Vikan

Tölublað

Vikan - 13.05.1965, Blaðsíða 14

Vikan - 13.05.1965, Blaðsíða 14
FRAM HALDSSAQA Skipið TJALDANE, eign SBM skipafélagsins, kemur í höfn í Sebang. Um borð eru þau Myn- heer van Halden, forstjóri skipa- félagsins sem rekur gúmmíplant- ekruna á eynni, dóttir hans Josephine, einn eftirlitsmann- anna á plantekrunni, Andy, leigudansmærin Pat, sem Andy fann á dansstað í Port Said, og skipslæknirinn dr. Maverick. Pat er ástfangin af Andy, en Andy og Josephine (Jeff) hneigja hugi saman en Andy vill ekki leggja það á Jeff að hún setjist að á út- úrboru á borð við þessa litlu eyju, en plantekran á Andy all- an — svo þau verða að skilja, þegar skipið fer aftur frá eynni þá sömu nótt. Van Halden slær þó til og ákveður að láta skipið standa við yfir nóttina og slá upp veizlu fyrir farþegana og fyrir fólk meðal eyjarskeggja. Fyrir veizluna fara flestir farþeganna í land, og Jeff með Andy. Fað- ir hennar kemur til móts við þau á tilsettum stað og tíma. Hann grandskoðaði andlit unga fólksins, og þótt honum væri ljóst, að varla væri hægt að segja að þau hlustuðu á hann, hóf hann að segja hina skemmtilegu sögu af ævintýri ungfrú Vanger. Svo var að sjá, sem þessi ötula kona hefði loks fengið eitthvert efni í greinar sínar um áhrif Japana á önnur Austurlönd. Hún sá jap- anska konu, sem hvarf á grun- samlegan hátt inn 1 eitt hollenzka húsið. Ungfrú Vanger fylgdist með henni, beið eftir henni, og veitti henni eftirför, þegar hún kom aftur út á jafn laumulegan hátt og hvarf inn í annað hús. Hvað næst gerðist, var ekki al- veg Ijóst, en þegar Halden bar að, hékk ungfrú Vanger í frú Sagami, og hópur af innfæddum, þar á meðal ökumaður ungfrú Vanger, öskruðu á hana og reyndu að ná japönsku konunni af henni. — Hún kallaði á hjálp, og, lauk Halden máli sínu með hinum vanalega smáhlátri, — mig bar að akkúrat í tæka tíð til þess að bjarga lífi hennar. Mig langaði ekki að valda þessari góðu konu vonbrigðum, og nú hefur hún efni í góða grein handa tímaritinu sínu. Sannleikurinn er leiðinlegur lestur, finnst þér það ekki Jeff? — Hvað? spurði Jeff. — Jú, auðvitað. Svo þú bjargaðir lífi hennar? Það varð þögn, eins og hann hefði sagt misheppnaðan brand- ara. Síðan herti Anders sig upp og fitjaði upp á nýjum samræð- um. — Dásamlegt kvöld, sagði hann. — Og hvað tunglið er skrýtið... — Jæja, Anderson, ég er hræddur um, að ég verði að þröngva mér upp á milli ykkar og taka Josephine frá yður um stund, greip Halden fram í. — Ég vona, að bíllinn yðar sé ekki langt undan? — Nei. Þjónninn minn bíður með bílinn niðri á veginum. — Gott. Við sjáumst þá um borð um ellefuleytið. Eða ætlið þér að fara beint til plantekr- unnar? — Guð minn góður, nei. Ég myndi ekki fórna þessari nótt, þótt líf mitt væri að veði. — Mig grunaði það, svaraði Halden. — Verið þér þá sælir að sinni. — Vertu sæll, sagði Jeff. Næst þegar ég kveð þig, verður það að eilífu, hugsaði hún. Anders hallaði sér upp að fornum stein- veggnum og horfði á hana; þar sem hún gekk niður stíginn og fram hjá fallbyssunum. Hann sá hana beygja sig niður ag taka eitthvað upp af jörðinni. Svo hvarf hún milli rósarunnanna. — Hvað varstu að hirða? spurði Halden. —• Ekkert. Smá minjagrip. Þú veizt, hvað þér þykir gaman að minjagripum, svaraði hún, og stakk litla blómvendinum í tösku sína. Blómin voru vot af dögg- inni, og öll stemming þessarar í senn dapurlegu og unaðslegu nætur, var samankomin í þess- um fáu, hvítu og gulu blómum. — Þú getur ekki svona ein- faldlega stolið frá frjósemisguð- inum, sagði Halden með umburð- arlyndu brosi. — Þú verður að minnsta kosti að segja: Fall- byssuguð, fyrirgefðu mér að taka þessi blóm, sem hjarta mitt þrá- ir. Hún spennti greipar um ennið, eins og hún sá innfæddu konurn- VIKAN 19. tbl.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.