Vikan

Útgáva

Vikan - 11.03.1965, Síða 31

Vikan - 11.03.1965, Síða 31
Það er: honum fylgir ýmislegt, sem aðrir selja sem aukahluti. Framsætin eru hvort um sig stillanleg — í þrjár mismunandi stöður. Stólbök framsætanna eru einnig stillanleg — í þrjár mismunandi stöður. Þannig að þér getið stundum setið uppréttur en stóllinn þó aftarlega eða haft stólinn framarlega og bakið hallandi, eða allt eftir því, sem þægilegast er fyrir yður. Þér getið setið fast upp við stýrið eða langt frá því yður til hvíldar o. s. frv. og árang- urinn er minni þreyta í langferðalagi. Baksætið er 127,5 cm breitt og nægjanlegt fyrir þrjá. Volkswagen býður upp á ýmislegt fleira! Það er öskubakki afturí — Tvö leðurgrip afturí — Tvö sólskyggni stillanleg upp og niður svo og til hliðar. Loftklæðning er þvottheld og öll sætaáklæði. Fest- ingar fyrir öryggisbelti. Fatasnagar. Rúðuspraut- ur. Sjálfvirkt innsog. Aurhlífar. Þægindi og smekk- legur búnaður sameinast í Volkswagen, og er inni- falið í verði hans. — Verð kr. 147.000,00. S'imi 21240 [HEILD VERZLUMIN HEKLA hf Laugavegi 170-172 ALLTAf FJÖLGAR YOLKSWAGEN NUnFMfl ER VEL OG SMEKKLEGA BUIHH10IHHAH Fólk á að sofa hjá hverjum sem það vill Framhald af bls. 27. vfðast hvar í heiminum ólitin ein skærasta stjarna frönsku kvikmynd- anna. — Ég vildi ekki fara til Ameríku hvað sem í boði væri, sagði hún, — ekki fyrir nokkurn prís. — Hversvegna? spyr Sagan. — Vegna þess að þeir gera svo mikið veður út af öllum hlutum. Þeir mundu gera lífið óbærilegt fyr- ir mér. í raun og veru langar mig til að fara, en ekki með öllum þess- um óhemju lótum. — Vildirðu heldur laumast inn í landið. — Ja-ó, það vildi ég gera. Ég ætla að bíða með að fara þangað til ég get laumazt inn að tjalda- baki. Þær hlógu báðar. — Þetta er ekkert líf sem við lif- um, sagði Brigitte og var hávær. — Allt sem lífið getur haft upp á að bjóða er eyðilagt fyrir okkur, þvi að allt sem við segjum og gerum er rangfært. Það er hræðilegt. — Auðvitað er gott að hafa pen- ingana, — Sagan tók upp þráðinn. — Það er gaman að hafa peninga til að strá um sig með. Og það er lika skemmtilegt að skrifa, og um- gangast annað fólk og vinna með því. En hitt, hitt allt er hreinasta plága! — Já, það má segja, greip Bri- gitte fram í. — Ég hefi mikla ánægju af starfi mínu, mér þykir gott að hafa nóg að gera, skilurðu. í raun og veru þykir mér svo vænt um starf mitt að ég er ennþá að fokka við þetta, þótt ég hafi svarið þess dýran eið að steinhætta. Þessi einlæga yfirlýsing Bardot um að hætta svona snemma frægð- arferli sínum, til þess að losna við þessi áköfu afskipti fólks af einka- lífi hennar, hafa aldrei verið tekin neitt alvarlega, nema af henni sjálfri. — Ef ég hætti, Brigitte reyndi að gefa sem bezta skýringu, en hún hafði haldið að ef hún hætti að leika í hálft ár, mundi almenningur gleyma henni og hún fengi að hverfa ( fjöldann, — þá hefði ég samt sem áður óþægindin við átroðning fólks, en fengi ekki ánægjuna af starfinu. Svo til hvers væri þá að hætta. — Segjum nú svo, hélt hún áköf áfram, — að Franqoise tilkynnti allt í einu að nú skrifaði hún ekki staf í viðbót. Hún væri samt sem áður Franqoise Sagan sem allir þekktu. Franqoise? — Er þetta ekki hliðstætt? — Jú, sagði Sagan og hallaði sér á olnbogann, — ég býst við því. — Það er allt undir því komið frá hvaða sjónarmiði litið er á hlutina, hélt Brigitte áfram. — Þeir sem ekki þekkja til halda að þetta líf okkar sé dans á rósum. Ef við segðum þeim hve hræðilegt það getur ver- ið, myndi enginn trúa okkur. Fjöld- VIKAN 10. tbl. gj

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.