Vikan


Vikan - 17.12.1964, Blaðsíða 13

Vikan - 17.12.1964, Blaðsíða 13
spilapeningum, jafnvel aö lauma i brúsann miðum, sem alls ekki voru gildir strætis- vagnafarmiðar, þó að liturinn væri svipað- ur og stærðin. Þetta urðu Hermanni sár vonbrigði, og þó sér í lagi hvað skólabörn- in og unglingarnir virtust orðin langþjálf- uð í þeim lei'k, í trausti á gömlu gleraugun- um hans. Meira að segja hún Cornfelter gamla, sem staulaðist inn i vagninn við tvo stafi og ávalt greiddi farið í smápening- um, sem hún var eilífðartíma að tína upp úr gömlu pyngjunni sinni — hún hafði tamið sér það í trausti á sjóndepru hans að láta á vanta einn eða tvo smápeninga. Hermann gat alls ekki trúað þessu á liana fyrst í stað, hélt að það lilyti að vera mis- gáningur hennar og minntist ekki á það, fyrr en hún hafði endurtekið leikinn nokkr- um sinnum. Og þegar hann svo komst ekki hjá að vekja athygli hennar á þeSsu mis- ferli, varð liún fokreið: „Þú lfreinlega lýg- ur þessu!-“ lirópaði hijn svo að allir farþeg- arnir lilutu að heyra. En hún tók sig á, gamla konan, greiddi fargjaldið að fullu, steinþegjandi og reiðileg á svipinn. Hermann gerðist svo dapur í bragði, að konan hans, hún Júlía, tók eftir þvi og spurði um ástæðuna. „Ætli það séu ekki nýju gleraugun,“ svar- aði Hermann. „Það er að minnsta kosti áreiðanlegt, að þú sérð ekki sjálfan þig með þeim,“ svar- aði Júlía. „Þú ert þungbúinn, og það slær einhverju annarlegu bliki á augun." „Já.“ Hermann varp þungt öndinni, og varð hugsað til John gamla Kibbling, sem hafði þá um kvöldið losað sig við skro- tugguna, með því að lauma henni ofan í stútinn á slökkvitækinu. Hefði Hermann ekld verið með nýjíi gleraugun, mundi það hafa farið frainhjá honum. Hermann dauðlangaði til að segja Júliu frá vonbrigðunum, sem hann hafði orðið fyrir, eftir að liann setli upp nýju gler- augun, frá öllu því leiðindaathæfi, sem hann hafði orðið sjónarvottur að í fyrsta skipti, en hann gerði það þó ekki. í fyrsta lagi mundi hún alls ekki hafa skilið ]iað. í öðru lagi var hún öll með húgann við ferða- skrifstofubæklingana myridskreyttu frá Iíawaii, og hefði því ekki hlustað á liann nema með öðru eyranu. Börnin voru að komast upp, og það hvíldi lán á húsinu, sem ekki varð komizt hjá að greiða skilvíslega, svo að þau hjónin höfðu ekkert farið og ekki unnað sér hvildar frá hversdagsstrit- inu um árabil, og nú hafði Júlía reikað um sólgullna sanda í vökudraumum sinum að undanförnu og ekki getað um annað hugs- að en WÁ-verðlaunin. Hermann hafði lika hlakkað til Hawaiiferðarinnar — en nú var sem liún hefði glatað öllum sínum töfraljóma, eins og flest annað. Hann gat meira að segja séð það yfir þvera stofuna, ineð þessum djöfullegu gleraugum, að liúla- stelpurnar á auglýsingalitmyndunum voru í plastpilsum og ósmekklega 'málaðar í framan. Hermann gerðist stöðugt daprari i bragði og þyngri í skapi. Að vísu brosti liann enn, en það bros var ekki nema svipur hjá sjón, nánast stirðnuð gretta. Og þegar mennta- skólanemendurnir þyrptust inn í vagninn með hlátrum og glensi, tók hann ekki lengur undir glens þeirra með gamanyrðum og fyndni; bað þá einungis að vera fljóta að koma sér fyrir. Nú, þegar hann sá andlit þeirra gegnurn nýju gleraugun, fannst honum lítt um; svipurinn frekjulegur, framkoman óstýri- lát. Svipað var um ungu stúlkurnar. Nú sá um þegar leið að jólum. Hátiðarblærinn átti undurvel við sólskinsskap hans. Nú var þetta lika breytt. Það var eins og allur undirbúningurinn og umstangið kæmi bein- linis óþægilega við liann og jólaskreyting- arnar voru gersviptar öllum sinum töfrum. Og allt átti hann þetta uppá nýju gleraugun fyrir það skefjalausa raunsæi, sem þeim fylgdi. Nú sá hann nefnilega að jólaengl- hann að gullni haddurinn á liöfði Kitty Fridenzu, sem alltaf hafði minnt hann á geislabaug, var ekki annað en hárkolla. Og þvi fór fjarri að gamla konan, hún Corn- felter, væri sú hefðarlcona gamla stílsins, sem honum hafði áður virzt. Það voru göt á hanzkaþumlunum hennar og sokkarnir snúnir, og einu sinni, þegar hún hélt að hann tæki ekki cftir því, gerði sú gamla sér litið fyrir og stakk á sig einni af jóla- greinunum, sem hann hafði smeygt í glugga- falsið. Venjulega var Hermann glaðastur af öll- arnir svifu ekki lengur i loftinu á milli ljós- kerastauranna, lieldur dingluðu á vírstrengj- um, og annað var eftir þvi. Allt var svo ó- hugnanlega tilgerðarlegt og tildurslegt, séð gegnuin nýju gleraugun. Jafnvel hi'ð leiftrandi augnatillit feita, síbrosandi náungans, sem allir kölluðu ,,töfralækninn“, og Hermanni liafði jafnan fundizt svo mikið um koma, glötuðu öllum áhrifamætti sínum. Og meira en það, því að Hermann sá nú, að þetta voru ekki annað en lævislegar augnagotur, sem karlinn gaf Framhald á bls ' VIKAN .1 Ivl 18

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.