Vikan


Vikan - 17.12.1964, Blaðsíða 16

Vikan - 17.12.1964, Blaðsíða 16
4 SKEMMTILEGAR JÓLASKREYTINGAR Ef ykkur vantar jólaskreytingar í stofumar eða á matborðið, þá er mjög auðvelt að búa þær til og það er ekkert smáræði sem hægt er að spara með því móti. Hér eru nokkrar góðar hugmyndir. Fyrsta skreytingin er mjög auðveld. Kúpt glerskál, sem gjarnan má skreyta með álímdum stjörnum úr gull- og silfurpappír, er fyllt sandi. í sandinn er stungið kertum, grenigreinum, greinum með rauðum berj. um og ýmsu jólaskrauti, sem handbært er. Þetta er einfalt og fallegt. Önnur er fallega lagaður steinn, sem lakkaður er með glæru eða mislitu lakki. Hann er notaður sem sökkull undir kerti, greinar og alls konar skrautkvisti, sem festir eru á steininn með gipsi. Þriðja er köggull úr kítti, sem lagaður er í fjallsmynd, og settur á stráfat eða laglegan disk. Stóru kerti er stungið í kíttið, sem síðan er hulið mosa. Mosinn er festur á kíttið með eldspýtum, og svo er þetta skreytt með grenikönglum, sem festir eru á endann á band- prjónum, grenigreinum og einum litla jólaenglinum, sem talað er um annarsstaðar í þessari opnu. Sú fjórða er falleg skreyting á borð. Það er lítið jólatré, búið til með því að vefja saman stálvír. Neðst á kertin er festur kragi úr gull- pappír og síðan eru þau fest á vírendana, með því að bora göt á kertis- botninn með heitum bandprjóni. Um leið og stofninn er vafinn, eru grenigreinar fléttaðar með, og auðu blettirnir vafðir síðast með mis- litu garni. Þrír til fjórir fætur halda ,,trénu" stöðugu. ENGLAR MEÐ LIÐAÐ HÁR ÚR ULLARGARNI Efnið er gylltur pappír, glanspappír, hvítur kartonpapír, svolítið ullargarn og lím. Teiknaðu hring, 7 cm radíus, á gyllta pappírinn. (Ef þú hefir ekki sirkil eða rúðu- pappír má nota hæfilega stóran disk fyrir kjólinn, og lítið glas fyrir kragann). Skiptu hringnum 1 tvennt, það er aðeins notaður hálfur hringur í hvern kjól. Þessi hálfhringur er límdur saman, eins og kram- arhús. Kraginn er hringur, 2‘/2 cm radíus, úr glanspappír og líka límdur saman eins og kramarhús, en nú er allur hringurinn notaður. Vængirnir eru teiknaðir eftir mynztrinu á kartonpappírinn, sem er brotinn saman, þannig að vængirnir tveir, sem klipptir eru í einu, verði fastir saman, svo eru þeir límd- ir á kragann að aftan. Höfuðið er hvít bréf- kúla (sem líklega er hægt að fá í blóma- eða tómstundabúðum). Andlitið er málað bleikt og hársvörðurinn gulur eða brúnn. Hárið er búið til með því að vefja ullar- gami fast utan um bandprjón, haldið yfir gufu og síðan látið þorna á prjóninum. Prjónninn er svo dreginn úr og hárið límt á kúluna, þar sem hársvörðurinn var litaður. Höfuðið fest á búkinn, með því að stinga eldspýtu upp í kúluna, stinga henni síðan í gegnum kragann og kjólinn, og líma hana svo fasta innan í kjólnum, þannig að höfuð- ið hallist aðeins fram. FLÖSKUR í HÁTÍÐARBÚNINGI 0 Þa'ð hefir löngum þótt gott að fá eitthvað á jólapelann, og vínflaska getur verið skemmtileg jólagjöf, sérstaklega ef hún er skreytt á eftir- farandi hátt: Flaskan er vafin krep- pappírsræmum. Fyrir höfuð má nota jólatréskúlu, sem límd er föst á tappann. Biskupsstafurinn er bú- inn til úr stálvír eða pípuhreinsara, húfan úr pappír, englavængirnir úr þykkum teiknipappír og andlit mál- að á kúluna. Hár og skegg er búið til úr pappírsræmum, sem eru vafð- ar fast upp á bandprjón, þannig að þær krullist í endann. FALLEGA SKREYTT COCA-COLA FLASKA Þessi mynd þarf eiginlega ekki skýr- ingar við: í höfuðið má nota jóla- tréskúlu úr plasti, og í fötin krep- pappír eða pjötlur.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.