Vikan

Tölublað

Vikan - 24.06.1965, Blaðsíða 32

Vikan - 24.06.1965, Blaðsíða 32
Konter's SUNDBOLIRNIR í ár úr SPANDEX- og HELANCA efnum. Ný sniS - Lengri - Teygjanlegri. Nýjung í brjóstaskálum. Kaníer's Kaníer’s 09 SCANDINAVIA HIGH FASHION SWIMWEAR * ii 4 >HLipnar Stjörnuspáin giltlir frá fimmtudegi til fimmtudags. Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl): Dagarnir verða með fremur rómantísku móti og þá einkum fyrir þá sem ennþá hafa ekki fest róð sitt. Þeir sem fæddir eru milli 2. og 7. apríl mega eiga von á einhverjum mjög sérstökum viðburði. Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí): Þú ættir að hafa góða gát að skapsmunum þínum þessa dagana, því margt getur orðið til að koma þér úr jafnvægi og spillt fyrir þér. Seinni partur vikunnar verður í alla staði skemmtilegri en sá fyrri. Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní): Vikan verður að mörgu leyti mjög hagstæð fyrir þig og ef þú hefur einhverjar framkvæmdir á döf- inni er góður tími til að taka ákvarðanir einmitt nú. Þú skalt ekki slá hendinni á móti heimboði ákveðins aðila. Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí): Það verður margt ólíkt með þessarri viku og þeirri sem var að líða. Það gæti jafnvel farið svo að hún kæmi með þversagnir á þá fyrri. Líkur eru á stuttri ferð um helgina að líkindum í fámennum hópi. Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst): Þú ættir í þessari viku að vekja athygli réttra aðila á ákveðinni hugmynd sem þú hefur fegnið í sam- bandi við starf þitt. Ekki er ólíklegt að þú aðhaf- ist eitthvað sem verður til að auka hróður þinn. Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september): ©Þú verður fremur óþolinmóður og skyldustörfin fara 1 taugarnar á þér. Þú ættir að vinna af kappi að því að koma sumarleyfishugmyndum þínum í framkvæmd. Haltu eitthvert kvöldið smá heimboð fyrir vinkonu þína. Vogarmerkið (24. september — 23. október): Allt bendir til þess að þér muni heppnast að koma fyrirætlunum þínum í verk og verða ýmis öfl þér hliðstæð ekki síður er í fyrri viku. Þú ættir að slaka á kröfum þínum um fullkomleika eins vinar þíns. Drekamerkið (24. október — 22. nóvember): Vikan verður full af rómantík og skemmtilegum viðburðum ekki síður hjá þeim sem hafa fest ráð sitt en hinum sem enn eru lausir og liðugir. Reyndu að rækta með þér allt það bezta sem þú veizt í fari þínu. © Bogmannsmerkið (23. nóvember — 21. desember): Notaðu hvert tækifæri sem þér býðst til að létta þér upp. Þú ert of veikgeðja í garð eins fjölskyldu- meðlima þinna en ef þú tekur upp ögn meiri aga og ákveðni breytist allt til hins betara. Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar): Gættu þess vel að gera ekki of háar kröfur til RM annarra og láta þá vinna verk þín. Seinni hluti vikunnar færir þér svar við spurningu sem þú hefur lengi verið órólegur út af. Happatala er 3. Vatnsberamerkið (21. janúar — 18. febrúar): Ef þér hættir til fljótfærni skaltu vera sérstaklega gætinn í þessarri viku, svo þú þurfir ekki að naga handabökin síðar meir. Vertu sérstaklega vingjarn- iegur við einn vin þinn sem hefur orðið fyrir mikl- um órétti. Fiskamerkið (19. febrúar — 20. marz): í >að er oft heppilegt að gera áætlanir og leggja nið- ur fyrir sér starf og starfsaðgerðir áður en fram- kvæmdir eru hafnar. Þú ert líklegur til að gera skyssu af eintómu athugaleysi og óforsjálni. g2 VIKAN 25. tbl.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.