Vikan


Vikan - 03.09.1964, Síða 44

Vikan - 03.09.1964, Síða 44
••••••••••••••••••••••••••••••• ® Kilcli«‘(i) \i«l ® ! U PPÞVOTTAVÉ L 5 • • • Á SÉRHVER GÓÐ HÚSMÓÐIR SKILIÐ AÐ EIGA. ® • SÖLUUMBOÐ: DRÁTTARVÉLAR H.F. OG • r .. meta og vorum vegnir og metn- ir, okkur var alls staðar gefið hornauga þótt spurningum okkar væri svarað í léttum tóni. Við vorum sem sagt ekki með. Þarna var þá komið, það sem Reyk- víkingar kalla svo skrýtið við norðanmenn. Er þetta mont? Má vera. Svipað yrði uppi á teningn- um ef maður gengi inn á fundi Alþingis óboðinn, manni yrði hent út — eða upp á áhorfenda- pallana, svo framarlega sem maður ætti ekki laxveiðiá. Við litum snöggvast inn í Sjálfstæðishúsið á Akureyri. Þar skemmta sér ungir og gamlir og gera það vel. Óðinn Valdimars- son syngur þar fyrir dansi, og hefur honum sannarlega tekizt að verða spámaður í sínu heima- landi. Það hefur nefnilega ekki gerzt í aldaraðir, að Akureyring- ar blóti Óðni. í frumbernsku hafði ég heyrt, að Norðlending- ar hefðu gaman af að segja sög- ur af sjálfum sér. Þetta vildi ég sannprófa og spurði því roskinn mann, hvort hann vildi ekki segja mér sögu af sjálfum sér. Hann sagðist hafa lagt það niður fyrir löngu, þegar hann hætti að trúa sjálfum sér. Þá spurði ég hann, hvort honum þætti ekki gaman að hlusta á sögur annarra, og hann svaraði: „Ekki lengur, því ég heyri svo illa, að mér finnst að allir tali upp á sunnlenzku". Hvort getur Norðlendingur heyrt verra? Á hótel KEA var einnig dans- leikur. Sá staður er mikið sóttur af menntskælingum norður þar. Og I þetta skipti var þar svo gaman, að skipverjar af flutn- ingaskipi einu voru sóttir þangað af skipstjóra sínum. Það var aldeilis völlur á karli þegar hann hótaði að henda öllu þeirra drasli fyrir borð á tíræðu dýpi, ef þeir hlýddu sér ekki. Þeir dröttuðust með í leiðu skapi, og einn sagðist ætla að fara af dall- inum, strax og hann væri búinn að ná í tappatogarann sinn. Þegar öldurhúsum er lokað, sofnar þessi friðsæli bær á hálf- tíma. Aðeins einn gleðisnauður Ford er eftir á rúntinum og ekur hring eftir hring. Eigandinn ungi situr þungt hugsi undir stýri eins og skákmaður, sem athugar tap- aða skák og reynir að finna hinn ranga leik, sem olli því að hann tapaði drottningunni. Skötuhjú leiðast inn í húsa- sund, og köttur breimar niður við höfn. Þessum degi okkar við hinn enda vegarins er lokið. ★ frá því að fullfrúinn hefði sagt sér frá byssufundinum, meira að segja sýnt sér byssuna í von um að hún bæri kennsl á hana. „Auðvitað gerði ég það ekki, sagði hún. „Ég hef aldrei leyft Roy að bera byssu. Við erum siðmennt- uð fjölskylda". „Mér er sagt að þið séuð líka auðug fjölskylda". „Það getum við varla kallazt". Hún brá fingrunum að demantsnæl- unni í kjólkraganum. „Hvað er það, sem yður liggur á hjarta, herra Archer?" „Dolly Kincaid beinir lögreglu- fulltrúanum á auðfarna leið til lausnar morðgátunni og hann virð- ist ætla að fylgja þeirri vísbendingu. Ég vildi gjarna að þið mæðginin réðuð mig til að leita annarrar lausnar". Ég skýrði henni frá unga mann- inum, sem rann á okkur dr. Brads- haw í myrkrinu og einnig frá rödd- inni í símanum, sem hótaði ungfrú Haggerty bana. „Það gat ekki ver- ið rödd Dollyar, ungfrú Haggerty hefði þekkt hana, og auk þess var vinátta með þeim. Ég geri ráð fyrir að Dolly hafi farið heim til hennar og viljað spyrja hana einhvers, kom- ið að líkinu, fengið taugalost — og hún sé ekki enn komin til sjálfrar sín". „Hvers vegna?" „Ég get ekki skýrt það enn fylli- lega. Ég verð að athuga fortíð hennar nánar, og einnig þarf ég að kynna mér fortíð ungfrú Haggerty". ££ — VIKAN 36. tbl.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.