Vikan - 11.03.1965, Blaðsíða 7
konar loftslag þeim mæðgunum
bezt, og velja síðan landið með
tilliti til þess. En að loftslaginu
fráteknu eru sagðir góðir af-
komumöguleikar í Nýja-Sjálandi,
Ástralíu, Suður-Ameríku víðast
hvar og jafnvel SuðurAfríku —-
að minnsta kosti fyrir þá sem eru
duglegir og ósérhlífnir og hafa
lag á aff koma sér áfram.
GLEFSUR UM EFNI BLAÐSINS.
Bréf um efni blaðsins eru alla
tíð vel þegin, þar sem þau gefa
oft góðar vísbendingar um hvað
fellur í góðan jarðveg og hverju
er ábótavant. Hér koma nokkur
sýnishom úr slíkum bréfum:
... Finnst mér ágætar framhalds-
sögurnar, bara að þið haldið á-
fram að hafa þær jafn spennandi
og þessar sem núna eru í blað-
inu. Mér likar ágætlega smásög-
ur þekktra höfunda og annarra
ef þær eru nokkuð spennandi
og hafa eitthvað gildi, sakamála-
sögur eru oft ágætar hjá ykkur.
Póstinum og myndasögunum má
ekki slepþa, leiðarinn er bara
nokkuð góður stundum. Það
versta við Vikuna er það hvað
maður þarf að kaupa mikið af
auglýsingum ég gizka á að Vs
blaðsins séu auglýsingar en af
því blaðið flytur oft ágætis efni
þá getur maður ekki hætt að
kaupa það, sérstaklega vegna
framhaldssagnanna.
... Mér virðist blaðið hafa tekið
ótrúlega miklum framföram á
skömmum tíma, og er viss um að
það eykur mikið á helmilis-
ánægju á þeim fjölda heimila
sem blaðið kemur á.
... Pósturinn er ágætur — þó
finnst mér að sá sem svarar megi
vara sig á að snúa ekki um of út-
úr fyrir bréfriturum til þess að
reyna að vera fyndinn.
... Mér finnst skemmtilegt að
sjá myndir frá heimilum og við-
töl við fólk, eins og t. d. Barböru
og Magnús Á. Árnason — og
Aldarspegil.
... Smásögur eftir innlenda höf-
unda eru heppilegar í blaði sem
þessu —- ef þaer eru ekki í atom
eða tortímingarstíl.
Magn auglýsinga í blaðinu hef-
ur ákveðið hámark og fer aldrei
fram úr '/4 af efni þess. Hins
vegar er Vikan mjög eftirsótt
blað af auglýsendum og er úti-
lokað aff skera auglýsingarnar
niður. Þar að auki hafa þær oft
gildi í sjálfu sér og stuðla bæði
beint og óbeint að því að gera
blaðið fjölbreyttara og betra að
efni tfl.
SVR.
Pósturinn, Vikunni.
Það er alltaf verið að skamm-
ast út í okkur strætisvagnabíl-
stjórana og það er látið við okk-
ur eins og við séum ómöguleg
stétt. Fólkið er svo fljótt að
gleyma því sem vel er gert og
man aðeins það sem vont er.
Ef einhver okkar er ekki alveg
eins og hann ætti kannski að
vera — og það er misjafn sauð-
ur í mörgu fé — er öll stéttin
vond. En það er adlrei minnzt á
það þó við sýnum tillitssemi í
umferðinni og séum almennileg-
ir við fólk og stoppum jafnvel
milli stöðva fyrir því, þó okkur
sé harðbannað það. Og svo þakk-
ar það ekki einu sinni fyrir og
jafnvel reynir að snuða á far-
gjaldinu. Ég gæti sagt margar
ljótar sögur af farþegum og lík-
lega ljótari en þeir gætu sagt
um okkur þó þeir reyndu að
tína til allar ljótustu sögur sem
til eru um þá stéttarbræður okk-
ar sem meirihluti okkar er ekk-
ert hrifinn af. Mér finnst þið
þarna á Vikunni ættuð ekki að
taka svona óhróður þegar hann
er í svona miklum minnihluta.
X 9,5
Ég efast ekki um það, að meiri-
hluti stéttarinnar eru heiðvirðir
og almennilegir menn. og marga
hef ég reynt að því að vera mjög
liprir. En þess verð ég líka að
geta X 9,5, að hjá sumum stétt-
arbræðrum þínum hef ég séð
þann mesta tuddaskap sem ég
get ímyndað mér, og undir fjög-
ur augu skal ég tilgreina við þig
fáein nöfn og númer á viðkom-
andi leiðum og þá er ég illa svik-
inn, ef þú ert mér ekki sammála.
Og meðan þannig menn eru í
stéttinni, getum við báðir verið
sammála um það, að það er nauð-
synlegt að benda á gallana og
því miður er varla hægt að segja
mér svo slæmar sögur um suma
stéttarbræður þína, að ég trúi
þeim ekki.
NILFISK
NILFISK
bónvélar
eins og NILFISK
ryksugur:
AfburSa verkfæri
í sérflokki.
___________________________I
verndargólfteppin -
því að hún hefur nægilegt sogafl
og afburða teppasogstykki, sem
rennur mjúklega yfir teppin, kemst
undir lægstu húsgögn og DJÚP-
HREINSAR jafnvel þykkustu gólf-
teppi fullkomlega, þ.e. nær upp
sandi, smásteinum, glersalla og
öðrum grófum óhrcinindum, sem
bcrast inn, setjast djúpt í teppin,
renna til, þegar gengið er á þeim,
sarga undirvcfnaðinn og slíta
þannig teppunum ótrúlega fljótt.
NILFISK slítur alls ekki tepp-
unum, þar sem hún hvorki bankar
né burstar, en hreinsar aðeins
með rétt gerðu sogstykki og
nægilegu sogafli.
ASrir NILFISK kostir:
* Stillanlegt sogafl * Hijóður
gangur * Tvöfalt fleiri (10) og
betri sogstykki. áhaldahilla og
hjólagrind mcð gúmmíhjólum
fylgja, auk vcnjulegra fylgihluta
* Bónkústur, hárþurrka, málning-
arsprauta, fatabursti o. m. fl.
fæst aukalega.
* 100% hreinleg og auðveld tæm-
ing, þar sem nota má jöfnum
höndum, tvo hrcinlegustu ryk-
geyma, sem þekkjast í ryksugum,
málmfötu cða pappírspoka.
* Dæmalaus ending. NILFISK
ryksugur hafa verið notaðar hér-
lendis jafn lengi og rafmagnið, og
eru flestar í notkun enn, þótt
ótrúlegt sé.
* Fullkomna varahluta- og við-
gerðaþjónustu önnumst við.
* Hagstætt verð.
* Góðir greiðsluskilmálar.
* Sendum um allt land.
ÚRVAL ANNARRA HEIMILISTÆKJA:
ATLAS kæliskápar, frystikistur — BALLERUP hrærivélar — BAHCO eld-
húsviftur, tauþurrkarar, gufubaðstofutæki — FERM þvottavélar, þeytivindur,
strauvélar — GRILLFIX grillofnar — FLAMINGO straujárn, úðarar, snúru-
haldarar — ZASSENIIAUS rafmagnskaffikvarnir, brauð- og áleggssneið-
arar — Hraðsuðukatlar, vöfflujárn, brauðristar, eldhúsvogir, baðvogir o.fl.
SÍMI 1-26-06
SUÐURGATA 10
REYKJAVÍK
r
— -—■ •—- — — — — Klippið hér
Undirrit. óskar nánari upplýsinga (mynd, vérð og greiðsluskilmála)
um:
Nafn
Heimili
Til FÖNIX s.f., Suðurgötu 10, Reykjavík.