Vikan - 17.12.1964, Blaðsíða 32
5 stærSir af
kæliskápum.
Sjálfvirk affryst-
ing.
5 ára ábyrgS á
fyrstikerfi.
Algjörlega sjálf-
virk þvottavél
meS suSu.
Tekur 5 kiló af
þurrum þvotti.
Forþvottur.
4 þvotta stilling-
ar.
5 skol.
Þeytivinda.
Ódýrasta sjálf-
virka þvottavél-
in.
Mjög góðir greiðsluskilmálar
II
4
'hbimar
Stjörnuspáin gildir frá fimmtudegi til fimmtudags.
Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl):
Þú skalt hafa aðgát á fjármálunum, því innan
skamms þarftu að punda út með nokkuð háa fjár-
hæð. Kunningi þinn verður þér að miklu og ómet-
anlegu gagni þessa dagana. Þriðjudagur er heilla-
dagur fyrir kvenfólkið.
Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí):
Vikan verður talsvert viðburðarík og þú hefur
í mörg horn að líta. Þú munt afkasta miklu og
vera í mjög góðu formi til allra átaka. Um helg-
ina verður mikill undirbúningur að einhverju sem
á að ske innan skamms.
Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní):
Þú gerir axarskaft í vikulokin með miður þægi-
legum afleiðingum. Þú hefur gerzt sekur um þessu
líkt fyrr og skaltu nú hugsa alvarlega um málið.
Persóna sem þú umgekkst mikið fyrir nokkrum
árum kemur fram á sjónarsviðið.
Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí):
Þú færð sendingu, sem gerir þig nokkuð hugsi.
Næsta vika verður af þessum sökum nokkuð öðru-
vísi en ætlað var. Þú ert of uppstökkur og fýlu-
gjarn, slappaðu af og forðastu allt og alla, sem
hafa ill áhrif á þig.
Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst):
©Þú átt margar frístundir og skemmtir þér mikið.
Þú ert mjög vel til þess fallinn í þínum hóp að
nýta þér allan meðvind og koma öllum í gott
skap. Þór er boðið á skemmtistað, sem er mjög
óvenjulegt af þeim sem býður.
Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september):
©Eitthvert smáatvik verður til þess að koma af
stað miklum misskilningi. Eftir helgina gefst þér
fljótlega tækifæri til að gera hreint fyrir þin-
um dyrum. Þú verður fyrir truflunum af ýms-
um óviðkomandi aðilum.
Vogarmerkið (24. september — 23. október):
Þú verður fyrir verðskuldaðri gagnrýni í vik-
unni. Fyrri alla muni stökktu ekki upp á nef
þér, heldur bættu ráð þitt. Einn kunningi þinn
sýnir þér vott af fláræði, gefðu honum gott spark,
í eitt skipti fyrir öll.
Drekamerkið (24. október — 22. nóvember):
Þú færð mikinn tíma til að sinna áhugamálum
þínum og er það mjög vel. Það er eins og þú
sért að gera þér smám saman grein fyrir því
hvað það er nauðsynlegt að hafa eitthvert áhuga-
mál, sem lokar úti allt amstur hversdagsleikans.
Bogamannsmerkið (23. nóvember — 21. desember):
Þú eignast nýjan félaga, sem þú átt eftir að eyða
WpA mörgum stundum með. Þú hefur fengið ábyrgðar-
% 1 ™ mikið verkefni, sem þú leysir með prýði sökum
góðra aðstæðna. Einhverjar ógnanir og hættur
virðast steðja að umhverfi þínu.
Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar):
Þú gerir miklar breytingar í sambandi við að-
wn
búnað fjölskyldu þinnar. Maður, sem hefur lítið
komið við sögu þína, gerist nú hin mesta hjálpar-
hella. Þú færð fréttir af kunningjum, sem dvelja
fjarri þér. Heillatalan er 4.
Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar):
Það hafa orðið nokkrar breytingar á högum þín-
um um stundarsakir. Varastu öll fjárútlát og
óþarfa peningasóun, sem þó er mjög freistandi.
Fyrir nokkru fórstu á skemmtun, sem getur haft
óþægilegar afleiðingar.
©Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz):
Þú átt erfitt með að standast ýmsar freistingar
og verður að leggja nokkuð að þér við að sigr-
ast á þeim. Eyddu frítímum þínum við hollar
tómstundaiðkanir, þá mun allt ganga betur. Hafðu
gát á græneygu fólki.
Snorrabraut 44
02 — VIKAN 51. tbl.
Sími 16242.