Vikan


Vikan - 17.12.1964, Blaðsíða 30

Vikan - 17.12.1964, Blaðsíða 30
Þegar komið er heim úr bíó eða leikhúsinu FISKTOPPAR Þennan rétt má gera íyrr um daginn og hafa tiltækan í ísskápnum þegar heim er komið um kvöldið. 1 kg góður fiskur, þorskur eða ýsa, salt. I hvern líter vatns er sett 1 matsk. salt, 2 matsk. edik, 1 laukur, 3 heil piparkorn, 5 heil allrahanda korn, 1 Iárviðarlauf, dill. Hluapið gert úr: 12 blöðum matarlím í hvern líter fisksoðs. Skreytt með: 2 harðsoðnum eggjum, 200 gr rækjur, grænt dill eða persilja (eftir því hvað hægt er að fá), 1—2 tómatar, 1 sítróna Vi 1 rjómi, 1 tsk. rifin piparrót, svolítið salt, örlítill sykur, 1 tsk. edik. Fiskurinn hreinsaður, nuddaður að innan með salti og látinn standa á köldum stað um stund. Lögur soöinn úr vatni og kryddinu, það mikið að hann geti náð yfir fiskinn. Fiskurinn síðan guíusoðinn á rist í pottinum. Soðið má ekki sjóða of mikið, heldur aðeins malla. Ltáið svo fiskinn kólna, síiö soðið vel og látið suðuna koma upp aftur. Bræðið matarlímið og blandið súpuna. í botninn á litlum formum er hellt svolitlu hlaupi og eggjasneiðum og rækjum raðað þar í og myndað fallegt mynztur. Látið það stífna áður en fiskurinn, sem brotinn hefur verið í smástykki, er settur í, ásamt þvi sem eftir er af hlaupinu, sem haldið hefur verið volgu á meðan. Þegar það er kalt, er toppunum hvolft úr formunum, raðað á fat og utan með sítrónusneiðum, tómötum og dill. í miðjuna er þeyttur rjóminn settur, sem blandaður hefur verið piparrót. * 'r JOLAGLÖGG 1 flaska rauðvín, 2 dl portvín, 100 gr sykur, 8—10 negul- naglar, 1 stk. engiferrót, 1 heil kardimomma (hýðið tekið af), 1 kanilstöng, 50 gr pommeransbörkur, 25 gr möndlur, 100 gr rúsínur. Öllu blandað saman og sett í pott (nema rúsínum og möndl- um) og hitað að suðumarki, en suðan má alls ekki koma upp. Möndlunum og rúsínunum bætt í. Sé óskað eftir sterk- ari drykk er gott að bæta rommi eða koníaki í eftir smekk. Borið fram í púnsskál og ausið í litla bolla eða púnsglös. Sé tækifærið hátíðlegt, má leggja grind með molasykri yfir skálina, hella svo dálitlu af glögg yfir eða hreinu koníaki, kveikja í og bera fram logandi. ÁVAXTAPÚNS Zy2 bolli ósætur grapefruitsafi, 2V2 bolli ósætur ananas- safi, */« bolli sykur, 2 kanilstengur, 1 tsk. negulnaglar. Hitið allt að suðu og látið svo aðeins malla í 5 mín. Borið fram heitt. •=a_0 EGGJASNAPS Eggjasnaps er alltaf vel þeginn kvölddrykkur og má gcra hann áfengan eða óáfcngan að vild. 1. 8 egg, 1 bolli sykur, 1 ',í bolli eða mcira af ananassafa, V2 I rjómi, rifinn appelsínubörkur. XI. 8 egg, 1 bolli sykur, zy2 bolli mjólk eða mcira, Ví 1 rjómi, sherry, romm eða annað vin eftir smekk, rifið múskat. Eggjarauðurnar og helmlngurinn af sykrinum þeytt vel saman. Ávaxtasafinn eða mjólkin sjóðhitað og rjómanum bætt í. Hellt yfir eggjarauðurnar og hitað aftur, en hrært stöðugt í. Víninu bætt f, sé það notað. Eggjahviturnar stífþeyttar og hinn helmingur sykursins settur í og því blandað varlega í hcitan vökvann. Rifnum appelsínuberki stráð út á ávaxta- snapsinn en múskati á vínsnapsinn. Borið fram heitt. VIKAN 51. tbl.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.