Vikan


Vikan - 17.12.1964, Blaðsíða 15

Vikan - 17.12.1964, Blaðsíða 15
anna. Farþegarnir, aðallega bænd- ur á leið aftur til Grikklands, eftir helgardvöl með kunningium og vin- um í Tyrklandi, héngu út um glugg- ana og skvöldruðu við fjöldann á stéttinni. Lengra burtu, þar sem stöðvar- lýsingunni lauk og dökkblá nóttin tók við og stiörnurnar skinu gegn- um svartan kjaft stöðvarinnar, sá Bond rauðan punkt verða að græn- um. Stöðvarstiórinn kom nær. Braut- arvörður í brúnum einkennisklæð- um klappaði á handlegg Bonds. —• En oviture, s'il vous plait. Tveir ríkmannlegir Tyrkir kysstu ástmeyi- ar sínar, þær voru of fallegar til að geta verið konur þeirra — og stigu hlæjandi upp í lestina. Fleiri farþegar voru ekki eftir á pallin- um. Lestarvörðurinn leit óþolinmóð- ur á hávaxna Bretann, tók brautar- tröppurnar og hvarf með þær inn í lestina. Stöðvarstiórinn gekk ákveð- inn framhjá Bond. Senn hafði hann farið meðfram allri lestinni og þá myndi hann lyfta græna flagginu. Enginn kom hlaupandi eftir pall- inum í áttina frá guichet. Hátt uppi, fyrir ofan guichet, rétt upp undir þaki stöðvarinnar tók stóri vísir stóru, uppliómuðu klukkunnar, stökk áfram og stóð á tólf. Klukk- an var níu. Glugga var rennt nið- ur fyrir ofan höfuð Bonds. Bond leit upp. Það fyrsta sem honum datt í hug, var að svört slæðan væri ekki nógu vel sett upp. Tilraunin til að dylia þennan tiáningaríka munn og þessi spenntu bláu augu, var misheppnuð. — Fljótur. Lestin var komin af stað. Bond teygði sig f hnadfang og sveiflaði sér upp í vagninn. Lestarvörðurinn hélt ennþá opnum dyrunum. Bond flýtti sér inn. — Madam var sein, sagði lestar- vörðurinn. — Hún kom í gegnum ganginn. Hún hlýtur að hafa komið inn um aftasta vagninn. Bond flýtti sér niður teppalagð- an ganginn í áttina að miðklefan- um. Tölustafurinn sjö stóð í svörtu á hvítu málmskilti. Dyrnar voru í hálfa gátt. Bond flýtti sér inn og lokaði á eftir sér. Stúlkan hafði tekið af sér slæðuna og svartan stráhattinn. Hún sat í horninu við gluggann. Síður, vel sniðinn pels- inn, var opinn að framan og sýndi drapplita blússu og fellt pils í sama lit, hunangslita næionsokka, svart krókódílsskinnbelti og samlita skó. Hún virtist f fullkomnu jafnvægi. — Þú treystir mér ekki, James. Hann settist niður við hlið henn- ar. — Tania, sagði hann. — Ef það væri svolítið meira rúm hérna, myndi ég leggja þig yfir hné mér og rassskella þig. Eg hafði nærri fengið hjartaslag. Hvað kom fyrir þig? — Ekkert, sagði Tatiana sak- leysislega. — Hvað gat gerzt? Eg sagðist myndi verða hér og hér er ég. Þú treystir mér bara ekki. Og af því að ég veit, að þú hef- ur meiri áhuga fyrir heimanmundi mínum en mér, get ég sagt þér, að hann er þarna uppi. Bond leit kæruleysislega upp. Stór taska stóð á farangursnetinu við hliðina á tösku hans. Hann tók um hönd hennar. — Guði sé lof, að það hefur ekkert komið fyrir þig. Eitthvað í augum hans, ef til vill sektarmeðvitund, vegna þess að hann varð að viðurkenna fyrir sjálf- um sér, að hann hafði haft meiri áhuga fyrir stúlkunni en vélinni, olli henni ánægju. Hún hélt ánægð í hönd hans og hallaði sér aftur á bak í horninu. Lestin paufaðist hægt fram hjá Seraglio Point. Með þeirri hend- inni, sem laus var, tók Bond upp sígarettu og kveikti í. Honum flaug í hug að bráðum myndu þau fara fram hjá stóru girðingunni, sem Krilencu hefði átt heima bak við — þar til fyrir minna en tuttugu og fjórum klukkustundum. Bond sá fyrir sér atburðinn í hverju smá- atriði. Hvítar krossgöturnar, menn- ina tvo í skugganum, manninn, sem skreið út á milli rósrauðra varanna. Stúlkan horfði ástúðlega á and- lit hans. Hvað var hann að hugsa? Hvað fór fram bak við þessi köldu, stöðugu. grábláu augu, sem stund- um urðu mjúk, stundum eins og síðustu nótt, áður en ástriða hans brann út í örmum hennar, glitrandi eins og demantar. Nú var yfir þeim ský ókunnugra hugsana. Hafði hann áhyggiur af þeim? Hafði hann áhvggjur af öryggi þeirra? Ef að- eins hún mætti segja honum, að það væri ekkert að óttast. Að hann væri aðeins vegabréf hennar tii þess að komast til Englands — hann og stóra taskan, sem umdæmisstjóri Rússanna hafði látið hana hafa sama kvöldið í skrifstofunni. Um- dæmisstjórinn hafði meira að segja sagt þetta sama: — Hann er vega- bréf þitt til Englands, félagi lið- þjálfi, sagði hann glaðlega. — Sjáðu. Hann opnaði kassann: Glæ- ný Spektorvél. Gættu þess að opna ekki kassann aftur eða sleppa hon- um út úr klefanum þínum, þangað til þú kemst alla leið. Annars tekur Bretinn hana frá þér og kastar þér í burtu eins og ónýtri tusku. Það er vélin, sem þeir vilja. Láttu þá ekki taka hana frá þér. Annars hefurðu brugðizt skyldu þinni. Er það skilið? Merkjastólpa brá fyrir í bláu rökkrinu fyrir utan gluggann. Tati- ana horfði á Bond rísa á fætur, draga niður gluggann og píra út í rökkrið. Líkami hans var nærri henni. Hún hreyfði hnéð, svo það snerti hann. Hún var undarleg, þessi ástríðufulla blíða, sem hafði fyllt hana, síðan hún hafði séð hann standa nakinn við gluggann, kvöldið áður og halda gluggatjöld- unum frá. Vangasvipurinn undir úfnu, dökku hárinu, bjartur og föl- ur í tunglsljósinu. Og síðan þessi óvenjulega sameining augna þeirra og líkama, glóðin, sem skyndilega kviknaði milli þeirra — milli tveggja leyniþjónustustarfsmanna, sem óvinaherbúðir höfðu kastað hvor- um í fangið á öðrum, hvort um sig, niðursokkið í samsæri gegn landi og þjóð hins, óvinir að starfi, en samkvæmt skipun stjórna sinna elskhugar um hríð. Tatiana teygði út handlegginn og tók í frakka Bonds og togaði í. Bond dró upp gluggann og sneri sér við. Svo hallaði hann sér áfram, lagði hendurnar á loðfeldinn yfir brjóstum hennar og kvssti hana fast á varirnar. Tatiana hallaði sér aftur á bak og dró hann með sér. Það var barið tvívegis á dvrn- ar. Bond reis á fætur. Hann dró upp vasaklútinn sinn og flýtti sér að nudda varalitinn af vöru^um. — Þetta hlýtur að vera Kerim vin- ur minn, sagði hann. — Eg verð að tala við hann. Fa skal seg;a lestar- verðirum að búa um. Vertu hé-n kyrr meðan hann qerir bað. Eg verð ekki lenni. Eg \'erð að->irs fvrir framan dyrnar. Hann hallaði sér áfram og snerti hönd hennar og horfði á stór auqu hennar og hálfopinn munn. — Við höfum ai;n nóttina fyrir okkur sjálf. Fyrst verð ég að ganga úr skuqga um örvgoi þitt. Hann opnaði dyrnar og renndi sér út fyrir. Stórvaxinn líkami Kerims fyllti út í ganginn. Hann hallaði sér upp að koparhandriðinu, reykti oq starði fýluleqa út á Marmarahafið, sem minnkaði eftir því sem löng lestin fjarlægðist ströndina á leið inn í landið og norðureftir. Bond hallaði sér uop að riðinu við hlið hans. Kerim horfði á spegilmynd Bonds í dökkum giugganum. Svo sagði hann lágt: — Fréttirnar eru ekki góðar. Þeir eru þrír í lestinni. — Ah! Það fór rafstraumur eftir mænu Bonds. — Þoð eru þessir þrír ókunnu. sem við sáum þarna í skrifstof- unni. Þeir eru greinilega á eftir þér og stú'kunni. Kerim leit snöggt til hliðar. — Þá hlýtur hún að vera svikari. Eða hvað? Bond hélt huganum köldum. Svo stúlkan hafði verið beita. Og þó. Og þó. Nei, andskotinn eigi það. Hún gat ekki hafa verið að leika. Það var óhugsandi. Dulmálsvélin? Kannske hún væri ekki í töskunni þegar allt kæmi til alls. — Bíddu aðeins, sagði hann. Hann sneri sér við og barði lauslega á dyrnar. Hann heyrði hana snúa lyklinum lauslega í skránni og losa keðjuna. Hann fór inn og lokaði dyrunum. Hún varð undrandi á svipinn. Hún hélt að þetta væri lestarvörðurinn, sem hefði komið til að búa um rúm- ið. Hún brosti geislandi brosi: — Ertu búinn? — Setztu niður, Tatiana, ég verð að ta'a við þig. Hún sá kuldann í andliti hans og brosið dó á vörum hennar. Hlýð- in settist hún niður með hendur í kjöltu. Bond stcð yfir henni. Var sekt á andliti hennar eða ótti? Nei, aðeins undrun og kuldi í samræmi við hans eigin andlitssvip. — Hlustaðu nú, Tatiana. Það hef- ur svolítið komið fyrir. Ég verð að líta þarna í töskuna og sjá hvrot vélin er þar. Hún sagði svipbrigðalaust: — Taktu hana þá niður og gáðu. Hún skoðaði hendur sínar í kjöltunni. Svo það var komið að því. Eins og umdæmisstjórinn sagði: Þeir æt'uðu að taka vélina og kasta henr.i frá sér, kannske láta reka hana úr lestinni. Myndi þessi mað- ur gera henni það? Bond teygði sig upp, tók niður þunga töskuna og setti hana á sætið. Hann dró rennilásinn til hlið- ar og opnaði. Jú, þarna var grár emileraður málmkassi með þremur rcðurn af lyklum, rétt eins og rit- vél. Hann hallaði töskunni opinni í áttina til hennar. — Er þetta Spekt- or? Hún leit aðeins ofan í opna töskuna. — Já. Bond lokaði leðurtöskunni og setti hana aftur upp í hilluna. Hann settist niður við hlið stúlkunnar. — Það eru þrír MGB menn í lest- inni. Við vitum, að þeir eru menn- irnir, sem komu til bækistöðva þinna á mánudaginn. Hvað eru þeir að gera hér, Tatiana? Rödd Bonds varð lág og mjúk. Hann horfði á hana og rannsakaði hana með öllum sínum skilningarvitum. Hún leit upp. Það voru tár f augum hennar. Voru það tár barns, sem komizt hafði upp um? En það vottaði ekki fyrir sekt í andliti hennar. Hún virtist aðeins skelfd við eitthvað. Hún rétti fram hönd- ina og dró hana svo að sér aftur. Framhald á bls. 44. VIKAN 51. tW. — JtJ

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.