Vikan

Tölublað

Vikan - 13.05.1965, Blaðsíða 37

Vikan - 13.05.1965, Blaðsíða 37
unum og virtist vera í vafa um hvað honum væri óhætt. — Þetta vissi ég alltaf, sagði liann og hann horfði á liana og skoðaði hana alla og það kom nýtt blik í augu hans. Svo gekk hann að myndinni af Kolbrúnu og tók af henni yfirbreiðuna og strauk undurmilt um línur hennar og hann varð ástúðlegur og sagði: — Veiztu, Kolbrún, eigum við, ég meina, finnst þér hún ekki ómöguleg svona? — Finnst þér það? —■ Þessi mynd er mér allt, hún er af þér og þú ert mér allt, Kolbrún, ég, ég elska þig. — Varstu ekki hættur við liana? — Kolbrún, vina mín.... — Hvað ertu að reyna að segja? — Ó, mig hefur vantað ])ig svo, ég hef ekki á mér heilum tekið, Kolbrún, elskan min. —• Varstu í Listasalnum í gær? spurði Kolbrún og virtist enn vera með hugann við ítölsku myndina. — Já, livi spyrðu? — Nei, þú sagðir nefnilega, að þú hefðir verið lijá ftalan- um. Páll roðnaði ofurlítið en sagði: — En þú skilur ekki, eh, ítal- inn var í Listasalnum. — Jæja? -— Já, hann skýrði fyrir okk- ur myndirnar og benti á nýjar leiðir. — Asni get ég verið, nú skil ég auðvitað, sagði Kolbrún og horfði framan í Pál og hann brosti til hennar mildur og hlýr. -—■ Bara smá misskilningur, sagði Páll og var reiðubúinn að fyrirgefa allt, og hann gekk til hennar og hvíslaði í eyra henn- ar: — Elskan mín, mundir þú vilja, getur þú hugsað þér að sitja fyrir núna, smástund, ha, þú sérð hvað hún er vonlaus svona allslaus að neðan, svo gæt- SÍCIIM MEO (/ M Y N D U M FÁST í NÆSTU VERZLUN V_ — Ef þér eigið Ijósmynd, stækkum við hana og litum. 18x24 kosta 90 kr. ísl. Stækkun án lit- unar kostar 45 kr. Vinsamlegast sendið mynd eða filmu og gefið upp liti. Skrifið helzt á dönsku. FOTO-KOLORERING. Dantcs Plads 4, Köbcnhavn V. v_--:--- J um við spjallað saman á eftir og.... — Mig minnir að þú viljir helzt liafa okkur allslausar að neðan. — Æ, getur þú ekki fyrirgef- ið mér þótt ég væri illa fyrir- kallaður um daginn, mér brá illa og það var alls ekki ég sjálf- ur sem sagði þessi orð og var svona fruntalegur. — Hver var það þá? spurði Kolbrún og það gætti háðs i röddinni. — Eigum við ekki að vinna að myndinni núna, ha? spurði hann biðjandi. — Það er bara verst að ég hef svo lítinn tíma. ■—• Bara pínulitla stund, gerðu það vina min, hér er alltaf svo einmanalegt. Hann var undur litill í sér og meir þegar hann sagði þetta, og það lá við að honum vöknaði um augu. — Nei Páll, ekki ég oftar. — Hvað segir þú, þú meinar þetta ekki. — Jú, ég meina það sko, og ég þarf að fara og ljúka við verkið sem ég er með. Páll varð særður á svipinn og gramur inni i sér og sagði: — Ég trúi ekki að þú meinir þetta og látir mig hanga hér einan, þegar þú ert úti, og svo veit ég aldrei livað þú ert að gera. — Nei Páll, svona máttu ekki tala, þetta þýðir ekki. — Nú, livað ætli ég svo sem viti það? Kolbrún gckk til dyra og opn- aði þær og Páll elti hana og sagði hraðmæltur. —• Ekki fara Kolbrún, ekki strax, bara pínustund? — Ég bara má til, ég verð að Ijúka við verkið sem ég er með. —■ Það er nú eitthvað dular- fullt, hvað þú þarft að leggja mikla áherzlu á þetta sem ])ú kallar verkið sem þú ert með, það væri fróðlegt að vita livað það er, sagði Páll með þunga. — En þú veizt það er það ckki? — Nei, þú hefur nú ekki svo mikið við, að þú segir mér hvað þú vinnur, livert kvöld i lieila viku. — Viltu vita það? — Já þakka þér fyrir, gjarn- an. Kolbrún setti upp sitt blíðasta bros og horfði beint i augu Páls og sagði um leið og hún lokaði dyrunum: — Ég hef verið að skreyta Listasalinn og þú veizt, að það er bara gert á kvöldin. * Stutt viðtal viS Benedikt frá Hofteigi Framhald af bls. 22. að geta hangið i sögufalsi fram í rauðan dauðann, sem þegar BRI DGESTON E TIRE BRIDGESTONE mest seidu dekk á íslandi Treystið BRIDGESTONE Vörubíladekkin endast yffr 100 þús. km. VIKAN 19. tbl. gy

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.