Vikan - 13.05.1965, Page 16
Nemendur í Fóstruskólanum fá m. a. það verkefni að búa til barnasögur handa yngstu börnunum, og myndskreyta þær.
VIKAN birtir hér eina slíka. Sagan er í bókarformi og myndirnar mjög haganlega hmdar saman úr taubútum, sem klippt-
ir eru út. Myndirnar eru mjög litríkar og skrautlegar í bókinni, en því miður njóta þær sín ekki sem skyldi hér, vegna
ýmissa erfiðleika á eftirprentun. Myndirnar gefa þó nökkra hugmynd um viðfangsefnið.
1. Lollípopp var lítil stúlka. Hún var 4 ára. Hún var freknótt með tvær rauðar
fléttur. Á hverjum degi fór hún í leikskólann með mömmu sinni.
2. Á hverjum morgni, þegar Lollípopp kom í leikskólann, tók Silla fóstra á móti
henni og bauð henni brosandi góðan daginn og tók við nestistöskunni.
3. Lollípopp hleypur síðan út á leikvöll og fer í róluna, sem er á milli sand-
kassans og vegasaltsins.
4. Rétt á eftir kemur Silla fóstra út og kallar: „Krakkar, nú skulum við fara í
gönguferð".
Fagnaðarlætin kveða við úr öllum áttum og hópurinn heldur af stað.
4