Vikan


Vikan - 17.12.1964, Blaðsíða 32

Vikan - 17.12.1964, Blaðsíða 32
 5 stærSir af kæliskápum. Sjálfvirk affryst- ing. 5 ára ábyrgS á fyrstikerfi. Algjörlega sjálf- virk þvottavél meS suSu. Tekur 5 kiló af þurrum þvotti. Forþvottur. 4 þvotta stilling- ar. 5 skol. Þeytivinda. Ódýrasta sjálf- virka þvottavél- in. Mjög góðir greiðsluskilmálar II 4 'hbimar Stjörnuspáin gildir frá fimmtudegi til fimmtudags. Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl): Þú skalt hafa aðgát á fjármálunum, því innan skamms þarftu að punda út með nokkuð háa fjár- hæð. Kunningi þinn verður þér að miklu og ómet- anlegu gagni þessa dagana. Þriðjudagur er heilla- dagur fyrir kvenfólkið. Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí): Vikan verður talsvert viðburðarík og þú hefur í mörg horn að líta. Þú munt afkasta miklu og vera í mjög góðu formi til allra átaka. Um helg- ina verður mikill undirbúningur að einhverju sem á að ske innan skamms. Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní): Þú gerir axarskaft í vikulokin með miður þægi- legum afleiðingum. Þú hefur gerzt sekur um þessu líkt fyrr og skaltu nú hugsa alvarlega um málið. Persóna sem þú umgekkst mikið fyrir nokkrum árum kemur fram á sjónarsviðið. Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí): Þú færð sendingu, sem gerir þig nokkuð hugsi. Næsta vika verður af þessum sökum nokkuð öðru- vísi en ætlað var. Þú ert of uppstökkur og fýlu- gjarn, slappaðu af og forðastu allt og alla, sem hafa ill áhrif á þig. Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst): ©Þú átt margar frístundir og skemmtir þér mikið. Þú ert mjög vel til þess fallinn í þínum hóp að nýta þér allan meðvind og koma öllum í gott skap. Þór er boðið á skemmtistað, sem er mjög óvenjulegt af þeim sem býður. Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september): ©Eitthvert smáatvik verður til þess að koma af stað miklum misskilningi. Eftir helgina gefst þér fljótlega tækifæri til að gera hreint fyrir þin- um dyrum. Þú verður fyrir truflunum af ýms- um óviðkomandi aðilum. Vogarmerkið (24. september — 23. október): Þú verður fyrir verðskuldaðri gagnrýni í vik- unni. Fyrri alla muni stökktu ekki upp á nef þér, heldur bættu ráð þitt. Einn kunningi þinn sýnir þér vott af fláræði, gefðu honum gott spark, í eitt skipti fyrir öll. Drekamerkið (24. október — 22. nóvember): Þú færð mikinn tíma til að sinna áhugamálum þínum og er það mjög vel. Það er eins og þú sért að gera þér smám saman grein fyrir því hvað það er nauðsynlegt að hafa eitthvert áhuga- mál, sem lokar úti allt amstur hversdagsleikans. Bogamannsmerkið (23. nóvember — 21. desember): Þú eignast nýjan félaga, sem þú átt eftir að eyða WpA mörgum stundum með. Þú hefur fengið ábyrgðar- % 1 ™ mikið verkefni, sem þú leysir með prýði sökum góðra aðstæðna. Einhverjar ógnanir og hættur virðast steðja að umhverfi þínu. Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar): Þú gerir miklar breytingar í sambandi við að- wn búnað fjölskyldu þinnar. Maður, sem hefur lítið komið við sögu þína, gerist nú hin mesta hjálpar- hella. Þú færð fréttir af kunningjum, sem dvelja fjarri þér. Heillatalan er 4. Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar): Það hafa orðið nokkrar breytingar á högum þín- um um stundarsakir. Varastu öll fjárútlát og óþarfa peningasóun, sem þó er mjög freistandi. Fyrir nokkru fórstu á skemmtun, sem getur haft óþægilegar afleiðingar. ©Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz): Þú átt erfitt með að standast ýmsar freistingar og verður að leggja nokkuð að þér við að sigr- ast á þeim. Eyddu frítímum þínum við hollar tómstundaiðkanir, þá mun allt ganga betur. Hafðu gát á græneygu fólki. Snorrabraut 44 02 — VIKAN 51. tbl. Sími 16242.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.