Vikan


Vikan - 17.12.1964, Blaðsíða 40

Vikan - 17.12.1964, Blaðsíða 40
Husqvarna Eru nytsamar tækifærisgjafir Husqvarna straujárn Husqvarna vöfflujárn Gonnor Ásgeirsson hí. SuSurlandsbraut 16. Sími 35200 Husqvama Hns(|varna eldavélin er ómissandi í hverju nútíma eldhúsi — þar fer saman nýtízkulegt útlit og alit það sem tækni nútímans getur gert til þess að matargerð- in verði húsmóðurinni auðveld og ánægjuleg. Husqvarna eldavélar fást bæði sambyggðar og með sérbyggðum bökunarofni. Leiðarvísir á íslenzku, ásamt fjölda mataruppskrifta fylgir. Eldri kaupendur fá sendan leiðarvísi gegn kr. 25,00 greiðslu. Hann fer austur hvenær sem færi gefst, til að halda athugunum sín- um áfram, og nú hefur hann feng- ið í lið með sér nokkur fyrirtæki, sem styðia hann hvert á sinn hátt til framkvæmda. Hjá einu þeirra fær hann lánaðar, leigðar eða gefnar pípur, annars staðar fær hann sápu til að athuga áhrif henn- ar á hveravatnið, enn annars stað- ar hjálpa menn til með flutninga á tækjum austur og VIKAN vill gera sitt til að vel megi heppnast. Þetta er nefnilega ekki lengur neitt gamanmál, sem menn gera gcðlátlegt gys að. Það er vafalaust milljónum króna varið á hverju ári til að laða hingað ferðamenn, og hvort sem Geysi er minnzt í því sambandi eða ekki, þá er það að- eins tvennt, sem útlendingar vita um landið, ef þeir þá vita nokkuð. Það er að hér er eldfjall, sem heitir Hekla og geysir, sem heitir Geysir. Allir vita að eldfjöll gjósa ekki fyrir ferðamenn, og þeir vita líka að svona frægur goshver eins og Geysir er, hlýtur að gjósa fyrir ferðamenn. Þess vegna er ekki annað en duga eða drepast — láta Geysi gjósa aftur, eða hætta alveg að tala um hann, en bora þess í stað eina fallega ferðamannaholu hérna í bæjarlandinu, sem hægt er að skrúfa frá kl. 14 og 16 alla virka daga á tímabilinu frá 1. júnf til 31. ágúst ár hvert. Það þarf ekki að fara alla leið austur í Haukadal til að útbúa slíkan automat. G.K. Að feðra börn og borga fyrirfram Framhald af bls. 11. átt að kosta í sölu kr. 300 þúsund. Þar við bætist svo sú upphæð, sem til hefði þurft að gera höllina að mannsæmandi vistarveru. Ekki þori ég að spá um, hversu mikill kostn- aður hefði svo farið I endurbætur á húsnæðinu, ef eftir lýsingum bréf- ritara að dæma, hefur varla vant- að mikið á, að endurbyggja þyrfti húsið. Tvívegis bauðst mér í haust hús- næði, sem átti að leigjast fyrir það eitt, að standsetja það. Hvort tveggja voru kofaræksni utan við bæinn. [ öðrum kofanum var raf- magn og olíufýring. Þar fylgdi með að hafa húseigandann í einu her- berginu og gefa barni hans að éta og líta eftir því daglangt. Hinn kofinn er langt úr alfaraleið, æfa- gamall og kominn að hruni, raf- magnslaus, upphitaður með olíu- kyntri kolaeldavél og olfuofni. Það mætti kannski stugga inn í hann fé til skjóls fyrir vondum veðrum, en mannabústaður er sá kofi ekki lengur. Og kostnaðurinn við stand- setningu hvors hússins um sig, ásamt aukakostnaði við milliferð- — VIKAN 51. tbl.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.