Vikan - 18.03.1965, Page 11
0 J. B. Rhine frá Duke-háskóicinum gerir tilraunir me3 fjarhrif. Teningnum er kastaó á venjulegan hátt, en stúlk-
an reynir að hafa áhrif með hugsanaflutningi, að ákveðin hiið komi upp.
einn ákveðinn einstakling, en
fari sá af staðnum leggjast reim-
leikarnir niður meðan hann er
fjarverandi.
Ennfremur standa reimleik-
arnir stutt yfir, daga, vikur,
sjaldnar mánuði. Hér er heldur
ekki um tilbreytingarlausa
endurtekningu á sama fyrirbær-
inu að ræða, heldur skiptast á
högg, hreyfingar innanstokks-
muna, grjótflug o. s. frv.
Eigi ósjaldan er hlutum varp-
að að fólki, en annaðhvort geiga
skotin eða reynast svo aflvana,
að líkamsmeiðingar liljótast ekki
af. Reimleikar þessir eiga sér
heldur ekkert fremur stað að
næturlagi, eru jafnvel algengari
að degi til. Hér virðast lika
vitsmunum gædd öfl vera að
verki, þvi að oft er hægt að kom-
ast í samband við „drauginn".
Séu t. d. í tilraunaskyni barin
þrjú högg, þá svarar „draugur-
inn“ með þrem höggum o. s. frv.
Þó að athugun sem þessi,
bendi til þeirrar fróðlegu niður-
stöðu, að um reglubundin lög-
mál sé að ræða, hvað birtingar-
Innan tveggja stunda frá komu
hans áttu tvö fyrirbrigði sér
stað, en síðan kom langt hlé, og
byrjuðu ekki fyrirbærin aftur
þar til daginn eftir hrottför lians,
2. mars. — Rétt er að skjóta þvi
hér inni, að yfirleitt falla reim-
leikar niður, þegar ókunnugir
koma á staðinn, en hefjast gjarn-
an aftur, þegar aðkomufólkið er
horfið á braut. — Hinn 7. marz
kom Pratt aftur og i þetta skipti
var með honum parasálfræðing-
urinn W. G. Roll, en sá er ís-
lendingum að góðu kunnur, þvi
hann lieimsótti ísland tvisvar á
árinu sem leið.
Vísindamennirnir dvöldu
þarna í tvo daga og áttu sér stað
meðan á þessari dvöl þeirra
stóð, þrjú fyrirbrigði.
Alls gerðust 67 fyrirbrigði og
voru eftirfarandi merkilegust:
1. 4 fyrirbæri, þar sem ein-
hverjir af fjölskyldunni sáu liluti
hreyfast til, án þess að hægt
væri að sjá nokkurn möguleika
til, að hreyfingin hefði verið
framkölluð á einhvern skiljan-
legan hátt.
brigðið gerðist i viðurvist barn-
anna tveggja, Lucille 13 ára og
James 12 ára. Einnig varð sjón-
arvottur fullorðin frænka þeirra.
Sáu þau öll, livernig postulins-
stytta, sem á borði einu stóð,
tók að vagga og skipti það engum
togum, styttan tókst á loft, þeytt-
ist þvert yfir stofuna og skall
með ótrúlega miklum hávaða
niður á gólfteppið án þess þó
að brotna.
Annað atvik gerðist að morgni
nokkru áður en siðastgreindur
atburður átti sér stað. Sáu Jam-
es og faðir hans, er þeir voru
staddir i baðherberginu, flösku
hreyfa sig til um það bil 33 cm
eftir barmi handlaugarinnar og
síðan falla ofan í hana. Um leið
fór lítil glaskrús af stað í 90
gráðu stefnu við flöskuna og féll
krúsin á gólfið.
Það yrði of langt mál að greina
liér frá öllum fyrirbærum þeim,
er gerðust, og skulum við nú
snúa okkur að þeirri spurningu,
hvort fyrirbrigðin hafi ekki ver-
ið framkölluð með einhvers-
konar blekkingum likt og töfra-
ER DRAUGAGANGUR ?
háttu draugagangs varðar, gefur
hún ekkert svar við þeirri spurn-
ingu, hvort hér sé um raunveru-
leg ytri fyrirbrigði að ræða, þvi
vel væri hægt að gera sér i hug-
arlund, að hér væri um einlivers-
konar frumgervisskynvillu að-
ræða, sem upptök sín ætti i hóp-
dulvitund þeirri, sem sálfræðing-
urinn C.G. Jung stakk upp á til
skýringar frumgervistákna
(Archetypen) þeirra, sem liann
rakst á i draumum og listaverk-
um manna að fornu og nýju.
Við skulum því snúa okkur
að þvi, livernig hægt væri að
rannsaka reimleika visindalega,
og skulum við taka eitt drauga-
tilfelli af mörgum til athugunar.
Tilfelli þetta er valið hér, þvi
það gefur Ijósa mynd af því,
hvernig starfsaðferðir visinda-
manna á þessu sviði eru:
Seint i febrúarmánuði 1958 var
Parasálfræðirannsóknarstofunni
við Duke-háskólann i Norður-
Karólinahéraði i Bandaríkjunum
tilkynnt að óskiljanleg hreyfing-
arfyrirbæri gerðust um þær
mundir lijá fjölskyldu einni í
bænum Seaford á Long Island
skanunt frá New York. Para-
sálfræðingurinn J. G. Pratt fór
þegar á staðinn og dvaldi þar
til að byrja með fjóra og hálfan
dag.
2. 13 fyrirbæri, þar sem eng-
inn var nógu nálægur, til þess
að hafa getað sett fyrirbrigðið
ú svið, né heldur voru ummerki
útbúnaðar að l'inna, sem hægt
hefði verið að framkalla þau
með úr fjarlægð.
3. 5 fyrirbæri, sem úttu sér
stað, meðan annaðhvor eða báð-
ir vísindamannanna voru í hús-
inu. Tvö jiessara fyrirbæra til-
heyrðu tegund nr. 2. í annað
skiptið var bókahillu velt um
koll í svcfnlierbergi uppi á lofti,
meðan fjölskyldan var saman-
komin í eldhúsinu og Pratt á-
samt lögrcgluþjóni nokkrum var
við athuganir í kjallara.
í liitt skiptið var allt heimilis-
fólkið saman komið uppi á lofti
og voru þeir þar einnig Pratt
og Roll. Heyrðist skyndilega liá-
vaði frá kjallaranum, og er vis-
indamennirnir komu á staðinn
kom i ljós, að tappi hafði þeytzt
af klórvatnsflösku og hluti af
innihaldinu með. Tekinn var
timinn, sem klórvatnið var að
gufa upp, og stóð það lieima,
að þetta hafði gerzt um sama
bil og hávaðinn heyrðist, svo
að sú tilgáta, að þetta hafi verið
sett á svið fyrirfram og hávað-
inn svo framkallaður eftir á,
fær varla staðizt.
Eitt atliyglisverðasta fyrir-
menn beita við listir sínar.
Fyrirbrigðin gerðust aðallega
umhverfis James, en það er ein-
mitt mjög algengt, að einstakl-
ingur sá, sem fyrirbrigðin virð-
ast standa í nánu sambandi við,
sé barn eða unglingur, en einnig
hefur sýnt sig, þegar sumir
„reimleikar“ hafa verið rannsak-
aðir, að þar liafa hrein strákapör
verið á ferðinni og hefur það
verið ýmsum kærkomin ástæða,
til þess að afskrifa öll slík fyrir-
brigði, sem kænlega framkvæmd
prakkarastrik.
Ef við athugum þennan mögu-
leika, kemur i ljós i þessu tilfelli,
að um 17 tilfelli er að ræða, þar
sem hvorki James né Lucille
hefðu getað sett fyrirbrigðin á
svið, þar eð aðrir voru viðstadd-
ir er þau gerðust. Góð dæmi er
að finna að ofan. í þessum tveim
tilfellum er einnig erfitt að koma
auga á, hvernig krakkarnir hefðu
getað framkallað þau með ein-
hverskonar tækniútbúnaði, án
þess að eftir þeim liefði verið
tekið.
Eini hugsanlegi möguleikinn,
til þess að skýra þetta sem pretti,
er að gera ráð fyrir, að öll fjöl-
skyldan og nokkrir ættingjar
liafi verið með í ráðum og sett
þetta sameiginlega á svið; en
Framhald á bls. 41.
VIKAN 11. tbl.
11