Vikan

Ataaseq assigiiaat ilaat

Vikan - 25.03.1965, Qupperneq 17

Vikan - 25.03.1965, Qupperneq 17
ýhhgc. hildur væri ekki nýlögð af stað þegar hann bar að á Blesa sin- um. Og þó að hún segði aldrei neitt i þá áttina, fannst honum alltaf að hann yrði nú að bjóða henni upp á lendina fyrir aftan sig og svo kom hann sér ekki heldur að þvi að tala neitt alvar- lega við hana Siggu meðan hún Jónhildur var nálægt þótt lcann- ski hefði það verið réttast og allt í lagi. En svo bar það við á heim leiðinni einu sinni í vor að það var farið að skyggja. Hann gat einlivern veginn aldrei gert sér grein fyrir því, hvernig það bar að nema að Jónhildur spurði hann hvort liann hefði nokkurn tíma komið að fossinum svona í Ijósaskiftunum og séð hvernig gljúfrið fylltist af myrkri og svo flæddi myrkrið yfir barmana á gljúfrinu og legðist yfir alla sveitina. Hún sagði að allt myrk- ur byrjaði í gljúfrinu neðan við fossinn og það var hann ekki viss um. Hann hélt að myrkrið bara svona kæmi, en ekki frá neinum sérstökum stað og væri ekkert á borð við mjólkurfroðu sem gæti flóð út úr skjólunni og stafaði bara af þvi að það væri ekkert ljós til. En samt beygði hann út úr götunni og lét Blesa tölta niður að fossinum. Það var ekki komið myrkur í gljúfrið þegar þau komu á barminn og hún tók í hendina á honum og leiddi hann ofan í Ærhvamminn nokkru fyrir neðan fossinn og bað hann um að bíða með sér eftir því að myrkrið flæddi. Og svo núna um daginn sendi hún Gunnu litlu systur sína með bréf til hans. Gunna litla var ennþá ófermd og ein af fjölmörg- um systkinum Jónhildar á Skarði. Guðmar hafði stundum öfundað Skarðskrakkana af því hvað þau voru mörg og höfðu marga til að leika sér við en hann átti bara tvær systur og þær voru miklu eldri og giftar og fluttar að heiman og farnar að búa. f bréfinu stóð: „Kæri Guðmar. Þú verður að koma að hitta mig undir eins þegar dimmt er orðið i kvöld bak við stóra steininn norðan undir Hádegis- hæðini og láttu engan vita hvað þú ert að fara. Fyrirgefðu klórið og brenndu þetta hrafnaspark Þín Jónhildur." „Áttirðu að taka svar?“ spurði hann Gunnu litlu. „Nei, Guðmar minn,“ svaraði Gunna litla og kyssti Guðmar vin sinn marga kossa beint á munninn áður en hún skondraði aftur heim að Skarði og maulaði á kandísnum sínum sem frú Torfhildur á Bakka móðir Guð- mars gaf henni því hún var of lítil til að þiggja kaffi. Þegar Gunna var farin aftur ranglaði Guðmar upp í bæjar- sundið með bréfið og klóraði sér í kollinum. Hvað gat Jón- hildur viljað honum núna? Gat hugsazt að hún ætlaði að biðja liann að reiða sig fram að Skál- um? Hann hafði hvekkzt dáldið á því þarna um kvöldið þegar þau fóru að skoða myrkrið því allt í einu varð hvinur í stráum og myrkrið komið og þau voru jafn nær um hvaðan og hann hafði verið feiminn við hana siðan og ekki farið meira fram að Skálum til að eiga ekki á hættu að verða henni samferða. Hann klöngraðist ofan úr bæj- arsundinu fram á hlaðið og hysj- aði upp um sig buxurnar. Hann var að velta þvi fyrir sér hvern- ig hann ætti að fara að því að vakna um miðja nótt og laumast fram úr Suðurhúsinu og upp á Hádegishæð án þess að nokkur vissi. Hún lilaut að eiga við miðja nóttina þegar minnst bjart var þvi um þetta leyti var aldrei myrkur. Hann ætlaði að fara að rangla ofan á teiginn þangað sem vinnu- mennirnir voru að slá þegar frú Torfhildur móðir hans kom fram í bæjardyrnar og sagði: „Komdu aðeins inn Guðmar minn áður en þú ferð ofan eftir og fáðu þér volgan kafisopa. Ég var að renna uppá könuna.“ Hann gekk á eftir henni inn Framhald á bls. 43.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.