Vikan


Vikan - 17.12.1964, Blaðsíða 41

Vikan - 17.12.1964, Blaðsíða 41
ir, þQr sem þetta var fyrir utan bæ, hefði ekki komið betur út en að leigja í bænum, þótt strembið sé. Og ýmsar eru sögurnar, sem maður hefur heyrt. Kunningi minn, maður með konu og tvö ung börn, hefur verið húsnæðislaus síðan um mitt sumar og hýrzt í horni hjó tengdamóður sinni, fékk nýlega loforð fyrir húsnæði — einu her- bergi, litlu eldhúsi og geymslu- skonsu — til 6 mónaða. 2500 krón- ur ó mónuði og allt fyrirfram — nóttúrlega hiti og rafmagn að auki. Væri herbergið að tarna til sölu, með sinni eldhúsboru og geymslu- kompu, myndi verðið ó því sam- kvæmt þessu vera 300 þúsund krónur. Og mér er til efs, að marg- ir yrðu gróðugir ( þau kaup. Einn gat fengið leigða tveggja herbergja nýja ibúð í hóhúsi ef hann kostaði og sæi um mólningu ó henni. Leigan ótti að vera fjögur þúsund ó mónuði og órið fyrir- fram. Einn gat fengið gamla en vel með farna fjögurra herbergja íbúð, ef hann vildi borga fyrir hana 6 þúsund krónur ó mánuði og tvö ár fyrirfram. Og þannig mætti lengi telja. Ein furðulegasta sagan, sem heyrzt hefur er um heimilisföðurinn, sem gat fengið rétt til að leigja ákveðna, þriggja herbergja ibúð, nýja, fyrir 5.500 krónur á mánuði, ef hann vildi taka að sér að feðra barn, sem húseigandinn hafðl é sínum snær- um. Hér að framan hefur verið sýnt fram á, að ekki er í öllum tilfellum um okur að ræða, þótt íbúðir séu leigðar dýrt. En þetta ákvæði um fyrirframgreiðslu, sem virðist nokk- uð fast orðið í húsnæðismálum höfuðstaðarins, hefur mörgum orðið erfiður biti. Flestum er erfiðara að snara út — segjum 48 þúsund krón- um — í einu lagi en að skipta þeirri upphæð I 12 hluta og borga s(na ögnina í hverjum mánuði — 4000 krónur í hvert skipti. Með fyrir- framgreiðslunni verður leigjandinn alls að borga um 2.200 krónum meira en leiguupphæðin hljóðar upp á, því í ófáum tilfellum verður að taka víxil fyrir fyrirframborgun- inni, og með því að greiða víxil- inn mánaðarlega niður sem svarar mánaðarleigu, hlaðast þessir vext- ir á. Fyrir nú utan það, hve erfitt er að fá víxil! Svo er eitt atriði enn, sem áður nefndur bréfritari minnist á. Hann segir svo: „Til að bæta síðan gráu ofan á svart, er víða sett það skilyrði, að á framtali sé aðeins lítill hluti leigunnar gefinn upp. Sbr. maður leigir (búð fyrir kr. 3.000,00— 4.000,00 á mánuði, en kvittunin hljóðar aðeins upp á kr. 600,00. Skyldi slíkt og þetta ekki heyra undir skattsvik?" Jú, á því er enginn vafi. Svona lagað heitir skattsvik. Og engu er um að kenna öðru en linkind leigj- endanna og neyð. Sá, sem hikar við að ganga að þessum kjörum, misSir íbúðina í hendur öðrum, sem vílar ekki fyrir sér að gangast undir skattsvik, sem síðan slá til baka eins og búmerang með því að hækka skattinn á honum sjálf- um — bæði vegna aukins veltufjár, af því að hann sleppur svo vel með húsaleigu — eftir framtalinu — og einnig vegna þess að hin almennu skattsvik hækka til muna gjöld þeirra, sem telja samvizku- lega fram, annað hvort af sak- leysi sínu eða af því að þeir geta ekki annað. En það liggur við, að það sé verra að hafa gert sér Ijóst, að ekki er endilega um okur að ræða, þótt meðalíbúð kosti á mánuði hátt ( mánaðarlaun verkamanns. Því þá kemur svo glögglega í Ijós, hvað byggingakostnaður er æðisgenginn. Það var þess vegna, sem ég hóf þessa grein með því að vísa ( Morgunblaðið og Vísi. Þessi blöð eru málgögn stærsta og valdamesta stjórnmálaflokks landsins, og von- andi líta forráðamenn hans ein- hvern tíma ( blöðin s(n. Þeir ættu að gera það til tilbreytingar, svo sem eins og eina viku, helzt kring- um mánaðamót, að hætta að hnusa eftir því hvað um þá stendur í þingfréttunum, og lesa þess ( stað húsnæðisauglýsingarnar. Ég trúi því ekki, að þeir séu svo ómann- legir, að þeir fari þá ekki að grennslast fyrir um, hvað að baki auglýsinganna liggur. Því það þarf að breyta pólitíkinni. Það er algengt á (slandi, að boðað sé til verkfalla og kjarabæt- ur heimtaðar. Atvinnurekendur streitast á móti, og stundum finnst manni, að allt þetta brölt sé að- eins skollaleikur þeirra sem ráða verkalýðsmálum og þeirra, sem standa fyrir fjármálum þjóðarinn- ar. Hinir fyrrnefndu rembast við að skrúfa upp kaupið, en hinir síð- arnefndu leggja allt kapp á að gera það að engu með auknum verðhækkunum á öllum sköpuðum hlutum. Af þessu kapphlaupi verð- ur það, sem kallað er verðbólga, en það bólgukýli pínir þjóðina. Aðal fótur meinsemdarinnar er þessi gífurlegi húsnæðiskostnaður, sem sprettur af fáránlega háum byggingakostnaðl. Satt er það að vísu, að margir byggja brjálæðis- lega dýrt og skynsemdarlaust, en allt, sem til bygginga þarf, er óheyrilega dýrt. Að ekki sé mlnnzt á sviksemi verkamanna þeirra og iðnaðarmanna, sem við bygging- arnar vinna. Sé nokkur vilji hjá forráðamönnum þjóðarinnar til þess að stöðva þessa verðbólgu, stinga á kýlinu og græða það, verður þegar í stað að grípa til róttækra ráðstafana. Það sér hver heilvita maður, að ekkert normalt efnahagslíf getur þróazt, þar sem meðalmaðurinn verður að borga um 40% brúttólauna sinna — eða jafnvel melra — fyrir þau hlunn- indi ein, að fá að hafa fjóra veggi utan um sig og fjölskyldu sína og NYTT! NYTT! NYTT! VIKAN 51. tbl. 41

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.