Vikan


Vikan - 17.12.1964, Blaðsíða 27

Vikan - 17.12.1964, Blaðsíða 27
, x|í§xíí 5 ' ', Éllllwllflltl ■í:-:w:-x#:-»?íí«-:-»x-íx:-X'«•SSM \\ 't ,i 0 Malenkov var í æðsta sætinu þegar þessi mynd var tek- in, en Krúsjeff honum til aðstoðar og styrktar. Raunin varð sú, að Krúsjeff varð ofan ó og rak Malenkov. Nei, Malenkov er ekki að nó í byssuna á myndinni. Hann er að leita að veskinu sínu. Bandaríkjamenn voru mjög hrifnir af Ninu Krúsieff, sem kom þeim fyrir sjónir sem glaðlynd og alþýðleg húsmóðir og eiginkona, laus við allt prjál og tildur. Hér hefur henni ekki þótt hálsbindið fara nógu vel á eiginmanninum. Hún kom því til leiðar, að Krúsjeff fékk sér ítalskan klæðskera. Síðar fór Krúsjeff að segja löndum sínum til syndanna hvað klæðaburð áhrærði. •O Krúsjeff fór í opinbera heimsókn til Bandaríkjanna og lék þar við hvern sinn fingur, enda var hann snillingur í að koma sér í mjúkinn hjá almenningi, ef hann vildi það við hafa. En bandarískir blaðamenn eru harðir í horn að taka og þeim heppnaðist á skömmum tíma að gera hann vondan. <i Krúsjeff og félagar hans náðu varla upp í nefið á sér yfir þeirri persónudýrkun, sem Stalin kom á [ Rússlandi, og sögðu hann hafa verið bilaðan á geðsmunum. En varla mun hafa verið hægt að koma inn í nokkra skrifstofu, opinbera bygg- ingu, — eða jafnvel rússneskt heimili, án þess að sjá geysistórar myndir af Krúsjeff þar á vegg. Félagarnir, sem hröktu Krúsjeff frá og sökuðu hann m.a. um persónudýrkun, létu það verða sitt fyrsta verk að fjarlægja myndir af honum og setja upp myndir af sjálfum sér í staðinn. VIKAN 51. tbl. — 27

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.