Vikan

Tölublað

Vikan - 24.06.1965, Blaðsíða 7

Vikan - 24.06.1965, Blaðsíða 7
hringinn? En tímamir breytast. Áður fyrr tóku karlmenn virkan þátt í uppeldinu og var það oft- ast þeir er réðu hvað mestu um börnin, en nú, þau börn sem eiga feður, sjá þá sennilega sem sjaldnast. Þarna kom þetta ber- lega í ljós að þeir hafa engan áhuga flestir hverjir fyrir böm- um sínum, geta ekki einu sinni séð af IV2 klst. eitt kvöld á ári, til að yfirlíta vinnu barna sinna eftir veturinn. Það er ekki að furða þó börnin séu eins og þau eru í dag, þar sem móðirin er ein í því að vinna öll húsverk og sér svo ein um uppeldi barnanna. Þið á Vikunni, sem hafið látið til ykkar taka í svo mörgu, ætt- uð að hefja viðtöl við nokkra feður um þessi mál. Ég er orðin langorðari en ég ætlaði í fyrstu og bið velvirðingar á því. Ung húsmóðir. Þetta er þörf hugvekja. Hvort- tveggja mun vera, að heimilis- feður leggja á sig óhæfilegan vinnutíma (m.a. til að stanða undir afborgunum af sjónvarps- tækjum, gólfteppum og sóffa- settum) og svo hitt, að það munu vera talsverð brögð að því, að menn ætli konunni sinni að hafa veg og vanda af uppeldinu. Þeim finnst að þeir eigi við nóg vanda- mál að stríða utan heimilis og finnst sanngjarnt að konan og móðirin taki af þeim ómakiö með bamauppcldið. En það er full- víst, að þetta er háskaleg þróun, því ekkert barn má fara á mis við hina föðurlegu umhyggju. Ef til vill verður eitthvað frek- ar um þetta í Vikunni á næst- unni. VOND BÚÐ. Kæri Póstur! Ég er einn þeirra síðhærðu skeggja, sem hef gaman af því í tómstundum að bera liti á léreft, og þarf því iðulega að leita til þeirra verzlana, sem selja mál- aravörur. Og það er ekki um auð- ugan garð að gresja, mestan part er það ein búð sem hefur þær vörur, og á sumum sviðum hef- ur hún einokunaraðstöðu. Og hún misnotar hana hræðilega. Vöru- valið er fátæklegt og verðið ofar skýjunum, fyrir utan það, að af- greiðslumennirnir eru svo geð- vondir, að það er 'rétt á mörk- unum að þeir henda manni ekki út. Eina undantekningin af þessu er sjálfur verzlunarstjórinn, en hann fer í kaf undan fýlunni í hinum. Ég vildi mælast til þess, að forráðamenn þessarar verzlun- ar gerðu gagngerða hreinsun meðal starfsmanna sinna og hög- uðu sér þannig gagnvart kúnn- unum, að þeir kvíði ekki stöð- ugt fyrir að koma þar inn fyrir dyr — og ekki síður að þeir auki vöruvalið og bæti það um allan helming. Þá fyrst getur verzlun- in staðið undir nafni sínu. SSS Þetta er ekki fyrsta bréfið, sem við fáum með kvörtunum um eitt og annað í þessari verzlun, þótt það sé hið fyrsta, sem er svo sómasamlega orðað, að það sé prenthæft. Sem betur fer — ef satt er sem bréfin segja — þarf Pósturinn lítið að verzla þarna og getur því ekki dæmt af eigin raun, en ljótt er, ef satt er! FLUGFREYJUMÁL. Kæri Vika! Nú langar mig að biðja þig að hjálpa mér. Svo er mál með vexti að ég hef mikinn áhuga á að verða flugfreyja en ég hef bara unglingapróf, get ég orðið flug- freyja án þess að vera gagnfræð- ingur ef ég kynni nú nokkur er- lend tungumál. Ég vona að þú svarir mér, svo þakka ég þér allt gamalt og gott. H. H. Skilyrði til að koma til greina sem flugfreyja eru að hafa gagn- fræðapróf eða hliðstæða mennt- un, en það þýðir að vera talandi á einu Norðurlandamála og ensku. Það að auki þarf umsækj- andi að hafa aðlaðandi fram- komu, vera snyrtileg með sig og mátulega stór. Uppfylli hún þess- ar aðalkröfur og svo nokkrar minniháttar kröfur, fær hún að taka þátt í námskeiði og undir- gangast próf, sem síðan sker end- anlega um, hvort hún getur orð- ið flugfreyja. Og okkur er tjáð, að iðulega komizt þær stúlkur í gegn og verði mætar flugfreyjur, sem koma persónulega til viðtals hjá flugfélögunum, þótt prófaf- rek þeirra séu svo takmörkuð, að þeirra vegna einna hefðu þær fengið afdráttarlausa neitun. Hverfisgötu 50. — Sími 18830. Einsmanns svefnsófi — lengd 185 cm — breidd 73 cm, sængurfatageymsla í baki. Stólar fóst í stil við sófann. (Fjórar aðrar gerðir einnig til). Við erum með mjög hentug húsgögn í litlar ibúðir og einstaklingsherbergi. Athugið, flestar þær gerðir af húsgögnum sem við höfum, eru aðeins fram- leidd af okkur. Húsgagnaverzlunín Sedrus VIKAN 25. tbl. rj

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.