Vikan


Vikan - 17.12.1964, Blaðsíða 43

Vikan - 17.12.1964, Blaðsíða 43
Jólagjöf karlmannsins fáið þér hjá okkur - Góðar vörur Góð þjónusta þak yfir. Ljós og hita að auki. Opin- ber giöld verða a.m.k. 25%. Þá eru komin 65%. Fæði 20%. Alls 85%. Þá er eftir að greiða Ijós og hita, klæði og annað sem telst til lífsnauðsynja. Með þessu móti verður maðurinn í algerri klemmu, og velta viðskiptalífsins kotrast saman og verður óeðlilega rýr. Árangurinn: Minni velta til að skattleggja, minni geta til við- skipta. Væri ekki ráð að lækka öll giöld á öllum byggingavörum, og stuðla þannig að lægri bygg- ingakostnaði? Líka mætti hið opin- bera setia mikinn kraft í að byggja haganlegar og góðar íbúðir, segium 500 eða 1000 á ári eftir þörfinni, skipta þeim í tvo flokka. Hafa helm- inginn til sölu á hóflegu verði og hinn helminginn til leigu með við- unanlegum leigukiörum. Ur núver- andi ófremdarástandi er hægt að bæta, ef viljinn er fyrir hendi. Um leið og hinn vinnandi maður á meiri afgang af tekjum sínum, get- ur hann veitt sér meira og verður ánægðari, þar með lifnar yfir við- skiptalífinu og veltan verður meiri. Ríkið og bæiarfélögin fá skattana sína aftur inn af aukinni veltu. Kannski eru fleiri leiðir til og betri leiðir, en það bólar ekkert á því, að að þeim sé leitað, né neitt gert í málinu. Að vísu stendur nú til að auka útlán á vegum Húsnæðis- málastjórnar allverulega, en það lækkar byggingakostnaðinn ekki hót. Allar vörur og öll vinna eru á sama verði eftir sem áður, og varla eykst samvizkusemin og ráð- deildin. Kannski segir einhver sem svo, að það sé tilgangslaust að tala um ódýrari byggingarmáta og þess háttar, því fólkið vilji lúxusíbúðir. Allt í lagi. Leyfum þeim að byggja sér lúxusíbúðir, sem það vilja, en þeir verða þá bara að leggia þeim mun harðara að sér og það er ekki nema sjálfsagt að skattleggja þá ( samræmi við þær tekjur, sem þeir sýna með byggingunni. Það á ekki að standa hinum venjulega meðalmanni fyrir þrifum, þótt fá- einir bitlingamenn og auðkýfing- ar hlaði milljónum utan á sig. Að lokum viljum við beina þeim tilmælum til allra þeirra, sem vita dæmi um dýra og fáránlega húsa- leigu, að þeir stingi niður penna og láti okkur vita. Það er ekkert einkamál þitt, lesandi góður, þótt þú srtjir í lélegu og jafnvel heilsu- spillandi húsnæði, og borgir háa leigu fyrir það. Það er mál allrar þióðarinnar. Við óskum eftir því, að væntanlegir bréfritarar láti nafns síns og heimilisfangs getið, en það fer ekki lengra án leyfis viðkom- anda. Við höfum ekki leyfi til að sitja þegjandi og horfa á, hvernig allt heldur áfram að hlaða utan á sig og launin verða að engu — það er meira um vert að eitthvað verði úr því, sem menn vinna sér inn, fremur en að hrópa stöðugt og æpa á hærri krónutölu. ★ VIKAN 51. tbl. — ^0

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.