Vikan


Vikan - 17.12.1964, Blaðsíða 21

Vikan - 17.12.1964, Blaðsíða 21
Þessi mynd var tekin þegar VIKAN fór með litla dælu austur til að reyna að lækka í skólinni. Tilraunin heppn- aðist ekki vegna þess að dælan var of afkastalítil, en þó tókst að lækka vatnið nokkuð eins og sjó mó ó myndinni, en hvita röndin sýnir hvar vatnsyfirborðið var óður. Sigurður Hallsson, verkfræðingur, er að mæla hitann í vatninu. 'C' <0 Önnur tilraun var gerð í sum- ar til að lækka vatnið í skól- inni, en mistókst vegna ófull- kominna tækja. Mikill óhugi var þó ríkjandi meðal óhorfenda ó að hjólpa til. Ófullkomin tæki hafa hóð öllum tilraunum til þessa. O í vatninu og kaldara vatnið frá yfirborðinu leitar niður á við og kælir þar. Því kaldara, sem yfirborðsvatnið er, því meira kælir það niður á við. Og því stærri sem yfirborðsflötur vatnsins í skálinni er, því meiri kæling verð- ur á vatninu þar. Ef yfirborðið í skálinni sjálfri væri lækkað með einhverj- um ráðum, mundi yfirborðið minnka um leið, vegna þess að skálin mjókk- ar mikið eftir því sem neðar dregur, og kælingin mundi verða minni. Um leið mundi þungi vatnsins í skálinni minnka, og minna afl þurfa til að losa það úr skálinni, og jafnframt gera gos auðveldara. Það er einmitt þetta, sem skeði, þegar raufin var höggvin í skálina forðum. Þá lækkaði yfirborðið og minnkaði um leið að ummáli. En síðan hefur kísill hlaðizt aftur upp í raufina og jafnvægið, sem komið var á, raskazt. En rannsókn- ir benda til þess að ekki sé langt frá að kísillagið hækki um ca. 1 cm á ári hverju að jafnaði. Ef- það reynist rétt, hefði raufin, sem höggvin var í skálarbarminn 1935, hækkað um 30 cm síðan. Allar líkur benda til þess, að einhversstaðar sé hægt að finna þá hæð yfirborðsins í skálinni, að æskilegt jafnvægi myndist til þess að Geysir geti lifnað við að nýju og endurreist sína fornu frægð. Til þess að lækka vatnið í skálinni er hægt að viðhafa ýmsar aðferðir. Auðvitað mætti enn höggva úr gömlu raufinni og dýpka hana. Þá mætti einnig bora frárennslispípu eða op frá skálinni á ská niður í gegnum kísil- bunguna, með frárennsli þar fyrir neðan. Hægt væri einnig með litlum til- kostnaði að lækka skálarbarmana allt í kring, svo snyrtilegt sé, en kísil- myndunin læknar öll slík sár á mjög skömmum tíma. Svo einföld sem þessi ráðstöfun kann að virðast, þá er ennþá ein- faldara að sannreyna hvort hún mundi duga, og með slíkri prófun þarf alls enga röskun að gera á nokkrum hlut við hverinn og tilkostnaður yrði lítill. Til slíkrar prófunar má einfaldlega dæla vatninu úr skálinni og prófa sig áfram með mismunandi yfirborðshæð, þar til æskilegu jafnvægi er náð. Ef slík tilraun heppnast og Geysir fer aftur að giósa á meðan á þeim stendur, liggur einfaldasta, ódýrasta og snyrtilegasta lausnin beint fyrir — að útbúa skálina þannig að lækka megi í henni vatnið eftir þörfum, og láta gamla Geysi giósa eftir skipun. Þeir menn eru að sjálfsögðu til, sem ekki trúa því að það sé nóg að lækka vatnið í skálinni til þess að Geysir gjósi, og sumir ganga jafnvel svo langt, að þeir vilja engar vöflur á því hafa, heldur fara með bor austur, reka hann ofan í hverinn og bora hann út. í sjálfu sér væri kannske ekkert við því að segja, ef vissa væri fyrir því að með því væri hægt að lífga hverinn við. En því miður eru ástæður til að ætla að slíkt sé aðeins skot út í myrkrið, sem jafnvel getur haft alveg öfug áhrif og eyðilagt frægasta goshverinn að fullu og öllu. Það veit nefnilega enginn hvernig umhorfs er niðri í botni Geysis, og eins gæti skeð að með borun opn- aðist aðrennslinu ný leið og auðveldari, og vatn leitaði aldrei þangað aftur. Þarna er ekkert hægt að reyna áður en framkvæmt er, og gerður hlutur verður aldrei aftur tekinn. En auðvelt er að reyna þá aðferð að lækka yfirborðsvatnið án þess að nokkur verksummerki sjáist eða skemmd hljótist af. Sigurður Hallsson er ungur og hugmyndaríkur verkfræðingur, sem hefur nú um áraskeið gert athuganir á Geysi, fyrst á vegum ríkisins, en síðan á eigin ábyrgð, með leyfi frá Geysisnefnd. Hann hefur farið óteljandi ferðir austur í Haukadal í sínum frítímum og dvalið þar langar stundir við athuganir og mælingar. Sigurður hefur auðvitað myndað sér ákveðnar skoðanir um flesta hluti í sambandi við Geysi. Flestar þeirra byggjast á staðreyndum, sem fram hafa komið við rannsóknir hans og annarra. En óteljandi eru samt þau atriði, segir hann, sem enginn veit um ennþá. Mörg þeirra er hægt að rannsaka, ef tími, tæki og peningar eru fyrir hendi, en önnur verða hulin um ókomna framtíð, eins og t.d. hvernig hverinn er í raun og veru neðanjarðar. Um það hefur hann gert sér hugmyndir, sem byggjast á llkum. En um eitt er hann alveg viss. Það er að enginn veit með vissu hvort borun niður í strokk Geysis mundi endurlífga hann — eða eyðileggja. Jafnvel þótt líkurnar á því að það bæri árangur væru 90%, væri ekki réttlætanlegt að gera það fyrr en allar aðrar og saklausari aðferðir hefðu verið reyndar. VIKAN hafði samband við Sigurð Hallsson snemma í sumar, og fór fram á samvinnu við hann um að gera þá tilraun að lækka vatnið í skálinni. Hann samþykkti það með glöðu geði, þvl hann hefur þá bjarg- föstu skoðun að það sé skylt að gera áður en hafizt er handa með aðrar og óafturkallanlegar aðgerðir. Leyfi til þessarar tilraunar fékkst með því skilyrði að Sigurður sæi um framkvæmdir. Lítil vatnsdæla var fengin að láni hjá Vatnsveitu Reykiavíkur, og haldið austur í góðu veðri. Dælan var tengd við vatnið í skálinni og tekið til við að dæla ár henni. Á tiltölulega skömmum tíma tókst að lækka vatnsyfirborðið um nokkra sentimetra niður fyrir raufarbotninn, en þá kom í Ijós, að dæl- an hafði ekki lengur við innrennslinu inn f hverinn. Margar ástæður voru til þess, dælan var of afkastalítil, vatnið Framhald á bls. 39. VIKAN 51. tbl. — 21

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.