr biln- um og gyrtum á okkur skot- hylkjabeltin. Við heyrðum hvelt hláturhljóð lómsins út að vatn- inu, er við héldum af stað. — Sá hlær bezt sem siðast hlær, lómfjandi, sagði Ásgeir og tók undir með lómnum. Við öxluðum byssurnar frá Sauer og Sohn og hlustuðum á ört fall vindöldunnar við sendna ströndina meðan við vor- um að komast fyrir vatnið. Svo eftir vegtroðningunum og stefnd- um i norður, gengum áfram með tvíhleypt vopnin að læknum. Þar vorum við vanir að varpa upp hlutkesti, livor ætti að veiða við tjarnirnar, eða svæðið með læknum að ánni. Ásgeir kastaði jafnan upp tveggjakrónu pening og fullyrti að það væri ávallt sá sami. Það kom í minn hlut að fara að tjörnunum, þannig var það líka i fyrra. Ég tók flöskuna úr buxna- Framhald ú bls. 39.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.