Vikan


Vikan - 08.10.1964, Page 2

Vikan - 08.10.1964, Page 2
Canadian Mist er heimsþekkt vörumerki í fullri alvöru: HVER VILL LEGGJA TIL SITT NEF? Biðjið um vörur úr Canadian Mist poplíni Það er kannske að bera í bakkafullan lækinn, að fara ennþá einu sinni að tala um Skarna, sem öllum er þyrnir i augum og nálykt í nefi, en samt ætla ég mér að hreyfa málinu ennþá einu sinni. Það er alveg víst, að ef ein- hver einstaklingur leyfði sér þann endemis ósóma og sóða- skap að fara að bera mannasaur á tún hjá sér i bænum, þá yrðu yfirvöldin ekki sein á sér að taka viðkomandi í karphúsið, — eins og eðlilegt væri og sjálfsagt. Og þegar öllu er á botninn livolft, þá er mér líka næst að halda að bæjaryfirvöldin mundu ekki heldur bera slíka hluti á sin eig- in tún, jafnvel þótt þau fram- leiddu áburðinn sjálfir. En það er ekki langt frá. . . . Ég bef undanfarnar þrjár vik- ur þurft að ganga fram lijá Klambratúninu á hverjum degi, en þar er nú verið að jafna jarðveginn, bera á hann ■— Skarna auðvitað — og sá gras- fræi. Á liverjum einasta morgni hef ég kviðið fyrir þessum spotta, og verið að velta þvi fyrir mér hvernig vindáttin stæði, og hvort ég kæmist þar framhjá án þcss að liggja við köfnun af þessari viðurstyggi- legu lykt, sem leggur af túninu. Ég hef einnig átt tal við nokkra íbúa þarna í nágrenninu, og þeir ná varla upp i nefið á sér af illsku yfir þessum aðförum bæjarins. Óg það er ekki að ástæðulausu að ég minntist á mannasaur í upphafi greinarinnar, þvi hver sá, sem hefur vilja og taugar til að reyna að aðgreina þessa and- styggilegu fýlu, sem leggur af Skarnanum, veit að liún er engu likari en einmitt þvi. Samlik- ingin er ekki mér að kenna — hún er þeim mönnum að kenna, sem leyfa sér að bera þennan rækalls óþverra á á almannafæri hér í borginni, og þeir eiga skömm skilið fyrir og ekkert annað. En það er eins og að ræða við steininn, ef yfirvöldin eiga hlut að máli. Eftir þvi sem ég bezt veit, þá á bærinn þessa blessaða verksmiðju, sem fram- leiðir þennan óþverra, og hún verður að bera sig, og þar af Framhold á b!s. 44. 2 — VIICAN 41. tbl.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.