Vikan


Vikan - 17.12.1964, Blaðsíða 18

Vikan - 17.12.1964, Blaðsíða 18
GREIN: GUÐMUNDUR KARLSSON. MYNDIR: KRISTJÁN MAGNÚSSON. „Geysir er frægastur goshvera“. Þetta er fullyrðing, sem vafalaust hefur veriS sönn, en er nú að verða vafasöm. Þessi heimsfrægi goshver hefur nú varla bært á sér í heilan áratug, en ferðamenn eru enn fluttir austur í Haukadal til að skoða þetta náttúruundur, og fara þaðan von- sviknir aftur. Það er kominn tími til að eitthvað raun- hæft sé gert til að endurlífga þetta stolt íslendinga, - en að öllu slíku verður að fara með mestu gát. Sigurður Hallsson, verkfræðingur, hefir undanfarin ór, eða síðan 1958, unnið að margvíslegum athugunum og rannsóknum ó Geysi, fyrst og fremst í þeim til- gangi að komast að því hvað það er, sem hindrar hann í að gjósa, og hvernig mætti helzt lifga Geysi við á ný. Það er ekki svo að skilja, að ekki hafi fleiri visinda- menn rannsakað Geysi á einhvern hátt. Þeir eru orðnir æðimargir, bæði erlendir og innlendir, og hafa komizt að næstum því jafn mörgum niðurstöðum. Heilar bækur hafa verið ritaðar um niðurstöður þessara rannsókna, óteljandi hitamælingar gerðar og línurit af vatns- rennsli, vatnsmagni, vatnshita á mismunandi dýpi, kisilmagni og mörgu fleira. Auðvitað ber flestum þessara mælinga saman, því þar er ekki gizkað á neitt né áætlað. Annað er aftur á móti uppi á teningnum þegar að því kemur að draga niðurstöður af þess- um mælingum og gera tillögur um endurbætur. Menn hafa meir að segja alls ekki verið á einni og sömu skoðun um það hver ástæðan sé fyrir því að Geysir gjósi yfirleitt, né hvað gera skuli til þess að ýta undir gosin hjá honum. Sérstök nefnd, með sex mætum mönnum, var skipuð 1953, til að gera til- lögur um endurbætur við Geysi og stýra þeim framkvæmdum, en ekki er vitað til þess að ráðizt hafi verið í neinar fram- kvæmdir enn, aðrar en ýmiskonar athuganir og rannsóknir á goshvernum sjálfum, og ýmsar lagfæringar í kringum hann. A hverju ári er vafalaust varið hundruð þúsunda króna, ef ekki milljónum til landkynningar erlendis, og varla er svo minnzt á ísland þar, að Geysir sé ekki nefndur um leið. Þá er þessu venjulegast lýst sem einu mesta furðuverki veraldar, sem enginn má láta hjá líða að koma og sjá til að geta Jg — VIKAN 51. tbl.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.