Vikan

Útgáva

Vikan - 25.03.1965, Síða 48

Vikan - 25.03.1965, Síða 48
Sunfíesh APPELSÍN SÍTRÖN LIME Svalandi - ómissandi á hverju heimili Stwjfesk Hvinur t,stráum | lljg Framhald af bls. 45. stór og falleg lítil stúlka. Guð- mar hafði ekki látið mikið fyrir sér fara eftir að hann kom á fæt- ur en tveir vinnumannanna höfðu borið hann upp i Suður- húsið og lagt hann þar i auða rúmið og þar hafði hann svo sof- ið fram yfir hádegi þegar hann staulaðist niður og fékk sér væn- an kaffisopa en fór svo með stóra ausu út i læk og drakk þar marg- ar ausur af köldu vatni. Svo fór hann inn og settist á rúm i Mið- húsinu og beið eftir þvi að lækn- irinn og yfirsetukonan færu út úr Norðurhúsinu og þá flýtti hann sér inn til frú Jónhildar konu sinnar sem lá i rúminu undir austari súðinni mið litla kollinn sér við brjóst. Þegar hann kom inn lokaði hún augun- um og lézt ekki sjá hann en hann horfði á barnið og hana og þegar hún opnaði ekki augun hélt hann að hún svæfi og laumaðist fram aftur og ofan í búr þar sem yfir- setukonan og læknirinn sátu og drukku ilmandi kaffi. Guðmar á Bakka sneri sér að læknin- um og spurði: er ekki allt í lagi þarna uppi í Norðurhúsinu?“ „Jú, sagði læknirinn. „Það er allt i lagi með þær báðar tvær en það var ekki yður að þakka sem voruð að þvælast um draug- fullur meðan konan yðar bíður í barnsnauð. Réttast hefði verið að ég hefði skilið yður eftir þar sem þér voruð undir kvið á hrossinu með lappirnar i istöð- unum.“ „Jamm rétt er nú það,“ sagði Guðmar og fékk sér vatn að drekka úr fötunni. „Er annars allt svona mannheilt i hérað- inu?“ „Þessi maður er flón,“ sagði læknirinn við yfirsetukonuna. „Ég tala ekki meira við hann. Þér skuluð fara að eins og ég hef sagt og svo kem ég aftur eftir þrjá daga.“ Svo snaraðist hann snúðugt fram úr búrinu. „Ósköp var að heyra þetta Guð- mar hvernig þú lézt lækninn eiga i basli með þig i nótt,“ sagði yfirsetukonan um leið og hún renndi rjúkandi kaffinu aftur í bollann sinn. „Og það hefur hver sinn Djöf- ul að draga, sagði Guðmar og fékk sér í nefið. Ég var annars að heyra það að hann Hallur þinn væri að verða heylaus. Það verður ekki gott að segja hvern- ig þetta fer.“ „Óskapar moðhaus er þetta á þér maður að geta verið að tala um heyið núna,“ sagði yfirsetu- konan og rixaði dreissug fram úr búrinu en Guðmar fékk sér meira vatn úr fötunni. Hafi hún frú Jónhildur verið fálát við bónda sinn áður var það hátíð hjá því hvað hún var snefsin og afundin við hann þeg- ar barnið kom í heiminn og þó var þetta allra fallegasta hnáta með brúnt hár sem var svolítið skrýtið af því hún frú Jónhild- ur var alveg ljóshærð en hann Guðmar hárauðhærður. Þegar hún frú Torfhildur var að hafa orð á þessu við hann Guðmar inni í Suðurhúsinu eitt kvöldið svaraði Guðmar: „Og er það kyn að barnið likist afa sinum eða var ekki hann Sveinn á Skarði svona jarpur um hausinn áð- ur en hann varð sköllóttur?“ „Ég bara skal nú segja þér það Guðmar minn að ég hef aldr- ei vitað hann Svein á Skarði taka ofan prjónakolluna svo min vegna getur hann hafa verið sköllóttur alla ævina en það er skrýtið að ekkert af krökkunum hans skuli þá hafa fengið svona brúnan haus.“ „Og það þarf sosurn ekki að vera furða,“ sagði Guðmar. „Hún Snúinhyrna átti nú flekkóttan hrút i fyrra og það undan hvit- um lirút og ég vissi ekki annað en allt væri hvitt þangað til ég mundi eftir þvi að hrúturinn sem hrúturinn var undan sem hrúturinn okkar núna var und- an var hvíti ómerkingurinn sem ég keypti i réttunum haustið sem liann pabbi gamli sálugi hlúnkaðist ofan af honum Grána og ég veit ekki um hvaðan þessi ómerkingur var skroppinn." Og svo mátti hann til að fá sér aftur i bollann af því hann var óvanur að halda svona láng- ar ræður og svo var þetta svo dæmalaust gott kaffi bara úr baunum og ekkert export. Svo var það einn daginn um sumarið að Guðmar ætlaði að skreppa inn og fá sér neðan í kaffibolla úr þvi hann átti leið um hlaðið en þegar hann kom að búrdyrunum heyrði hann að það var gestur hjá frú Jónhildi og sagði: „Það er eitthvað talið skrýtið með barnið sem hún var að eiga hún Sigga litla okkar hérna frá Skálum sem giftist honum Gúðmúnd i búðinni i kaupstaðnum hérna á útmánuð- um í vetur. Nú er hún orðin léttari eftir bara fimm mánuði svo það hefur verið eitthvað gaman hjá þeim Gúðmúnd um réttarleytið he he. Og stráknóran er þá svona skelfilega rauður um kollinn og Gúðmúnd segir að það sé þá bara helber óþverralýgi sem fólkið sagði um hana ömmu hans að hún væri ekki rétt feðr^ uð því sá sem var skrifaður fað- ir hennar var svona líka þetta litla rauðhærður en fólkið pískr- aði að sá rétti hefði ekki verið neinn annar en hann Björn okk- ar hérna í Hlið, sjálfur hrepp- stjórinn sem einu sinni var. En nú kemur þessi drenghnokki og rekur lýgina ofan í fólk. Já, þvi segi ég það maður ætti aldrei að segja neitt sem maður er ekki alveg viss um blessuð mín,“ sagði Einar í Nesi og saug upp i nefið. Guðmar flýtti sér aftur út og hætti alveg við að fá sér kaffi- sopa núna hann laugaði ekki til að hitta Einar i Nesi. 5. KAFLI. Dregur til tíðinda á Bakka Þegar hann var kominn upp í Norðurhúsið um kvöldið og var að hátta. sig sagði frú Jón- hildur. „Það er merkilegt hvað illt er i ætt allra gjarnast að nú skuli hún Sigga vinkona okkar frá Skálum vera búin að eignast rauðhærðan strák og það er ekkert rauðhært nema langafi hans Gúðmúnds.“ „Ojá það er eins og mórauði kollurinn á henni Sveinbjörgu okkar,“ sagði hann þvi litla telp- an hafði verið látin heita Svein- björg i höfuðin á móðurforeldr- um sinum sem hétu Sveinn og Björg. „Ég vænti þú hafir ekki farið fram að Skálum einhverntímann i haust eftir að við vorum trú- lofuð,“ sagði frú Jónhildur og reyndi að vera létt i máli. „Þú lézt ekki svolítið með hana Siggu hér í eina tíð?‘ „Og ég man ekki betur en þú hafir setið fyrir aftan mig þegar ég kom siðast heim frá Skálum,“ sagði Guðmar og nugg- aði bakinu upp að dyrastafnum til þess að lækna kláðann milli herðablaðanna. „Já ég þarf að heimsækja hana Siggu mína og sjá krakkan hennar hún á það skilið af mér,“ sagði frú Jónhildur og lét ekki á neinu bera. „Það er bezt að ég geri það um leið og ég fer til læknisins núna á fimmtudaginn til að láta skoða mig.“ „Ég fer nú að halda að sá maður aflagi fleira en hann læknar. Nú er konukindin hans dauð og siðan hann komst í þig hefurðu einlægt verið eitt- hvað kraunk. Maður skyldi ekki halda að það væri einfalt mál að eiga börn heldur eitthvað ný- móðins sem er búið að finna upp. En þetta sjálfsagt strekkir eitthvað á,“ bætti hann svo við þegar hann sá svipinn á konu sinni en hún var deirrauð af skapvonzku. „Ætli ykkur karltuskunum yrði ekki eitthvað fyrir því lika og mér finndist þú bara meiga þakka fyrir að einhver læknir skuli vera nærtækur til að laga konukindina sem þú hefur fært alla úr lagi. Það er eftir ykkur karlmönnunum að vera svona kvikindislegir." „Og ég er svo sem ekkert kvik- indislegur held ég,“ sagði Guð- mar hógværlega. „Það er bara það að læknirinn hefur ekki að kalla komið hingað á Bakka fyrr en núna i vor að heita má að hann hafi verið hér á næstum hverjum degi og þetta er úr- dragssamt i meðölum og svo VIKAN 12. tbL

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.