Vikan


Vikan - 17.12.1964, Blaðsíða 2

Vikan - 17.12.1964, Blaðsíða 2
• V-’ ■ ? 9 , BROTNÁÐI NÖGL ?? ju. ad vísu,-en gerir ekki svo mikið til,-þvi ad meó n«u íTlOdGl /1311 geturdu búid til nýja alOmin. nmm mode nai 1 algjör nýjung i handsnyrtingu Svo dásamlega einfalt er það: Plastmótinu er komið fyrir á fingrinum, grunnvökvinn borinn á og síðan dropi af sjálfu efninu. Eftir örstutta stund er nýja nöglin tilbúin til snyrt- ingar. Nýja nöglin er sterkari en þínar eigin, og efnið má jafnvel nota til þess að styrkja brotgjarnar neglur. snyrtivörur lif Laugavegi 20A — Sími 19402 r I fullri alvöru: Er rétt að lækka giftingar- aldurinn? Einn af klerkum höfuðstaðar- ins hefur vakið á þvi athygli í blaðagrein, að ýmis rök mæli , mcð því að lágmarks giftingar- aldur sé óþarflega hár. Eág- marksaldur þessi var sem kunn- ugt er hækkaður með sifjalögun- um frá 1921. Hann hafði áður verið bundinn víð l(i og 18 ár en var þá hækkaður i 18 og 21 ár. Hann segir, að sér finnist skynsamlegt að taka aftur upp gamla aldurstakmarkið vegna þess að það sé mikils um vert að börn og unglingar séu alin upp í þeirri trú, „að æskumað- urinn eigi hreint og beint að vera fær um að taka á sig skyld- ur og ábyrgð, en ekki að vera eins og hálfgerðir óvitar fram á þrítugs aldur.“ Ástæðan fyrir þvi að lágmarks- aldurinn var liækkaður, hefur trúlega verið sú, að löggjafinn • vildi gera strangari kröfur til þeirra, sem tækjust á hendur þá ábyrgð, sem lieimilisforræði eru. Ef til þess liafa legið góð og gihi rök, þá eru þau vafa- lílið jafn gild nú, jafnvel þótt það sé liaft í huga eins og prest- urinn segir, „að obbinn af ungu fólki hefur tekið út meiri líkam- legan þroska innan við tvítugt heldur en eldri kynslóðin fyrir svo sem Iiálfri öld.“ En hvað um hinn andlega þroska: Ætli það sé ekki hann, sem mestu máli skiptir í þessu sambandi? !Ég álít, að hækkun lágmarlts- aldursins hafi ekki verið byggð á misskilningi; miklu fremur á talsvert haldgóðum rökum. Það er alkunna, að fólk á þessum aldri hefur yfirleitt sveimandi og óþroskaðar tilfinningar, enda þótt ekkert vanti uppá þroska líkamans. Þar al' sprettur mis- ræmið og vandamálin. Sextán ‘ ára stúlka og átján ára piltur eru tæpast búin að koma auga á ýmsar hinar köldu staðreyndir lífsins; þeim hættir til að líta á samband sitt í rósrauðum bjarma. En á þessum aldri get- ur sá bjarmi liæglega orðið skammlífur. Hvað sem öllum lágmarksaldri líður, þá fer allt- af einhver ákveðinn hluti af Framhald á bls. 37.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.