Vikan - 11.03.1965, Blaðsíða 6
ULTRfl+LflSH Mascara
TIL AÐ LENGJA OG LENGJA ENNÞA
MEIR SILKIMJÚK AUGNAHAR.
ULTRA'LASH er fyrsti augnháraliturinn sem
lenglr og þéttir augnahárin án þess aS gera
þau stíf. Þessi einstaka efnablanda lengir án
gerviþráSa. Allt sem þér þurfiS aS gera er aS
bera ULTRA»LASH á meS hinum hentuga
TAPER-BRUSH sem byggir upp um leiS og
hann litar hvert augnhár. Ekkert auka erfiSi
og ekkert ergelsi út af -gljáalausum og klístr-
uSum augnhárum. ULTRA'LASH hleypur ekki
í kekki, né skilur eftir klessur eSa bletti. Þetta
er fyrsta skaSlausa efniS sem lengir og þéttir
augnhárin, þolir vatn og er lyktarlaust. Sér-
staklega auSvelt aS hreinsa á nokkrum sekúnd-
um meS Maybelline Mascara Remover. Kemur
í þrem góSum litum: VELVET BLACK, SABLE
BROWN og MIDNIGHT BLUE.
alltaf það hreinasta og bezta fyrir fegurð augnanna:
Einkaumboð á íslandi fyrir
Simms Mofor Units
(International) Ltd., London
ÞJONUSIAN
Önnumst ollar Yiðgerðir og stillingar
á SIMMS olíuvcrkum og cldsncytislokum
fyrir dieselvélar.
BlÖRN&HAIiDÓR HF.
SIÐUMÚLA9
SfMAR 36030.36930
Höfum fyrirliggjandi varahluti !
oliuverk og cldsncytisloka.
Leggjum óhcrzlu á aS Yeita eigendum
SIMMS olíuverko fljóta og góðo þjónustu.
TÍZKUSÝNINGARDÖMUR
Sæl Vika!
Mig langar til að koma dálitlu
á framfæri og ég valdi Vikuna
til þess, ég vona að ég fái þetta
bréf birt því ég veit að það hafa
fleiri áhuga á þessu en ég. Þetta
er í sambandi við tízkuskólana
og því sem því fylgir. Mig lang-
ar til að spyrja, af hverju er ekki
stofnað félag fyrir þær stúlkur
sem hafa verið í tízkuskólum og
hafa áhuga á að verða tízkusýn-
ingardömur? Þeim er ekki gefið
tækifæri til að sýna hvað býr í
þeim á þessu sviði t.d. hafa verið
haldnar sýningar hér og þær
stúlkur sem sýnt hafa, hafa yfir-
leitt ekki verið úr tízkuskólum,
það hefur bara verið leitað á göt-
um bæjarins af stúlkum sem hef-
ur verið haldið að séu hæfar til
að sýna föt það hefur ekki verið
leitað til þeirra sem lært hafa að
sýna föt. Að mínu áliti finnst mér
þetta vera mjög mikil móðgun
við þær stúlkur sem hafa verið
í tízkuskólum.
Svo þakka ég þér fyrir allt gott
sem komið hefur í Vikunni.
Skólastúlka.
P.S. Hvernig er skriftin. Væri
nokkur leið að fá birtar myndir
af Maríu, Thelmu og Guðrúnu?
-----— Það er ekki annarra að
stofna stéttarfélag tízkuskóla-
kvenna, þær verða að gera það
sjálfar og þá fyrst geta þær kom-
ið fram með sínar kröfur, og
verði þeim ekki sinnt, er sjálf-
sagt að fara í verkfall. Meðan
þær láta ekkert á sér kræla sjálf-
ar vcrður haldið áfram að
þramma um göturnar í leit að
stúlkum til að hengja föt utan á
og enginn getur sagt neitt við
því.
P.S. Skriftin er hörmulega ólæsi-
leg og stafsetningin bág. Óskir
þínar varðandi Maríu, Thelmu og
Guðrúnu uppfylltum við í 6. tbl.
1965.
ORÐSENDING TIL KENNARA.
-------Mig langar að koma á
framfæri ráði til kennara. Gerið
þið ykkur ekki grein fyrir því
að okkur krökkunum líkar bezt
við þá kennara sem tala við
mann eins og jafnaldra sína?
Glettast og hafa gaman af tví-
ræðum sögum en fara hvergi yf-
ir takmörkin. Ég á því láni að
fagna að hafa einn slíkan. Hann
er dásamlegur. Við berum bæði
virðingu fyrir honum og getum
talað við hann sem félaga. Því
miður er líka einn sem er algjör
andstæða. Við þorum varla að
anda í návist hans, af hræðslu
við að óhreinka loftið. Allt þarf
að vera slétt og fellt. Samt er
hann ekki kennari fyrir fimm
aura. Þeir mega taka þetta til sín
sem vilja.
Miðskólanemandi.
BREYTT LOFTSLAG.
Kæri póstur!
Viltu vera svo góður að veita
mér upplýsingar varðandi þetta
bréf mitt og helzt eins fljótt og
mögulegt er.
Það eru hjón (konan 35 mað-
urinn 42 ára) með telpu (13 ára).
Konan er hálfgerður sjúklinur af
tauga og vöðvagigt (búin að leita
til og ganga milli flestra gigt-
lækna borgarinnar án þess að fá
bata) telpan er ekki hraust fyrir
brjósti (fær oft bronkítis og
asma) en maðurinn vinnufær og
vanur flestri verkamannavinnu.
Þessi fjölskylda á ekki húsnæði
og engar eignir, sem sagt ein af
þeim sem rétt skrimta frá ári til
árs. Þó ekki sé fjölskyldan stór
(og algjört reglufólk sé hér um
að ræða) þó rétt hrekkur kaup
mannsins fyrir húsaleigu og
brýnustu nauðsynjum (svo fer
mikill peningur í læknishjalp og
meðul). Nú langar þetta fólk
svo mikið að reyna nýjar leiðir
og fara utan um tíma, eitthvað
þar sem hlýrra er, þar sem væri
von að mæðgunum batnaði las-
leikinn og jafnframt þar sem
maðurinn gæti unnið fyrir þeim.
Og spurningin er hvar væri lík-
legast að þetta fólk gæti bæði
verið sér til heilsubótar og unnið
jafnframt fyrir lífsviðurværi,
hvar í heiminum eru frekast
möguleikar?
Svo bið ég þig að birta ekki
bréfið, en þakka þér kærlega fyr-
ir ef þú verður svo góður að
svara þessu og gefa mér bend-
ingu, og með þá von í brjósti
ætla ég að fylgjast vel með póst-
inum í Vikunni á næstunni.
Virðingarfyllzt
Þ. Þ. Þ.
-------Það er ómögulegt fyrir
leikmann að segja til um það. 1
fyrsta sæti verður að setja úr-
skurð færs læknis um það, hvers