Vikan


Vikan - 17.12.1964, Blaðsíða 47

Vikan - 17.12.1964, Blaðsíða 47
Fiinmta heftið komið með öll- um nýjustu textunum. Sendið kr. 25,00 og þið fáið heftið sent um hæl burðargjaldsfritt. NÝIR DANSLAGAIEXTAR Box 1208, Reykjavik. Þúsundir kvenna um heim allan nota nú C. D- INDICATOR, svissneskt reikn- ingstæki, sem reiknar nákvæmlega út þá fáu daga í hverjum mánuði, sem frjóvgun getur átt sér stað. Lækna- vísindi 56 landa ráðleggja C. D. IND- ICATOR fyrir heilbrigt og farsælt hjónaband, jafnt ef barneigna er ósk- að sem við takmarkanlr þeirra. C. D . INDICATOR Pósthólf 1238 — Reykjavfk. Sendið eftlrfarandl afklippu ásamt svarfrímerki tU C. D. INDICATOR, Pósthólf 1238, Rvik, og vér sendum yður allar upplýsingar. Nafn ......................... og sagt henni, að allt væri ! lagi, og svæft hana svo hamingjusama á ný. Stúlkan hafði krafizt þess að fá að sofa þannig. — Eg fer ekki að sofa nema að þú haldir á mér, hafði hún sagt. — Eg verð að vita, að þú ert hér alltaf.Það væri hræði- legt að vakna og hafa þig ekki hjá sér. Gerðu það James. Gerðu það duschka. Bond hafði farið úr jakkanum og tekið af sér bindið og komið sér fyrir í kojuhorninu með fæturna uppi á töskunni sinni og Ber- ettuna undir koddanum, innan seil- ingar. Hún hafði ekkert skipt sér af byssunni. Hún fór úr öllum föt- unum, nema hún tók ekki af sér svarta flauelisborðann, sem hún hafði um hálsinn, og reyndi að vera ekki lokkandi, þegar hún klifr- aði up í kojuna og kom sér fyrir í þægilegri stellingu. Svo hafði hún rétt báðar hendur upp á móti hon- um. Bond hafði dregið höfuð henn- ar aftur á bak á hárinu og kysst hana einu sinni lengi og fast. Svo hafði hann sagt henni að fara að sofa og hallaði sér aftur á bak og beið óþolinmóður eftir að ná valdi yfir líkama sínum. Hún geispaði syfjulega og lagði annan hand- legginn yfir læri hans. I fyrstu hélt hún honum fast, en smám saman slaknaði á handlegg hennar og hún var sofnuð. Bond einbeitti sér að því að hætta að hugsa um hana og tók í staðinn að velta fyrir sér fram- haldi ferðarinnar. Brátt myndu þau vera komin út úr Tyrklandi. En gengi þeim nokk- uð betur ( Grikklandi? Það var ekki kært milli Grikklands og Eng- lands. Og Júgóslavía? Hvoru meg- in var Tító? Sennilega beggja meg- in. Hverjar sem fyrirskipanir MGB mannanna voru, vissu þeir þegar að þau Tatiana voru með lestinni, eða myndu brátt komast að því. Hann og stúlkan gátu ekki setið fjóra daga í þessum klefa með tjöldin fyrir. Vitneskjan um þau myndi berast aftur til Istanbul, það yrði hringt frá einhverri brautar- stöðinni og með morgninum myndi hvarf Spektor vélarinnar uppgötvast. Hvað svo? Yrði gripið til snöggra gagnráðstafana gegnum rússnesku sendiráðin í Aþenu eða Belgrad? Yrði stúlkan tekin föst sem þjófur? Eða væri það alltof einfalt mál? Og ef þetta var flóknara — ef þetta var hluti af einhverju dular- fullu samsæri — hvernig átti hann að komast undan því? Atti hann og stúlkan að yfirgefa lestina ein- hversstaðar á miðri leið? Fara út úr lestinni, vitlausu megin, yfir tein- ana, leigja sér bil og komast ein- hvernveginn heim til London? Úti fyrir vottaði fyrir nýjum degi. Bond leit á úrið sitt. Klukkan var fimm. Brátt myndu þau verða kom- in til Uzunkopru. Hvað var að ger- ast í lestinni fyrir aftan hann? Hverju hafði Kerim áorkað? r BEZTA JÓLAGJÖFIN JUpincu saphir- fást hjá úrsmiðum Hair-Cream, Talkum, Roll-on After Shave og „Close Shave“ froöa. -£> Roll-on After Shave og Talk- um. Krem Cologne fyrir herra, Roll-on After Shave og Talkum. O Ferðaveski með Roll-on After Shave, talkumi og herrasápu. Krem Cologne fyrir herra, Roll-on After Shave, Hárkrem, Deodorant, Talkum og „Close-Shave“ handa bezta vininum. TANG Ileimlli Frctmhald í næsta blaði. VIKAN 51. tbl. —

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.