Vikan

Útgáva

Vikan - 18.03.1965, Síða 4

Vikan - 18.03.1965, Síða 4
A Hermaður talar við vegfaranda í Gongó á því máli sem honum er eiginlegast. Varnarlausir borgarar frá Stanley- ville hýddir. v SSjómar- hættir í Kongó Valiantinn sem hvarf, meðan hún sat inni. Fyrst fangelsi - svo var hfinym stoliO Margar uggvænlegar sögur hafa verið sagðar af þeirri villimennsku, sem átt hefur sér stað í Congó, einkum í sambandi við uppreisnina á dögunum og þann óaldarlýð, sem kallast Simbar. Til dæmis um grimmdina má geta þess, að þeir skáru lifrina úr hvítum embættismanni í Stanleyville og átu hana, meðan maðurinn var enn lifandi. Þegar þessir villimenn hafa fengið í hendur nútíma drápstól, finnst þeim flestir vegir færir og það þykir ekki umtalsvert að drepa mann, ef hann afhendir þeim ekki allar sínar eigur umyrðalaust — eða jafnvel einungis ef hann liggur vel við höggi. Þeir eru sem sagt eins og minkurinn: Drepa til þess eins að drepa. Annars beinast pyndingar þeirra og dráp ekki einungis að hvítum mönnum, heldur virðast meðbræður þeirra af sama litarhætti og kyn- stofni fá sömu útreið ef þurfa þyk- ir — og svo sem þessar myndjr sýng og sanna. AnnarSvegar er vegfar- andi með tösku og hermaður. Hvað vegfarandinn hefur af sér gert, er ekki gott að vita, nema hvað her- maðurinn hefur talið sér skylt að taka atrennu til þess að geta sem hraustlegast sparkað í manngarm- inn, — sem endasendist undan spaiki.nu: það var því líkast sem har.n m,ndi ekki strax eftir byssu- stingnum. Ln svo þegar maðurinn lá La.na á vcginum, þá lét hermað- u. inn það ekki lengi undir höfuð leojj/cst með þeim afleiðingum, sem sjást á myndinni. A hinni myridinni standa tveir sva ti. hermcnn yfir tólf negrum, scm skipað hefur verio að leggjast nícur og s.ðan er þeim misþyrmt með bareflum. Þetta eru varnar- lcusir borgarar frá Stanleyville og hafa sjálfsagt ekki gert neitt af sér — annað en að vera til. Frú Spjut nýsloppin úr fangelsi hjá þénurum Francos. AÐ VAR MAE>UR á Spáni og hann vantaði bíl. En hann hafði því miður ekki hand- bæra peninga, svo hann ákvað að stela sér bil. En það er tekið hart á þvilíkum afbrotum hjá Franco — nema lögreglan sjálf eigi í hlut. Annars hljóðar sagan svona frá upphafi: Kona er nefnd Sigrid Spjut, fegrunarsérfræðingur frá Sunds- vall i Svíþjóð, á að gizka fertug að aldri. ITún átti nýlegan og vel með farinn Chrysler Valiant og það vildi svo til að hún ók á hon- um í sumarleyfið — allar götur suður á Spán. Og sem hún er stödd í plássinu Marbella, þá verður það óhapp sem oít kemur fyrir, að það hvellspringur og bíllinn kastaðist ei lítið til við það. En til allrar óhamingju kom hann við annan bíl og rispaði litilsháttar lakkið á honum. Lögreglan kom þegar á staðinn og lýsti því yfir án nokk- urrar rannsóknar, að frú Spjut væri drukkin. Og vegna þess að frúin gerði sig seka um þá vangá að fara að þræta við þá, var hún umsvifalaust sett undir lás og slá i Malaga. Bilnum var parkerað fyrir utan lögreglustöðina og henni var sagt, að lyklarnir að honum væru geymdir í skrifborðsskúffu lögreglustjórans. 1 klefanum var hvorki eitt, né neitt. Hún svaf á beru gólfinu innan um kakkalakk- ana. Maturinn var einkum svört fiskisúpa einhverskonar. Þarna var frúin í tvo mánuði án þess að vita hvað til stæði og undi bölvanlega sínum hag. Að þessum tveim mán- uðum liðnum var mál hennar tekið fyrir allra náðarsamlegast og hún fékk dóm upp á fjögurra mánaða fangelsisvist. Og enn stóð Chrysler- inn utan við fangelsið. Einn góð- an veðurdag var hann horfinn. Einn lögregluþjónninn kom i klef- ann til frúarinnar og sagði: „Það eru tveir útlendingar úti og þeir vilja fá bílinn yðar.“ „Það snertir enginn á honum,“ sagði frú Spjut; „þið hafið sjálfir sagt að ég þurfi ekki að hafa áhyggjur af bílnum." Dálítið seinna kom sami iögreglu- þjónninn og sagði: „Það er búið að stela bílnum yðar, Senora." Hún gat ekkert gert eins og á stóð. Hún grét heila nótt, æf af reiði. Löngu seinna komu þeir enn og spurðu um númerið og önnur einkenni. Þeir þóttust ætla að leita. Svo liðu þrír mánuðir og loks var frúnni sleppt úr haldi. Hún gerði strax hávaða út af bíl- stuldinum. Sagði að lyklarnir hefðu verið í vörzlu lögreglustjór- ans. Þá tóku þeir sitt í hvorn hand- legg á henni og sögðu: „Þér skulið ekkert vera að brúka kjaft — eða kannske Þér viljið fara þarna inn aftur?“ Frú Spjut sá að Það mundi vera viturlegast að gleyma bílnum ef hún ætti að gera sér vonir um að komast úr höndum lögreglunnar. Hún gaf málið frá sér. Þegar hún kom út á götuna, stóðu þar nokkr- ir lögregluþjónar og hæddust að henni: „Hvar er bíllinn yðar, Senora? Ætlið þér ekki að fara á bilnum senora?" En frú Sigrid Spjut sér sennilega lítið eftir af honum. ^ VIKAN U. tbl.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.