Vikan

Ataaseq assigiiaat ilaat

Vikan - 11.03.1965, Qupperneq 33

Vikan - 11.03.1965, Qupperneq 33
fólks öfundar okkur. En samt sem áður hefur þetta líf okkar sínar góðu hliðar. Ætli það vegi ekki hvort upp á móti öðru. Ég reydni að nota hárkollur, sagði hún og var eflaust að hugsa um svörtu hárkollurnar, sem hún notaði við myndatökur. Þær voru fallegar og klæddu hana vel, enda mundi hún aldrei nota neitt óklæði- legt, iafnvel ekki til að gera sig óþekkianlega. — En það bar eng- an árangur, það þekktu mig allir. Brigitta hló. — Þú ættir að reyna Ijósa hárkollu, Franqoise. — Ég ferðast alltaf undir nafni fyrri mannsins mins, sagði Sagan. — Er þetta þitt rétta nafn? — Sagan? spurði Brigitte sakleysis- lega. — Nei, það er Quoirez, svaraði Sagan, sem hafði tekið nafnið Sag- an úr sögu eftir Marcel Proust. — Það eru nú meiri hlunnindin, sagði Brigitte fjörlega. — Ef þú færð vegabréf með þínu rétta nafni, veit enginn hver þú ert. Það er öðru vísi með mig, þetta er mitt rétta nafn. Ef ég fæ vegabréf stend- ur örugglega Brigitte Bardot á því. — Svo er nú þetta kjaftæði um jafnrétti kynjanna, — byrjaði Sag- an. Hún var orðin rólegri og hag- ræddi sér á gólfinu, lá á hnj^num, rétti úr öxlunum og sveiflaði hand- leggjunum fram og aftur og dró svo fingurgómana eftir loðnu tepp- inu. — Ég er nú helzt fyrir hlutina eins og mér finnst þeir eigi að vera, sagði Brigitte. — Það þýðir ekkert. Sagan var hálf óþolinmóð og hélt áfram að sveifla handleggjunum. — Sjáðu til, piltarnir segja: „Látum okkur gera þetta eða hitt, og stúlkurnar hrópa „Húrra og bravó", en fara svo sínu fram í laumi. Þetta er hefðbundin venja. — Brigitte muldraði eitthvað, skilningsvana. — Karlmennirnir verða að vera þeir háu herrar, hélt Sagan áfram, — vera „matadorar", það þýðir ekki annað en að horfast ( augu við það. Þér finnst kannske þetta vera ýkjur hjá mér, en það er nú svona samt, og þeim líkar bezt við undirgefnar stúlkur. Hún þagn- aði andartak, — stúlkur sem virð- ast undirgefnar, er það ekki? — Undirgefnar? Brigitte hló. — Þar get ég ekki verið þér sammála, Franqoise. — Ég sagði „sem virtust vera undirgefnar", sagði Sagan. — Ég er samt ekki sammála þér, ég vil bara ekki heyra undirgefni nefnda. — Brigitte hló. Sagan hélt sínu fram. — En það er nú oft heppilegt. Þegar hún þagnaði andvarpaði SÍGILM ScsCfUSv MEO Cf MYND'ttM Brigitte. — Ja-há, karlmenn. Ef kon- an er bjálfi og karlmaðurinn greindur, eða öfugt, er ekki hægt að gera neinn samanburð. Það sem um er að tala er einfaldlega það, að konurnar eru komnar út úr hýð- inu og neita því að láta meðhöndla sig sem ambáttir. Hún hélt áfram blíðum rómi. — Yfirleitt held ég að nútímakonur lifi svipuðu lífi og við, Franqoise. Þær eru bara ekki fræg- ar og þessvegna ekki í sviðsijósinu eins og við. En yfirleitt held ég að það sé ekki svo mikill munur á lifn- aðarháttum........... — Ég er viss um að þitt líf er ekki svo frábrugðið daglegu lífi ann- arra stúlkna, sagði Sagan. — Nei, ábyggilega ekki. Christine getur borið vitni um það. Þú mátt trúa því að ég er reglulega sið- prúð stúlka, sagði Brigitte rólega, en með áherzlu. — Ég hegða mér altaf vel. Oui, oui, oui . . . Þegar ég hugsa um margar sem ég þekki .... Hún hló. — Þessar kjaftasög- ur sem ganga um mig, hún ætlaði að kafna úr hlátri, — og eflaust um þig líka, Franqoise. — Hlægilegar, hreytti Sagan út úr sér. — Kjaftasögur eru bara kjafta- sögur og hafa ekki við neitt að styðjast, sagði Brigitte. — And- styggilegar. — Jæja, sagði Sagan eftir dálitla umhugsun, — stundum hafa þær við eitthvað að styðjast. Ég á sport- bíla. (Einu sinni átti hún bæði Aston-Martin og Jaguar og var næstum drepin í árekstri á þeim fyrrnefnda árið 1957). En það er ekki þar með sagt að ég sé alltaf í kappakstri. Ég eyði miklu meira af tíma mínum í litlum Renault sem ég á, heldur en sportbílunum. Það er hlægilegt að dæma eina stúlku æfilangt eftir smbáatviki sem hefir komið fyrir hana ein- hverntíma í lífinu. — Þetta er satt, viðurkenndi Bri- gitte. — Fólk finnur einhverja smá átyllu sem svo er spunnið utan um. Kjaftasagan er komin í gang. Hjá því verður ekki komizt. Hvað þér viðvíkur getur fólk jafnvel ætlað þér þá hluti, sem þú lætur söguhetjur þínar gera. — Hvað er að söguhetjum mín- um? spurð Sagan undrandi. — það er ekkert Ijótt við þær, þetta eru góðar stúlkur, þegar allt kemur til alls .... Söguhetjurnar hjá Sagan eru nú oft dálítið afbrigðilegar, en Bardot lét sem ekkert væri, vegna þess að það var ákveðið fyrirfram að þær áttu ekki að tala um eða gagnrýna verk hvor annarrar þetta kvöld. — Söguhetjur mínar eru ekkert vondar eða lastafullar. Lesið þið Balzac, þar heyrið þið um kynvillu og allskonar lesti. — Hvað segja foreldrar okkar um þetta allt saman. Það var allt öðruvísi í þeirra æsku, sagði Brigitte hugsandi. — Það er alltaf mikill munur á lífi foreldra og barna. — Viðvíkjandi sambandi þínu við föreldra þína, Brigitte, í hvaða NflTURflNfl-umboðið, Laufásveg 16, sími 18970 Brjóstahaldari teg: 6615 hefur eitt vinsælasta „form" á markaðnum. CATARÍNA - magabelti hefur ótrúlega gagnstæða eiginleika, heldur að, en er samt sérstaklega mjúkt. Sokkaböndin fóðruð fyrir þær konur sem þola ekki sokkaböndin næst sér. NATURANA framleiða aðeins úr beztu fáanlegum efnum Perlon HELENCA HEIIVIILIS- TRYGGING BRL INi A- TRYGGI IMG G LE R- TRYGGI IM G BRUIXIABÓTAFÉLAG ÍSLAIMDS LALGAVEGI 105 SÍIVfll: 24425 VXKAW U.OL 23

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.